Beint í leiðarkerfi vefsins.
19. - 22.apríl 2012
Fararstjórar eru Jón Karl Einarsson og Guðmundur Viðar Karlsson.
Að nálgast Lissabon af hafi, eða sunnan yfir "25. apríl brúna" og upplifa hvernig borgin breiðir út faðminn móti komumanni, er mynd sem enginn getur gleymt sem upplifað hefur. Þá skilur maður gælunafnið sem hún fékk á öldinni sem leið - Hvíta perlan í suðri. Íslenskir salt- og saltfiskkaupmenn, sem þangað sóttu voru líka metnir sem þjóðhöfðingjar - mennirnir frá eyjunni norðlægu, þaðan sem besti saltfiskurinn kom - saltfiskurinn sem skyldi verða Jólamáltíðin. Gilti þá einu hvað einvaldurinn og harðstjórinn Antonio de Oliveira Salazar lagði á þjóð sína af klöfum og harðræði - "bacalao Islandia" skyldi verða á borðum ríkra og fátækra á Jólum.
Lissabon er heillandi borg. - Dýrlegar gamlar götur, víðfræg menningarsöfn, frábær hönnunarsöfn og verslanir, mannlífsblanda, götuveitingahús og lifandi næturlíf.
„Fyrrum höfuðborg höfuðborganna“. „Skyndikynni við söguna“. „Gleymda borgin“. - Allt eru þetta nöfn sem aðdáendur borgarinnar gefa.
Lissabon á sér mikla og stórfenglega sögu og er afar skemmtileg að heimsækja. Hún er höfuðborg hins forna landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala. Sagan lifir hér í menningunni, söfnunum, gömlum götum og byggingum. Hinni gömlu byggingarhefð er hér vel við haldið í gömlum og mörgum tilfellum endurgerðum mannvirkjum, kirkjum, kastölum, brúm og götum. Samt er Lissabon spennandi nútímaborg.
Sagt er að besta leiðin til að kynnast borginni sé að villast í gamla borgarhlutanum. Dásamlegt er að rölta um hin þröngu steinlögðu stræti, detta inn á Art Noveau kaffihúsin við Rossio og Praca do Commercio eða önnur þjóðsöguleg kaffihús og horfa í kring um sig á mannlífið. Skoða forna listmuni og nútímalist á söfnum á borð við Gulbenkian safnið, Nútímalistasafnið, Berardo hönnunarsafnið og öðrum víðfrægum söfnum. Hér úir og grúir af menningu, vilji maður það við hafa. Hér eru líka allskonar verslanir út um allt, verslunarmiðstöðvar og ótrúlegir flóarmarkaðir og sérbúðir í bland við hátískuna.
Áhugavert getur verið að fá sér far með gömlu járnbrautinni gegnum miðborgina og uppgötva að sérhvert hús og sérhver gata á sér sína sögu. Skemmtana- og næturlíf Lissabon er kafli útaf fyrir sig. Sérviskuleg sælkeraveitingahús og skyndibitastaðir eru hér jafnrétthá og úrval þjóðlegra og alþjóðlegra rétta er gífurlegt. Lissabon er spennandi kostur fyrir matgæðinga og almennt er talið að gæði veitingahúsa séu hér mjög mikil.
Þetta er Lissabon, gamaldags borg og nútímaleg um leið.

Corinthia Lisboa er 5 stjörnu hótel á 24 hæðum með 518 herbergjum. Hótelið er hið glæsilegasta og ágætlega staðsett.

Hótel Fenix Lisboa er gott 4 stjörnu, 200 herbergja hótel. Frábær staðsetning við Marques de Pombal torgið gerir þetta hótel að góðum valkosti.

Lisboa Marriott er gott 4ra stjörnu ráðstefnuhótel á 18 hæðum og með 564 herbergjum. Á þessu Marriott hóteli eins og öðrum hótelum úr þeirri keðju er yfirbragðið allt hið virðulegasta, vönduð húsgögn og hlýlegar innréttingar.

Tivoli Jardim er nýuppgert og glæsilegt 4 stjörnu hótel í miðborg Lissabon, steinsnar frá breiðgötunni Avenida Liberdade. Þar er iðandi mannlíf, kaffihús, verslanir og götuveitingahús.

Hótel Fenix Garden er nýlegt og nýtískulegt 3ja stjörnu hótel í í miðborg Lissabon með útsýni yfir garð Edwards VII, rétt við Marques de Pombal torg. Örstutt er í almenningssamgöngunetið og 10 mínútna gangur er á markaðstorgið.