Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hótel Nippon er smekklegt 4ra stjörnu hótel í japönskum stíl, endurnýjað 2008. Það er við hliðina á hótel Point og er á besta stað í Taksim hverfinu í hjarta Istanbúl. Huggulegt og sérlega smekklegt hótel þar sem japönsk hönnum er í fyrirrúmi.
Með staðsetningu hótelsins í Taksim hverfinu er hótelið umkringt verslunarhúsum og sérverslunum. Barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái.
Afgreiðslan er lítil, en innréttuð í smekklegum japönskum stíl. Á hótelinu er bar og einn veitingastaður þar sem boðið er upp á morgunverðarhlaðborð, en í hádegi og kvöldin er valið af matseðli.
Hótelið var allt endurnýjað árið 2008 og eru herbergi alls 171. “Standard “ herbergin eru innréttuð í ljósum litum og ljós teppi á gólfum. Herbergin eru frekar lítil, eða um 25 fermetrar. Fataskápurinn er einnig mjög lítill. Í herbergjum er sími, plasma sjónvarp, smábar, nettenging, öryggishólf, hraðsuðuketill fyrir te eða kaffi og hárþurrka. Baðherbergin eru innréttuð í ljósum litum og flest eru með baðkari m/sturtu.
Á hótel Nippon er tækjasalur og sauna og frítt, þráðlaust internet.