Beint í leiðarkerfi vefsins.
Helgarferð 21. - 25. október 2010
Dublin í Írlandi er einstök borg sem hefur unnið hug og hjörtu margra Íslendinga í gegnum árin, enda er varla annað hægt en að hrífast af umhverfinu, menningunni og lífsgleði innfæddra. Frá Íslandi er aðeins tveggja tíma flug til Dublinar og er VITA stolt af því að geta boðið áhugasömum að sækja þessa höfuðborg Írlands heim, sem við fullyrðum að sé í hópi skemmtilegustu borga Evrópu.
Fararstjóri í ferð VITA til Dublin er Svanhildur Davíðsdóttir. Fáir þekkja Dublin betur en hún, enda hefur hún verið fararstjóri fyrir Íslendinga í Dublin frá árinu 1991.
ATH. Boðið verður upp á skemmtilegar skoðunarferðir um svæðið í ferðinni. Nánari upplýsingar um þær er að finna neðar á þessari síðu.
Dublin er höfuðborg Írlands, sem gjarnan er nefnd „Eyjan græna“ sökum þess að 4/5 hlutar landsins er grænt og landbúnaður hefur mikið vægi. Ef úthverfin eru talin með búa um tvær milljónir manna í Dublin. Borgin liggur við ánna Liffey sem skiptir borginni í norður- og suðurhverfi.
Í Dublin eru vel á annað þúsund barir og krár, þar sem þjóðdrykkirnir Guinness (dökkur bjór), Jameson (viský) og Bailey's (líkkjör) njóta iðulega mestu vinsældanna. Það verður ekki tekið af Írunum að þeir kunna sannarlega að skemmta sér og hin svokallaða „pöbba-stemning“ sem gjarnan myndast er sannarlega ógleymanleg. Segja má að gönguferð í Temple Bar skemmtanahverfinu sé hreinlega upplifun út af fyrir sig, svo mikil er stemningin þar á hverju kvöldi.
Mikið úrval góðra veitingastaða er að finna í Dublin og geta gestir þá valið á milli amerískra, skandinavískra, austurlenska nú eða að sjálfsögðu sér-írskra veitingastaða. Úrvalið er mikið og gæði matseldarinnar eru víðast hvar framúrskarandi.
Í miðborg Dublin er mikið lagt upp úr ólíkum menningarviðburðum þar sem úrvalið og fjölbreytnin er jafnan mest á haustin. Fjölmörg leikhús eru í borginni og auðvelt er að komast á áhugaverða tónleika. Þá njóta danssýningar jafnan mikilla vinsælda á meðal erlendra ferðamanna, ekki síst sýningar þar sem sjálft þjóðarstolti eyjaskeggja er í forgrunni, réttara sagt írski steppdansinn.
Almenningssamgöngur eru góðar, tveggja hæða strætisvagnar eru áberandi og tiltölulega auðvelt er að fá leigubíla. Við mælum þó sérstaklega með því að fólk ferðist á tveimur jafnfljótum - enda er það langsamlega besti fararskjótinn til á að upplifa borgina sem best og drekka í sig menninguna og söguna sem býr í götunum og byggingunum.
Grafton Street, aðalverslunargata borgarinnar, er ómissandi viðkomustaður allra þeirra sem leggja leið til sína til Dublinar. Það er samdóma álit margra arkitekta að gatan sé á meðal þeirra best heppnuðustu í gjörvallri Evrópu. Verslanirnar á götunni eru af öllum toga og á götunni er frábær blanda alþjóðlegra vörumerkja og minni verslana sem innfæddir reka. Síðan er tilvalið að koma við í Dundrum-verslunarmiðstöðinni, sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í Dublin.
Af öðrum áhugaverðum stöðum borgarinnar sem sannarlega er vert að heimsækja má nefna Dublinarkastalann, sem felur í sér mikla og merkilega norræna víkingasögu, og Þjóðminjasafnið (National Museum of Ireland), þar sem fræðast má um sögu Íra frá örófi alda. Þá er einnig virkilega skemmtilegt að heimsækja höfuðstöðvar Guinnes bjórsins hjá St. Jame´s Gata, þar sem finna má glæsilegt safn auk þess sem gestir fá að sjálfsögðu að bragða á ölinu dökka.
22. október - Borgarferð
Þægileg og skemmtileg hálfsdagsferð um borgina. Lagt af stað frá hótelum um kl. 9:30 og komið til baka um kl. 13:00.
Verð: 3.900 krónur
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.
24. október - Þorp og bæir
Heilsdagsferð þar sem þorp og bæir í nágrenni Dublinar verða heimsóttir.
Lagt af stað frá hótelum um kl. 9:30 og komið til baka um kl. 17:00.*
Verð: 4.000 krónur
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.
Athugið að lágmarksþátttaka í skoðunarferðir eru 20 manns. Ferðin verður felld niður náist sú þátttaka ekki.
Ferðirnar eru bókanlegar á heimasíðu Vita, www.vita.is
Nútímalegt fjögurra stjörnu hótel á allra besta stað í Dublin. Hótelið er í fallegri og sjarmerandi byggingu við Stephen´s Green almenningsgarðinn í hjarta borgarinnar. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street. Í anddyri hótelsins er arinn.
Mjög gott 4ra stjörnu hótel sem staðsett er við suðurbakka Liffey árinnar, skammt frá miðborginni. Hótelið er sjö hæðir og með 304 herbergi. Á hótelinu er veitingastaður og bar, einnig glæsileg heilsulind, með líkamsræktarsal, sundlaug, gufubaði og úrvali af ýmsu dekri.
Herbergi eru falleg og vel búin, öll með gerfihnattasjónvarpi, net-tengingu, te- og kaffisetti, straujárni og strauborði, síma og hárþurrku.

Gott hótelið sem er vel staðsett nálægt Stephen´s Green garðinum í göngufæri við miðbæinn. Á hótelinu er veitingastaður, bar og krá þar sem hægt er að fá létta rétti. Á hóatelinu er heilsurækt og sundlaug og skammt frá stoppar sporvagn, sem gengur beint niður að Stephen´s Green garðinum í hjarta borgarinnar.