Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Stokkhólmur

ÓAÐFINNANLEG KURTEISI!
Heimsókn til Stokkhólms er frábær hugmynd á hvaða árstíma sem er, en það er sérstaklega ánægjulegt að heimsækja borgina á sumrin. Sumarið er hlýtt og sólríkt þótt þetta sé ein af nyrstu höfuðborgum í heimi. Umhverfið er fagurt, skógi vaxnar hæðir umkringja borgarstæðið, eyjar og klettar horfa út á Eystrasaltið og arkitektúrinn er blanda af gömlu og nýju. Fáar evrópskar borgir eru jafnfallegar og heillandi og Stokkhólmur.

Flug til Stokkhólms borgar sig. Svíar eru stolt og vinalegt fólk. Þeir eru einnig hlýir, glaðlyndir, hjálplegir og frægir fyrir óaðfinnanlega kurteisi!

Stokkhólmur hefur yfir sér konunglegan blæ. Svíþjóð er eitt af konungsveldum Evrópu og hér má sjá þess greinileg merki, sérstaklega ef deginum er eytt í að skoða Gamla Stan, eitt elsta hverfi borgarinnar þar sem m.a. má finna konungshöllina. Stokkhólmur er einstaklega fjölskylduvæn borg og þar er mikið af útivistarsvæðum, fallegum görðum og dýragörðum. Hægt er að fara í stuttar ferðir út fyrir borgina og heimsækja áhugaverða staði eins og Junibacken, skemmtigarð sem helgaður er hinni frægu skáldkonu Astrid Lindgren, og sumarhöll konungsins og fagra blómagarðana umhverfis sem eru öllum opnir. Auk þess má finna hér, eins og í öllum helstu borgum Evrópu, hefðbundið úrval verslana, verslunarmiðstöðva, veitingastaða og safna. Í Stokkhólmi finnurðu allt sem þú þarft fyrir alla fjölskylduna.

 

GOTT AÐ VITA

Þegar flogið er til Stokkhólms er lent á Arlanda flugvelli sem er 40 km norður af miðborginni. Ferð í rútu í miðborgina tekur um 45 mínútur. Ferð með Arlanda Express lestinni tekur tuttugu mínútur, og fer hún á tuttugu mínútna fresti.

Dagsferðir um borgina og nágrenni með íslenskum fararstjóra og ferðir til og frá flugvelli í Stokkhólmi.

Viltu borða? Prófaðu Villa Källhagen, frábæran stað við Djurgarden, Mosebacke Establissement, Mosebacke Torg 3, er veitingastaður með sérstaklega gott útsýni yfir borgina. Operakalleren, Karl den XII's Torg, dýr og formlegur. Sophie's við Biblioteksgatan 5, ítalskur.

Ertu í stuði til að versla? Kíktu á Drottninggatan, Hamngatan vöruhúsin NK, Gallerian og að sjálfsögðu H&M! Götgatan er þekkt fyrir áhugaverðar búðum með einstakri hönnun, Sturegallerian, litlar búðir, fræg merki, Grev Turegatan, minni búðir með fræg merki.

Vantar þig akstursleiðbeiningar eða upplýsingar um fjarlægðir milli staða?


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar