Dublin - Írland

Dublin - Írland

Upplifðu írska þjóðarstemningu í einni skemmtilegustu borg Evrópu !

Dagsetningar:

25. - 29. október
1. - 4. nóvember, beint frá Akureyri


Dublin í Írlandi er einstök borg sem hefur unnið hug og hjörtu margra Íslendinga í gegnum árin,  enda er varla annað hægt en að hrífast af umhverfinu, menningunni og lífsgleði innfæddra. Frá Íslandi er aðeins tveggja tíma flug til Dublinar og er VITA stolt af því að geta boðið áhugasömum að sækja þessa höfuðborg Írlands heim, sem við fullyrðum að sé í hópi skemmtilegustu borga Evrópu.

Fararstjóri í ferðum VITA til Dublin er Svanhildur Davíðsdóttir. Fáir þekkja Dublin betur en hún, enda hefur hún verið fararstjóri fyrir Íslendinga í Dublin frá árinu 1991.

ATH. Boðið verður upp á skemmtilegar skoðunarferðir um svæðið í ferðinni. Nánari upplýsingar um þær er að finna neðar á þessari síðu.

Dublin er höfuðborg Írlands, sem gjarnan er nefnd „Eyjan græna“ sökum þess að 4/5 hlutar landsins er grænt og landbúnaður hefur mikið vægi. Ef úthverfin eru talin með búa um tvær milljónir manna í Dublin. Borgin liggur við ánna Liffey sem skiptir borginni í norður- og suðurhverfi.

Í Dublin eru vel á annað þúsund barir og krár, þar sem þjóðdrykkirnir Guinness (dökkur bjór), Jameson (viský) og Bailey's (líkkjör) njóta iðulega mestu vinsældanna. Það verður ekki tekið af Írunum að þeir kunna sannarlega að skemmta sér og hin svokallaða „pöbba-stemning“ sem gjarnan myndast er sannarlega ógleymanleg. Segja má að gönguferð í Temple Bar skemmtanahverfinu sé hreinlega upplifun út af fyrir sig, svo mikil er stemningin þar á hverju kvöldi.

Mikið úrval góðra veitingastaða er að finna í Dublin og geta gestir þá valið á milli amerískra, skandinavískra, austurlenska nú eða að sjálfsögðu sér-írskra veitingastaða. Úrvalið er mikið og gæði matseldarinnar eru víðast hvar framúrskarandi.

Í miðborg Dublin er mikið lagt upp úr ólíkum menningarviðburðum þar sem úrvalið og fjölbreytnin er jafnan mest á haustin. Fjölmörg leikhús eru í borginni og auðvelt er að komast á áhugaverða tónleika. Þá njóta danssýningar jafnan mikilla vinsælda á meðal erlendra ferðamanna, ekki síst sýningar þar sem sjálft þjóðarstolti eyjaskeggja er í forgrunni, réttara sagt írski steppdansinn.

Almenningssamgöngur eru góðar, tveggja hæða strætisvagnar eru áberandi og tiltölulega auðvelt er að fá leigubíla. Við mælum þó sérstaklega með því að fólk ferðist á tveimur jafnfljótum - enda er það langsamlega besti fararskjótinn til á að upplifa borgina sem best og drekka í sig menninguna og söguna sem býr í götunum og byggingunum.

Grafton Street, aðalverslunargata borgarinnar, er ómissandi viðkomustaður allra þeirra sem leggja leið til sína til Dublinar. Það er samdóma álit margra arkitekta að gatan sé á meðal þeirra best heppnuðustu í gjörvallri Evrópu. Verslanirnar á götunni eru af öllum toga og á götunni er frábær blanda alþjóðlegra vörumerkja og minni verslana sem innfæddir reka. Síðan er tilvalið að koma við í Dundrum-verslunarmiðstöðinni, sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í Dublin.

Af öðrum áhugaverðum stöðum borgarinnar sem sannarlega er vert að heimsækja má nefna Dublinarkastalann, sem felur í sér mikla og merkilega norræna víkingasögu, og Þjóðminjasafnið (National Museum of Ireland), þar sem fræðast má um sögu Íra frá örófi alda. Þá er einnig virkilega skemmtilegt að heimsækja höfuðstöðvar Guinnes bjórsins hjá St. Jame´s Gata, þar sem finna má glæsilegt safn auk þess sem gestir fá að sjálfsögðu að bragða á ölinu dökka.



Gististaðir - Dublin - Írland

Westbury hotel, Dublin 

Hótel Westbury tilheyrir hótelkeðjunni „Leading hotels of the World“ og er best staðsetta fimm stjörnu hótel borgarinnar. Stendur við Grafton stræti í hjarta Dyflinnar og er hreint ómótstæðilegt. 

(+)nánar

Burlington, Dublin 

Hótel Burlington er gott 4ra stjörnu hótel og eitt stærsta hótelið í borginni með 500 herbergi. Gestamóttaka, setustofa, bar og veitingastaður. Þægileg gönguleið sem tekur um 20 er mínútur frá hóteli að Grafton stræti  sem er vinsælasta verslunargata borgarinnar.

 

(+)nánar

Cardiff Lane Maldron Hotel 

Mjög gott 4ra stjörnu hótel sem staðsett er við suðurbakka Liffey árinnar, skammt frá miðborginni. Hótelið er sjö hæðir og með 304 herbergi. Á hótelinu er veitingastaður og bar, einnig glæsileg heilsulind, með líkamsræktarsal, sundlaug, gufubaði og úrvali af ýmsu dekri.

 

(+)nánar

Alexander, O´Callaghan hotel 

Gott fjögurra stjörnu hótel í 10 - 15 mínútna göngufæri frá aðal verslunargötunni Grafton Street.

Opin og björt gestamóttaka með setustofu, bar og veitingasal.  

Herbergi eru 102 og voru öll endurnýjuð árið 2007. Þau eru í léttum og ljósum litum með nýjum og góðum rúmum með sængum. Einnig síma, flatskjá, gerfihnattasjónvarpi, nettengingu, öryggishólfi, síma, hárþurrku, te- og kaffisetti.

 

(+)nánar

Stephens's Green O´Callaghan Hotel  

Gott fjögurra stjörnu hótel á allra besta stað í Dublin. Hótelið er í fallegri og sjarmerandi byggingu við Stephen´s Green almenningsgarðinn í hjarta borgarinnar. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street.

(+)nánar

Brooks hotel 

Einstaklega fallegt fjögurra stjörnu hótel mjög vel staðsett í miðborg Dyflinnar. Hótelið lætur ekki mikið yfir sér þegar komið er að því, en þegar inn er komin er allt sérlega smekklegt. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street að Trintity Collegue og í Temple Bar hverfið.

(+)nánar

Davenport Hotel, Dublin 

Klassískt og mjög huggulegt 115 herbergja hótel á besta stað í Dublin. Saga þessa hótels nær aftur til ársins 1863 og er byggingin eitt af helstu kennileitum borgarinnar.

(+)nánar

Camden Court 

Gott hótel sem er vel staðsett nálægt Stephen´s Green garðinum í göngufæri við miðbæinn.  Á hótelinu er heilsurækt og sundlaug, einnig veitingastaður, bar og krá þar sem hægt er að fá létta rétti.

(+)nánar

Kort af gististöðum

Vissir þú ...

... að Dublin er ein af ¿yngstu borgum¿ Evrópu, að því leyti að 50% íbúa hennar eru yngri en 30 ára. Næturlífið getur því verið ansi fjörugt en þó er það svo að allir barir loka á miðnætti !

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar