Edinborg

Edinborg

Heillandi borg með mikla sögu og allt við hendina!

3ja nátta helgarferðir:
4.  - 7. október
og
18. - 21. október
og
15. - 18.nóvember

5 nátta helgarferðir
4. - 9. október
og
1. - 06. nóvember

Gott fólk 60+
4. - 9. október
og
1. - 6. nóvember

Edinborg er höfuðborg Skotlands og þar búa um 500 þúsund manns. Edinborg er auðveld borg að heimsækja og hefur hún oft á tíðum verið valin besta borg að búa í. Heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur Edinborgarkastalinn eru stolt borgarbúa.

Kastalinn gnæfir hátt yfir borgina á Castle Rock. Frá kastalanum niður að Holyrood-höll liggur hin fallega gata Royal Mile. Ber gatan nafn með rentu þar sem farið var með meðlimi konungsfjölskyldunnar í hestvögnum míluvegalengd frá kastala að höllinni.

Við götuna eru fallegar byggingar, söfn, verslanir, veitingahús og  bari sem gaman er að kíkja inná. Á milli gamla og nýja bæjarins er Princes Garden sem er iðar af lífi, en þar má sjá hina frægu blómaklukku.

Princes Street er aðal verslunargata bæjarins, þar er að finna allar helstu og vinsælustu verslanir Bretlands og í götunum í kring er mikið úrval af veitingahúsum og börum og þá sérstaklega við Rose Street en þar er að finna um 50 pöbba.

Af nógu er að taka í menningarlífinu enda alltaf eitthvað í gangi í borginni og mikið úrval af söfnum og er ókeypis í flest þeirra.

Í Edinborg ættu finna allir að finna eitthvað við sitt hæfi, enda Skotar einstaklega vingjarnlegir og góðir heim að sækja.

Fararstjórar í ferðum VITA til Edinborgar eru þau Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson, en þau Inga og Snorri eru búset í Skotlandi og hafa þjónað íslenskum ferðalöngum í Edinborg um margra ára skeið.

Flugið og ferðatilhögun:
Flogið er í áætlunarflugi Icelandair til Glasgow og ekið þaðan til Edinborgar.
Brottför frá Keflavík er í morgunflugi og í hádegisflugi til baka.
Nákvæmir flugtímar eru í ferðeleit VITA.

Skoðunarferðir í Edinborg:

Borgarferð:
Alltaf á dagskrá daginn eftir komu (á föstudegi).
Liðlega 2ja klukkustunda ferð sem gefur fólki góða mynd af borginni og sýnir hversu  mikið hún hefur uppá að bjóða og eins hversu  þægilegt er að vera ferðamaður í þessari fallegu borg,  enda stutt milli staða.

Við hefjum ferðina í nýrri hluta borgarinnar og fikrum okkur síðan yfir í gamla bæinn,  kynnum okkur söguna  og heyrum skemmtilegar sögur  frá fyrri tímum. Við munum m.a. aka að húsinu þar sem Sveinbjörn Sveinbjörnsson bjó þegar hann samdi þjóðsöng okkar Íslendinga.
Grassmarket var aðal markaðssvæðið og þar voru menn voru hengdir fyrr á öldum. Við munum heyra krassandi sögur af þeim atburðum.  Í dag er Grassmarket einn líflegasti hluti borgarinnar með krám, kaffihúsum og veitingastöðum. 
Edinborgarkastali  gnæfir uppi á hæð yfir borginni og var heimili konunga. Við heyrum söguna af  Mary Queen of Scots, en ekki verður farið inn í kastalann.

Brottför: 10:00
Verð: 4.900 krónur
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.

Sveitaferð um skosku hálöndin:
Loch Lomond – Aberfoyle – Callander – Stirling.
29.apríl - 8. október og 4. nóvember
Lagt af stað frá Edinborg  og  ekið til Balloch, við suðurströnd Loch Lomond. Þar gefst kostur á 1 klst. siglingu um vatnið *). Að því loknu er ekið til inn í Trossach héraðið  sem er eitt af fallegastu svæðum Skotlands , staðsett í Queen Elisabet  Forest Park þjóðgarðinum sem opnaður var til heiðurs Elísabetu drottningu þegar hún var krýnd drottning Bretlands 1953  .

Þaðan ekið til smábæjarins  Aberfoyle þar sem við munum snæða hádegisverð .Eftir það ökum við til Callander sem er einn af fallegustu bæjunum í Trossach héraðinu, þar munum við stoppa dágóða stund og gefst því tími til að skoða sig um. Í Callander er fjöldinn allur af fallegum litlum sérverslunum, söfnum, veitingahúsum, kaffihúsum og krám.  Frá Callander ökum við framhjá Doune kastala og Stirling kastala  þar sem við munum kynna okkur sögu William Wallash, frelsishetju Skotlands þaðan liggur síðan leið okkar til Edinborgar.

Brottför: 09:30
Tími:
9 klst. (09:00 – 18:00)
Verð: 7.500 kr.
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn
* Siglingin kostar 7.50 sterlingspund og er ekki innifalin í verði ferðarinnar

Lágmarksþátttaka í skoðunarferðir eru 15 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella niður ferðina náist sú þátttaka ekki.


Gististaðir - Edinborg

King James Thistle 

Gott 4ra stjörnu hótel við endann aðal verslunargötu  Edinborgar,  Princes Street.  Innangengt er í stóra verslunarmiðstöð með búðum, kaffihúsum og  skyndibitastöðum.  Fínn veitingastaður og mjög góð staðsetning í hjarta borgarinnar.

(+)nánar

Georg Hotel 

The Georg hotel er mjög gott 4 stjörnu hótel á frábærum stað í hjarta Edinborgar. Hótelið er staðsett steinsnar frá hinu þekkta Princes stræti, Edinborgarkastala og öðrum áhugaverðum stöðum í borginni.

(+)nánar

Mercure Edinburgh Princes Street , Edinborg 

Mjög vinsælt 3ja stjörnu hótel við aðal verslunargötuna í Edinborg Princes street í hjarta borgarinna. Frá veitingastað hótelsins og herbergjum sem snúa að götunni er einkar fallegt útsýni að Edinborgar kastala og lystigarðinum Princes garden.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar