Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hótel Westbury tilheyrir hótelkeðjunni „Leading hotels of the World“ og er best staðsetta fimm stjörnu hótel borgarinnar. Stendur við Grafton stræti í hjarta Dyflinnar og er hreint ómótstæðilegt.
Stór og glæsileg setustofa, bar og veitingastaður bjóða gesti velkomna og síðdegis er setustofan gjarnan vel setin enda afar vinsælt að setjast niður í eftirmiðdagste á hótel Westbury.
Á hótelinu er tækjasalur og þráðlaust internet í sameiginlegum híbýlum. Innangengt er í lítið verslunarhús með fallegum verslunum.
Á hótelinu eru 205 glæsileg herbergi með hlýlegum litum og vönduðum húsgögnum. Þau eru öll nýlega endurnýjuð. Af aðbúnaði má nefna góð rúm og rúmfatnað af bestu gerð. Á baðherberginu eru „Acqua Di Parma „ snyrtivörur og hárþurrka. Í svefnherberginu er 32“ sjónvarp og fín expresso kaffivél, sími, smábar og öruggishólf.
Algjört draumahótel í alla staði.
2 Grafton Street, Ireland