Mercure Edinburgh Princes Street , Edinborg

Mercure Edinburgh Princes Street , Edinborg

Mjög vinsælt 3ja stjörnu hótel við aðal verslunargötuna í Edinborg Princes street í hjarta borgarinna. Frá veitingastað hótelsins og herbergjum sem snúa að götunni er einkar fallegt útsýni að Edinborgar kastala og lystigarðinum Princes garden. Hótel hét áður Ramada Jarvis Mount Royal.

Gestamóttaka , veitingastaður og bar eru á 2 hæð, en hægt er að taka lyftu frá jarðhæðinni.  Veitingastaðurinn er vel þekktur í borginni bæði fyrir fyrirtaks mat og svo er útsýni alveg einstakt að kastalanum.  Allt í kringum hótelið eru verslanir og gegnt Mount Royal er lítil verslunarmiðstöð með búðum og kaffihúsum.  Ýmsir ferðamannastaðir eru í göngufæri og má þar nefna  smáverslanir við George Street, pubbarnir  í Rose Street og næturlífið í Grassmarket.

Tvær gerðir eru af herbergjum. „Standard herbergi snúa að bakhlið hótelsins og svo herbergi með útsýni að kastalanum, sem eru dýrari.  Kastalaherbergi eru öll uppgerð og með flatskjá. Öll herbergin eru ágætlega rúmgóð með sjónvarpi, kvikmyndarásum,  nettengingu og buxnapressu.  Á herbergjunum er einnig hárþurrka og bakki með hraðsuðukönnu, te og kaffi.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
50 mín. til Glasgow flugvallar
Miðbær:
Í miðbænum
Veitingastaðir:
5 mín.

Aðstaða

Fjöldi hæða:
8 hæðir
Gestamóttaka:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Þráðlaust net, gegn greiðslu
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Standard herbergi snúa að bakhlið hótels. Herbergi með útsýni að kastala snúa að Princes Street.
Fæði:
Morgunverður
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
já, gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:

Heimilisfang

53 Princes Street, Edinburgh, Scotland, Uk


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar