Beint í leiðarkerfi vefsins.
Edinborg er höfuðborg Skotlands og þar búa um 500 þúsund manns. Edinborg er auðveld borg að heimsækja og hefur hún oft á tíðum verið valin besta borg að búa í. Heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur Edinborgarkastalinn eru stolt borgarbúa.
Kastalinn gnæfir hátt yfir borgina á Castle Rock. Frá kastalanum niður að Holyrood-höll liggur hin fallega gata Royal Mile. Ber gatan nafn með rentu þar sem farið var með meðlimi konungsfjölskyldunnar í hestvögnum míluvegalengd frá kastala að höllinni.
Við götuna eru fallegar byggingar, söfn, verslanir, veitingahús og bari sem gaman er að kíkja inná. Á milli gamla og nýja bæjarins er Princes Garden sem er iðar af lífi, en þar má sjá hina frægu blómaklukku.
Princes Street er aðal verslunargata bæjarins, þar er að finna allar helstu og vinsælustu verslanir Bretlands og í götunum í kring er mikið úrval af veitingahúsum og börum og þá sérstaklega við Rose Street en þar er að finna um 50 pöbba.
Af nógu er að taka í menningarlífinu enda alltaf eitthvað í gangi í borginni og mikið úrval af söfnum og er ókeypis í flest þeirra.
Fimmtudagur: Keflavík – Glasgow
Lent á Glasgow flugvelli um kl.10:00. Inga fararstjóri tekur á móti hópnumá flugvellinum og síðan er ekið til Edinborgar. Ferðin tekur um eina og hálf klst.
Hópurinn er innritaður á hótelið og síðan verður fararstjóri með fund þar sem farið verður yfir dagskrá næstu daga.
Um kvöldið verður snætt á hótelinu (ekki innifalið í verði)
Föstudagur
Fararstjóra fundur um morguninn.
Frjáls dagur fyrir hádegi en um kl. 14:00 þá er boðið uppá skemmtilega skoðunarferð um borgina.
Edinborg – skoðunarferð um miðborgina.
Ferðin er liðlega 2 klukkustundir og gefur fólki góða mynd af borginni. Ferðin sýnir hversu mikið hún hefur uppá að bjóða og eins hversu þægilegt er að vera ferðamaður í þessari fallegu borg. Oftast stutt milli staða.
Við hefjum ferðina í nýrri hluta borgarinnar og fikrum okkur síðan yfir í gamla bæinn, kynnum okkur söguna og heyrum skemmtilegar sögur frá fyrri tímum. Við munum m.a. aka að húsinu þar sem Sveinbjörn Sveinbjörnsson bjó þegar hann samdi þjóðsöng okkar Íslendinga.
Grassmarket var aðal markaðssvæðið og þar voru menn voru hengdir fyrr á öldum. Við munum heyra krassandi sögur af þeim atburðum. Í dag er Grassmarket einn líflegasti hluti borgarinnar með krám, kaffihúsum og veitingastöðum.
Edinborgarkastali gnæfir uppi á hæð yfir borginni og var heimili konunga. Við heyrum söguna af Mary Queen of Scots, en ekki verður farið inn í kastalann.
Tími: 2 klst.
Brottför kl: 14:00 og komið til baka um kl. 16:00
Verð: 3.900 kr.
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.
Um kvöldið verður snætt á ítölskum veitingarstað í göngufæri frá hótelinu.
(Ekki innifalið í verði)
Máltíðir - M
Laugardagur
Fararstjórafundur um morguninn
Frjáls dagur – fararstjóri gefur góð ráð um hvað vert er að skoða , verslanir og bara hvað sem er.
Um kvöldið er Skosk sýning á hótel King James með 3ja rétta máltíð, eitthvað sem allir ættu að skella sér á, ógleymanleg upplifun. Hópurinn fer fótgangandi, enda einungis um 10 mín gangur eftir Princes Street.
Verð: U.þ.b. 49 pund, eða liðlega 10.000 krónur á mann og greiðist á staðnum (en þarf að panta á skrifstofu VITA áður en farið er út.
Innifalið: 3ja rétta máltíð og skemmtileg sýning
Sunnudagur: Sveitaferð um skosku hálöndin:
Loch Lomond – Aberfoyle – Callander – Stirling.
Lagt af stað frá Edinborg og ekið til Balloch, við suðurströnd Loch Lomond. Þar gefst kostur á 1 klst. siglingu um vatnið *). Að því loknu er ekið til inn í Trossach héraðið sem er eitt af fallegastu svæðum Skotlands , staðsett í Queen Elisabet Forest Park þjóðgarðinum sem opnaður var til heiðurs Elísabetu drottningu þegar hún var krýnd drottning Bretlands 1953 .
Þaðan ekið til smábæjarins Aberfoyle þar sem við munum snæða hádegisverð .Eftir það ökum við til Callander sem er einn af fallegustu bæjunum í Trossach héraðinu, þar munum við stoppa dágóða stund og gefst því tími til að skoða sig um. Í Callander er fjöldinn allur af fallegum litlum sérverslunum, söfnum, veitingahúsum, kaffihúsum og krám. Frá Callander ökum við framhjá Doune kastala og Stirling kastala þar sem við munum kynna okkur sögu William Wallash, frelsishetju Skotlands þaðan liggur síðan leið okkar til Edinborgar.
Tími: 9 klst. (09:00 – 18:00)
Verð: 7.500 kr.
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn
*) Siglingin kostar 7.50 sterlingspund og er ekki innifalin í verði ferðarinnar.
Förum öll saman út að borða á veitingastað í nágrenni hótelsins.
(Ekki innifalið í verði)
Mánudagur
Fararstjóra fundur um morguninn
Frjáls dagur framundan - fararstjóri verður innan handra allan daginn.
Loka kvöldið verður snætt á hótelinu og er sú máltíð innifalin í verði ferðarinnar.
Þriðjudagurinn 1.maí
Heimferð. Lagt af stað frá hótelum um eftir morgunferð, en áætluð brottför frá Glasgow er kl. 14:05 að staðartíma og áætluð lending í Keflavík kl. 15:25.
Upplýsingar um verð í ferðaleit (bókunarvél),