Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hótelið Vizenza er notalegt 4ra stjörnu hótel, vel staðsett í gamla bænum, í göngufæri frá Grand Bazar og klassíska hlutanum. Hótelið er svokallað Atrium hótel, opið í miðjunni. Afgreiðslan er lítil og út frá henni er gengið inn í a la carte veitingastað sem er inni á veturna en úti á sumrin.
Bláa Moskan og Topkapi höllin eru einnig í göngufæri, auk þess sem verslanir og veitingastaðir eru allt um kring.
Á hótel Vicenza eru 85 herbergi, sem voru öll nýlega endurnýjuð. Þau eru 26fm og innréttuð í brúnum og gulum litum. Teppin eru einnig brún og gul. Fataskápar eru litlir, nema í herbergjum með hjónarúmi þar sem þeir eru stærri. Á herbergjunum er sími, plasma sjónvarp, nettenging, öryggishólf og hárþurrka. Baðherbergin eru lítil og innréttuð í ljósum litum. Í flestum herbergjum er sturta, en ekki baðkar.
Á hæðinni fyrir neðan afgreiðsluna er morgunverðarherbergið og einni hæð neðar er heilsulind með innisundlaug og hægt að fara í tyrkneskt bað og nudd. Þráðlaust, frítt internet er alls staðar á hótelinu
Vicenza er ódýrt hótel og látlaust, en stendur fyrir sínu.