Beint í leiðarkerfi vefsins.

Hótel Westbury tilheyrir hótelkeðjunni „Leading hotels of the World“ og er best staðsetta fimm stjörnu hótel borgarinnar. Stendur við Grafton stræti í hjarta Dyflinnar og er hreint ómótstæðilegt.

Hótel Burlington er gott 4ra stjörnu hótel og eitt stærsta hótelið í borginni með 500 herbergi. Gestamóttaka, setustofa, bar og veitingastaður. Þægileg gönguleið sem tekur um 20 er mínútur frá hóteli að Grafton stræti sem er vinsælasta verslunargata borgarinnar.

Mjög gott 4ra stjörnu hótel sem staðsett er við suðurbakka Liffey árinnar, skammt frá miðborginni. Hótelið er sjö hæðir og með 304 herbergi. Á hótelinu er veitingastaður og bar, einnig glæsileg heilsulind, með líkamsræktarsal, sundlaug, gufubaði og úrvali af ýmsu dekri.

Einstaklega fallegt fjögurra stjörnu hótel mjög vel staðsett í miðborg Dyflinnar. Hótelið lætur ekki mikið yfir sér þegar komið er að því, en þegar inn er komin er allt sérlega smekklegt. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street að Trintity Collegue og í Temple Bar hverfið.

Gott fjögurra stjörnu hótel í 10 - 15 mínútna göngufæri frá aðal verslunargötunni Grafton Street.
Opin og björt gestamóttaka með setustofu, bar og veitingasal.
Herbergi eru 102 og voru öll endurnýjuð árið 2007. Þau eru í léttum og ljósum litum með nýjum og góðum rúmum með sængum. Einnig síma, flatskjá, gerfihnattasjónvarpi, nettengingu, öryggishólfi, síma, hárþurrku, te- og kaffisetti.

Gott fjögurra stjörnu hótel á allra besta stað í Dublin. Hótelið er í fallegri og sjarmerandi byggingu við Stephen´s Green almenningsgarðinn í hjarta borgarinnar. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street.

Klassískt og mjög huggulegt 115 herbergja hótel á besta stað í Dublin. Saga þessa hótels nær aftur til ársins 1863 og er byggingin eitt af helstu kennileitum borgarinnar.

Gott hótel sem er vel staðsett nálægt Stephen´s Green garðinum í göngufæri við miðbæinn. Á hótelinu er heilsurækt og sundlaug, einnig veitingastaður, bar og krá þar sem hægt er að fá létta rétti.