Celebrity Infinity

Celebrity Infinity

Celebrity Infinity er í svokölluðum „Millennium" flokki hjá Celebrity Cruises, sem er annar hæsti klassi skipafélagsins. Innréttingar skipsins einkennast af marmara, klassískum viðarinnréttingum og gleri. Allur aðbúnaður og vistarverur bera vott um gæði og glæsileika.

Celebrity Infinity fór í sína jómfrúarferð árið 2001, er 91.000 lestir, tæplega 300 metrar á lengd og með rými fyrir liðlega 2.000 farþega. Aquaspa er heilsulind með nuddpottum, gufu, sauna, persnenskum garði og sólarium með glerþaki. Ótal sérfræðinar bjóða ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir gegn gjaldi.

VITA býður upp á tvær útgáfur af klefum. Annars vegar klefar með svölum (Á „Penthouse"  þilfarinu).  og hins vegar án svala (Á „Continental"  þilfarinu). Báðir klefarnir eru 16 fermetrar en svalirnar eru 3 og hálfur fermetri.

Klefarnir eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, minibar, öryggishólfi og sjónvarpi. Hægt er að bóka skoðunarferðir, horfa á kvikmyndir og panta herbergisþjónustu í klefann í gegnum sjónvarpið. Baðherbergi er með sturtu, snyrtivörum, baðsloppum og hárþurrku. Sængurfötin eru ofin úr egypskri bómull og herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn.

Á efsta þilfarinu er skokkbrautin, þar sem hægt er að ganga eða hlupa hringinn um skipið. Unaðslegur hitabeltisgarður er í útsýnisturninum. "The Conservatory" og á sólarþilfarinu er sundlaug, sólbekkir og barir.

Kvöldverður eru borinn fram í aðal veitingasal skipsins, sem heitir Metropolian og er á tveimur hæðum. Við sérstök tækifæri er gaman að bóka borð á spariveitingastaðnum, SS United States Restaurant, sem er innréttaður í anda skipanna, sem sigldu yfir Atlantshafið í upphafi farþegasiglinga. Greiða þarf 30 dollara þjónustugjald á mann á SS United States.

Barir eru um allt skip, einn er sérhæfður í kampavíni, annar í martini og þegar kvöldar taka við glæsilegar sýningar og uppákomur í flottu 4ra hæða leikhúsi. Ótal afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Infinity ógleymanlega.

Fjarlægðir

Aðstaða

Fjöldi hæða:
10
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Nei
Líkamsrækt:
Barnadagskrá:
Nei
Barnaleiksvæði:
Nei
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
1) Ytri klefar með svölum. Eru 16m2 auk 3,5 fm svala. Eru flestir á Penthouse þilfari. 2) Ytri klefar án svala. Eru 16m2 og á Continental þilfari.
Fæði:
Fullt fæði
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar