Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flugvöllur: Flugvöllurinn í Riga heitir Riga International (RIX).
Flug: Flugtíminn er um fjórar klukkustundir.
Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.
Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til miðbæjar Riga er um 20 mínútna akstur.
Tímamismunur: Á veturna er tveggja tíma mismunur , en á sumrin eru þeir þrjá klukkutíma á undan.
Mynt: Lat (LVL). Sjá gengi: http://www.oanda.com/currency/converter/
Hraðbankar: Mjög víða.
Greiðslukort: Lang flestar búðir og veitingastaðir taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort. Evrum að hægt að skifta í bönkum.
Samgöngur: Hótel VITA eru öll í miðborginni og auðvelt að fara gangandi um borgina. Einnig eru leigubílar er á hverju strái. Mælt með að nota Baltic Taxi, sem eru grænir.
Verslanir: Opnunartími Verslanir og verslunarmiðstöðvar eru flestar opnar alla daga frá 10.00 – 21.00. Minni verslanir frá 8.00/9.00 – 18.00. Markaðurinn er opinn alla daga frá 8.00 – 17.00
Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.
Rafmagn: 220 volt.
Tungumál: Lettneska er aðal tungumálið en það er einnig töluð enska, litháenska, rússneska og þýska.