Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flugvöllur: Flugvöllurinn er Schwechat International (VIE).
Flug: Flugið tekur u.þ.b. fjórar klukkustundir.
Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.
Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til miðborgarinnar er um 20 mínútna akstur.
Tímamismunur: á veturna er Vínrborg einum klukkutíma á undan Íslandi en tveimur klukkutímum á sumrin.
Mynt: Evra (EUR). Sjá gengi
Hraðbankar: Mjög víða
Greiðslukort: Lang flestar búðir og veitingastaðir taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.
Samgöngur: Það er auðvelt að ferðast um borgina með því að nota samgöngukerfi hennar. Leigubílar, strætó, lestir, sporvagnar og neðanjarðarlestir eru á hverju strái og er tiltölulega þægilegt að nýta sér þá kosti.
Verslanir: Í Vín er mikið úrval góðra verslana t.a.m. með lúxus vörur, skartgripi, antík muni, list og tískuvörumerki.
Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.
Rafmagn: 220 volt.
Tungumál: Þýska er aðal tungumálið.