Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skoðunarferðir:
Istanbúl og helstu kennileitin - hálfsdagsferð
Farið um Sultan Ahmet hverfið sem er í hjarta Gömlu borgarinnar en þar réðu Byzantine og Ottoman veldin. Hagia Sophia, eitt af undrum heimsins varðandi arkitektúr, Bláa Moskan þar sem yfir 20 þúsund bláar flísar ljóma í birtunni, Hippodrome svæðið þar sem kappleikir fóru fram til forna ásamt öllum minnisvörðunum við svæðið, Grand basarinn þar sem yfir 4000 búðir selja allt sem hugurinn girnist og ósvikin tyrknesk menning svífur yfir vötnum.
Heimsveldi Ottomana – hálfsdagsferð
Topkapi kastalinn glæsilegi þar sem forkálfar Ottoman veldisins bjuggu en þar má sjá fjársjóði, vopn, postulín og ýmislegt fleira, Suleymaniye moskan sem yfir-arkitekt Ottoman veldisins hannaði, ein fallegasta moska borgarinnar
Sigling á Bosphorus sundi - hálfsdagsferð
Sundið á milli Evrópu og Asíu. Fallegir kastalar og byggingar á hverju strái auk þess sem siglt er framhjá Rumeli virkinu. Það er hernaðarlegt meistarastykki. Zindan Han heimsótt þar sem Byzantine veldið byggði fyrsta kvennafangelsi sitt. Það hefur verið gert upp og hýsir nú skartgripasafn. Þar má sjá ótrúlegt samansafn glæsilegra skartgripa. Þá er Kryddbasar einnig heimsóttur en þar eru seldir ávextir, grænmeti, fiskur, blóm og að sjálfsögðu krydd.
Istanbúl að kvöldi – Tyrknesk sýning með kvöldmat
Magadans, menningardansar, hljómsveit og skemmtun með öllu, kvöldmat og drykkjum. Allt innifalið í þessu skemmtilega kvöldi sem lýkur um miðnætti.
Nánari upplýsingar um verð og skipulag skoðunarferða verður birt um miðjan september.