Madrid

Madrid

Hressandi, fögur og fjörug


Fararstjórar:  Kristinn R. Ólafsson og Jörundur Kristjánsson

Madríd er borg menningar og lista, fótbolta, matar og mannlífs, og það fram á rauða nótt... Borg sem kemur skemmtilega á óvart með sín breiðstræti, öngstræti, göngugötur, fögru hallir og kirkjur, heimsfrægu myndlistarsöfn, gróðursælu almenningsgarða, hjalandi gosbrunna, og síðast en ekki síst iðandi mannlíf.

„Ég hef fengið hundruð íslenskra ferðamanna hingað til Madrídar þau ár sem ég hef tekið að mér fararstjórn," segir Kristinn R. Ólafsson, yfirfararstjóri í þessari Madrídarferð. „Mjög margir hafa komið að orði við mig og sagt mér hve borgin hafi komið þeim skemmtilega á óvart: mannlífið, menningin, umhverfið, maturinn eða hve hreinleg hún sé -já, fleiri en einn og fleiri en tveir hafa einmitt haft orð á því við mig svona í framhjáhlaupi."

Það er í raun ekki að undra að borgin komi á óvart. Madríd er falleg og fjölbreytt, ein af stórborgum Evrópu. Og ber þess merki að hafa verið höfuðborg Spánar síðan á 16. öld og í reynd alls hins spænska heimsveldis á sínum tíma, sem sagt konungsborg sem hún er ennþá þó að Jóhann Karl, núverandi Spánarkonungur, búi rétt fyrir utan hana en ekki í Konungshöllinni (El Palacio Real) frá 18. öld, í miðborginni.

Að setjast niður á torgi einsog La Plaza de Santa Ana og fá sér hressingu er frábært, kannski á ljúfu vorkvöldi, eða rölta um göngugöturnar í „El Barrio de las Letras" (Bókmennahverfinu) þar um kring þar sem skáldjöfrar á borð við Cervantes sjálfan bjuggu, hverfi sem verður sérlega líflegt um helgar. Ekkert er heldur að því að líta inná La Plaza Mayor, steinsnar í burtu, eða fara og „smætlast" (fara í tapasleiðangur) á veitingastöðunum við götuna Calle Cava Baja sem er skammt undan.

Chueca er hýra hverfið í borginni, rétt við La Gran Vía, eitt elsta stræti miðborgarinnar, og fullt af lífi og fjöri fyrir alla, með veitingastaði og verslanir...

El Retiro er 120 hektara skrúðgarður í miðborginni, græn vin sem afar notalegt er að sækja, hvort sem það er til að ganga sér til skemmtunar eða setjast niður og fá sér eitthvað hressandi -nema hvort tveggja sé.

Höfuðborg Spánar er ein fjörugasta kvöld- og næturlífsborg í Evrópu og mannlífið er einstaklega fjölskrúðugt. Veitingahúsin, kaffihúsin, barirnir og diskótekin eru á hverju strái. Og langi mann á flamenkó eru staðirnir í Madríd meðal þeirra albestu á Spáni.

Það þarf ekki að nefna það lengur við Íslendinga að maturinn á Spáni er góður, hvort sem það eru nautasteikur eða ýmiskonar fiskmeti. Og Spánarvínin standa fyrir sínu. Madríd er engin undantekning í þeim efnum nema síður væri. Þar eru eðalmatstaðir nánast á hverju götuhorni. Og ekki vantar tapas-barina og „smætlurnar" þar, fjölbreyttar og gómsætar. Búðirnar skortir ekki heldur, hvort sem það eru merkjavörubúðir eða stórverslanir á borð við keðjuna El Corte Inglés.

Og fótboltinn er að sjálfsögðu í hávegum hafður: Real Madrid, Atlético de Madrid... Hjá Real Madrid gera t.a.m. garðinn frægan menn á borð við Cristiano Ronaldo eða spænskir heimsmeistarar: Iker Casillas, Sergio Ramos, Xavi Alonso...

Menningarlífið er afar fjölbreytt, söfnin skipta tugum, leikhús og söngleikahús eru mörg; jafnvel frægasta nautatorg heims, La Plaza de Toros de las Ventas, er í Madríd.

Fjögur listasöfn standa upp úr, öll nánast á sömu torfunni í miðborginni:

El Museo del Prado, eitt besta málverkasafn heims sem geymir verk eftir menn á borð við Goya, Velázquez, El Greco, Rubens, Rafael, Bosch, Zurbarán, Dürer og marga marga fleiri.  Ekki ónýtt að geta barið augum mestarastykki á borð við hátind barokkmálaralistarinnar: Las Meninas eftir Velázquez.

El Museo Reina Sofía, nýlistasafn Spánar, þar sem sjá má m.a. Gernika eftir Picasso, þetta stríðsóp gegn stríði sem hann málaði 1937 eftir loftárás Þjóðverja á nefndan bæ í Baskalandi. Og fleiri góðir eru þarna: nægir að nefna Salvador Dalí og Joan Miró.

El Museo Tyssen-Bornemisza flíkar merkum verkum eftir helstu meistara málaralistarinnar allt frá miðöldum fram til 21. aldar.

Og menningarmiðstöðin CaixaFórum, með ýmiskonar tímabundnar sýningar.


Gististaðir - Madrid

Hótel Santos Agumar 

Agumar er einfalt og snyrtilegt hótel vel staðsett rétt við „Þríhyrning listarinnar". Í því sambandi er talað er um þekktustu söfn borgarinnar, El Prado, Reina Sofia og Thyssen Bornemisza en þau eru öll í göngufæri.

(+)nánar

Melia Hotel Galgos 

Melia hótel Galgos er notalegt 4 stjörnu hótel, mjög vel staðsett í Salamanca hverfinu í miðborg Madridar. Hótelið er í göngufæri frá öllum helstu söfnum borgarinnar og fótboltaleikvangi Real Madrid liðsins Santiago Bernabeu.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar