Andra Seattle

Andra Seattle

Hótel Andra er nútímalegt hótel í Belltown, staðsett í líflegu hverfi sem nær niður að höfninni í Seattle. Hótelið er í sögufrægri byggingu sem var reist árið 1925 en hótelið sjálft opnaði árið 2004 og er því mjög nýlegt. Tvær verslunarmiðstöðvar og hinn stórskemmtilegi markaður „Pike Place“ eru í göngufæri við hótelið.

Hótel Andra er með 119 herbergi, falleg og nútímaleg með dökkbláum sængurfatnaði og dökkum húsgögnum. Greiða þarf fyrir aðgang að interneti á herbergi.

Baðherbergin eru einnig blá með þykkum, þægilegum handklæðum og úrvals snyrtivörum.
 
Veitingstaður hótelsins, Lola, er einn af betri veitingastöðum Seattle með grískt, „fusion“ eldhús þar sem allt er eldað úr úrvals fersku hráefni. Veitingastaðurinn Assaggio er ítalskur, einkum og þekktur fyrir gæða vín.

Gestamóttakan einkennist af  plasma sjónvarpsskjáum sem endurvarpar í sífellu litrík listaverk. Hótelgestir hafa frían aðgang að tveimur tölvum með háhraða interneti í móttökunni. Þráðlaust net næst alls staðar á hótelinu, sem er reyklaust.

Belltown svæðið er stórskemmtilegt og þar er hægt að finna fjölda veitingastaða, alls kyns verslanar, næturklúbba og listmunasala.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
25 km, 20 mín akstur
Miðbær:
Er í miðbænum
Veitingastaðir:
Tveir á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
9
Gestamóttaka:
Líkamsrækt:
Nei
Heilsulind:
Nei
Veitingastaðir:
Nettenging:
já, þráðlaus alls staðar á hótelinu
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Nei
Skemmtidagskrá:
Nei

Vistarverur

Herbergjategund:
Standard herbergi fyrir einn eða tvo
Fæði:
Án fæðis
Svalir/Verönd:
Nei
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
já gegn greiðslu á herbergjum
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Kaffivél:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Dglega

Heimilisfang


Hotel Andra
2000 4th Avenue
Seattle, Washington, 98121

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar