Beint í leiðarkerfi vefsins.
Allure of the Seas er nýjasta skemmtiferðaskip skipafélagsins Royal Caribbean Cruise Line og sigldi sína fyrstu ferð í nóvember 2010. Norðmenn gera skipið út, en það er stærsta skemmtiferðaskip í heimi, 220 þúsund lestir, 360 metrar á lengd og rúmar alls 5.400 gesti auk áhafnar. Allure of the Seas er hreint undraverk og um borð eru nýjungar, sem engin önnur skip bjóða. Þar má nefna lystigarðinn “Central Park”, sem er um miðbik skipsins, “The Boardwalk”, sem er opið afturþilfar með karnival stemmningu og aftast er hið ótrúlega vatnaleikhús þar sem dýfingameistarar og sundfólk sýnir listír á heimsmælikvarða.
Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.
Sundlaugar, sólbekkir, nuddpottar, barir og veitingastaðir eru á sólarþilfarinu. Leikir og fjör á daginn og suma daga er lifandi tónlist. Um borð er einnig klifurveggur, laug fyrir brimbretti, hlaupabraut, skautasvell, tækjasalur, snyrti- og hárgreiðslustofa. Heilsulindin býður gegn gjaldi ýmsar dekur- og heilsubætandi meðferðir.
Aðal veitingasalurinn heitir Opus og er á þremur hæðum með svölum og glæsilegur í allar staði. Þar dekra prúðbúnir þjónar, vínsérfræðingar og vikapiltar við gesti sína. Aðrir veitingataðir eru Johnny Rockets® , sem er ekta amerískur Diner og eru bestir í hamborgurum og frönskum. Bistro-ið leggur áherslu á heilsufæði, og Seafood Shack á sjávarfang. Auk þess eru glæsilegir sérrétta veitingastaðir.
Barir eru um allt skipið, hver með sitt þema og er kampavínsbarinn einkar vinsæll. Greiða þarf þjónustugjald á örðum veitingastöðum en OPUS.
Hægt er að matast nánast allan sólarhringinn. Dagurinn hefst með morgunskatti, sem er e.k. for-morgunverður. Svo kemur morgunverður, hádegisverður, kaffihlaðborð síðdegis og kvöldverður . Ef einhver er svangur á nóttunni, er herbergisþjónusta opin allan sólarhringinn.
Eftir kvöldverðinn, sem er tvískiptur ganga gestir í salinn og njóta þess að horfa á glæsilegar skrautsýningar, töfrabrögð eða tónleika og á börunum eru einnig uppákomur. Fátt jafnast á við sýningar á skautasvelli og dýfingar undir næturhimninum í leikhúsinu aftast á skipinu.
Sigling með Allure of the Seas er ævintýri.