Beint í leiðarkerfi vefsins.
Akstur milli Glasgow flugvallar og hótela í Edinborg.
Munið að bóka akstur til og frá flugvelli um leið og ferðina.
Aksturinn kostar 3.900 krónur hvora leið og tekur 45 mín til klukkutíma, fer eftir umferð.
Miðað er við lámark 15 manns til að pöntuð sé rúta.
Ef færri fara, er farið með leigubíl frá Glasgow flugvelli að lestarstöðinni Queen Street og lestin tekin til Edinborgar. Hún stoppar á Waverly Station sem er í göngufæri frá Jurys Inn og Mount Royal en taka þarf leigubíl á King James Thistle hótelið (5 mín akstur).
Leigubíll frá flugvelli að Queen Street Station kostar 25 pund (tekur 2 til 4).
Fargjald með lestinni kostar 11 pund. Þá er kostnaður sá sami og ef rútan er tekin, m.v. að 4 séu saman í leigubíl.
Leigubíll frá lestarstöðinni í Edinborg að hótelum er ekki innifalinn í því verði, og þeir sem þurfa að taka bíl gera það á eigin kostnað.