Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fararastjóri: Þóra Valsteinsdóttir
Istanbúl, töfraheimur menningar og sögu. Borgin er að mörgu leyti eins og svart og hvítt, þar sem gamli hlutinn með moskur og hallir kallast á við nýja hlutann með sínum nýju og glæsilegu byggingum, verslunum og vetingahúsum. Istanbúl tilheyrir tveimur heimsálfum, Evrópu og Asíu og sundið Bosporus skilur borgarhlutana. Istanbúl er því undir áhrifum beggja menningarheima sem setur skemmtilegan blæ á andrúmsloftið. Meistaraverkin Ægissif, Topkapi kastalinn Bláa Moskan og hinn ævintýralegi markaður, Grand Bazar gera ferð til Istanbúl ógleymanlega.
Nýja-Borgin, Taksim - „Beyoglu“
Lifandi púls borgarinnar slær hvað sterkast í Beyoglu. Skrautleg kaffihús, listasöfn af ýmsum toga, veitingastaðir af öllum gerðum, fornar byggingar og ódýrar verslanir koma saman í þessu einstaka og skemmtilega hverfi. Taksim torgið er nauðsynlegur viðkomustaður og þar gnæfir minnisvarði alþýðunnar yfir iðandi mannlífið. Menningarsaga Tyrklands er augljós á hverju götuhorni nálægt torginu sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Þá er hverfið eitt helsta skemmtistaðasvæði borgarinnar, hvort sem áhugi er fyrir lifandi djassklúbbum eða harðhausa rokktónlistar, þá er þetta hverfið til að heimækja.
Gamli borgarhlutinn - „Sultanahmet“
Rík menningarsaga Istanbúl er einna best sýnileg á þessum stað þar sem fjöldi ótrúlega merkilegra staða kemur saman. Sultanahmet er svæði þar sem kappleikir fóru fram í Konstantínópel, áður en borgin hét Istanbúl. Enn má sjá leifar þess á svæðinu. Divan Yolu er svo gata þar sem hundruð smágatna renna saman með ævafornum byggingum og skemmtilegum búðum auk þess sem Topkapi kastalinn, Ægissif (Ayasofya“) og Bláa Moskan eru á næstu grösum.
Ekki missa af
- Heillandi kastölum og moskum sem heilla þá sem upplifa og gleymast ekki . Allir verða að sjá meistaraverkið Ægissif sem gnæfir yfir Gamla borgarhlutann í Istanbúl.
- Meistaraverkinu Topkapi kastalanum með dásamlegri litadýrð og magnaðri byggingarlist. Einvaldar Ottoman veldisins, sem réðu yfir Istanbúl í meira en 600 ár, bjuggu í kastalanum.
- Að standa fyrir framan Bláu Moskuna og njóta stórfenglegs hvolfþaksins og hina sex bænaturna.
- Að týna sjálfum þér í völundarhúsinu Grand basarnum frá 14. öld þar sem yfir 4000 kaupmenn bjóða handunnar vörur, allt frá inniskóm til teppa og gullúra.
Upplýsingar um verð er í bókunarvél VITA.
Marmara Taksim er glæsilegt 5 stjörnu hótel. Það er alveg við Taxim og stærstu verslunargötuna, Istiklal og er gjörsamlega í miðpunkti borgarinnar með tilheyrandi ys, þys og iðandi mannlífi allt um kring. Anddyri og gestamóttaka er stór og tilkomumikið og við innganginn er komið nýtt og mjög vinsælt Starbucs kaffihús.
Point Hotel Taksim er nýtískulegt hótel, byggt 1993, en endurnýjað 2005. Það er á besta stað í Taksim hverfinu í hjarta Istanbul. Það sem einkennir hótelið er nútímaleg og smart hönnun bæði í herbergjum og sameiginlegu rými. Veitingastaður með útsýni yfir Bosporus sund, heilsulind og innisundlaug
Hótel Nippon er smekklegt 4ra stjörnu hótel í japönskum stíl, endurnýjað 2008. Það er við hliðina á hótel Point og er á besta stað í Taksim hverfinu í hjarta Istanbúl. Huggulegt og sérlega smekklegt hótel þar sem japönsk hönnum er í fyrirrúmi.
Hótelið Vizenza er notalegt 4ra stjörnu hótel, vel staðsett í gamla bænum, í göngufæri frá Grand Bazar og klassíska hlutanum. Hótelið er svokallað Atrium hótel, opið í miðjunni. Afgreiðslan er lítil og út frá henni er gengið inn í a la carte veitingastað sem er inni á veturna en úti á sumrin.