Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í gamla bænum eru steinlagðar götur, torg og fjöldi sögulegra bygginga úr fornri tíð. Þar eru söfn og kirkjur, óperuhús og opin torg, iðandi af mannlífi. Fjöldinn allur af verslunum, kaffi- og veitingahúsum sem gaman er að skoða. Umhverfis gamla bæinn eru fallegir lystigarðar, sem skarta sínu fegursta á þessum árstíma. A.m.k fimm verslunarmiðstöðvar eru miðsvæðis í Riga. Galleria Center er í gamla bænum og nýbúið að opna Gallera Riga skammt frá. Að auki eru þar stórt Stockmann vöruhús, sem eru algeng í Finnlandi og með mörg þekkt vörumerki á hagstæðu verði.
Bak við Stockmann vöruhúsið er hinn gríðarlega stóri markaður, sem er opinn alla daga vikunnar. Þetta er stærsti markaður í Austur-Evrópu og er bæði verslunarsvæði innan dyra og utan. Helst er verið að höndla með matvörur, s.s. ávexti, grænmeti, krydd, kjöt og fisk. Á markaðnum ríkir mikil stemmning og þar má sjá hinn almenna borgara kaupa inn. Þar er mikill mannfjöldi og vissara að passa uppá veski og önnur verðmæti.
Í Riga er glæsilegt óperu- og tónleikahús, einnig ýmis merkileg sögn. Úrval veitingastaða er borginni, allt frá Macdonalds og öðrum skyndibitastöðum, yfir í fyrsta flokks veitingastaði með glæsilegum innréttingum og fyrirtaks þjónustu.
Riga er einstaklega falleg borg með miðbæ fullum af líflegri sögu. Hótelin er öll í göngufæri við miðbæinn og borgin einstaklega þægileg yfirferðar.
Flugið:
Flogið er með flugfélaginu SmartLynx, sem er í eigu Icelandair en með áhöfn frá Lettlandi. Vélin er af gerðinni Airbus 320. Hún er frekar þröng, en hrein og snyrtileg og þjónusta um borð ágæt.
Í fluginu er innifalið létt snarl gosdrykkur og te eða kaffi. Aðrar veitignar þarf að kaupa. Einnig er til sölu tollfrjáls varningur. Hægt er að greiða með Evrum eða LAT, sem er lettneski gjaldmiðilinn. Einnig er hægt að greiða með kreditkortum, en hvorki íslenskar krónur né debetkort eru gjaldgeng í fluginu.
Skoðunarferðir:
Riga, borgarferð. Föstudagur 4. maí
Rútu- og gönguferð sem enginn má missa af því þarna gefst tækifæri til að sjá það helsta sem borgin hefur að bjóða. Fyrstr er ekið um borgina og síðan gengið um steinlögð stræti gömlu miðborgarinnar þar sem ótrúlega vel varðveittar byggingar eru á hverju götuhorni. Fróðleg og skemmtileg ferð. Ein og hálf klst. í rútu og ein og hálf klst. á göngu.
Morgunferð kl. 10:00
Síðdegisferð kl. 14:00
Ferðin tekur um 3 kst.
Verð: 3.900 kr.
Innifalið: Akstur, gönguferð og íslensk fararstjórn.
Rundale Palace og brugghúsið í Bauska. Sunnudagur 6. maí
Ein best varðveitta barokk höll austur Evrópu. Stórfenglegur lystigarður er við höllina og er garðurinn í blóma í byrjun maí. Að lokinni heimsókninni er komið við í bjórverksmiðju í bænum Bauska, en bjórinn í Lettlandi er talinn býsna góður og er boðið uppá smakk.
Brottför kl. 12:30
Ferðin tekur um 6 klst.
Verð: 9.900 kr.
Innifalið: Akstur, aðgangseyrir, íslensk fararstjórn og bjórsmakk.


Nýtt og mjög fallegt 4ra stjörnu hótel, á 8 hæðum, 228 herbergi, sem opnaði árið 2008. Hótelið er frábærlega vel staðsett um 5 mín gang frá gamla bænum.
Glænýtt 4ra stjörnu hótel, með 256 herbergjum á 6 hæðum. Hótelið opnaði 15. apríl 2010 og er mjög nýtískulegt. Allur arkitektúr og hönnun eru nútímaleg og smart. Hótelið er um 5 mín gang frá gamla bænum þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði og aðra afþreyingu.
Frábært 3ja stjörnu hótel, með 246 herbergjum á 11 hæðum. Hótelið var opnað árið 2005 og er sérstaklega fallegt, nútímalegt og smart.