Sheraton Maldives Full Moon Resort

Sheraton Maldives Full Moon Resort

Sheraton hótelið á Maldavíeyjum, má kalla heilsulind og tekur hótelið undir sig eina af þeim 1100 eyjum sem mynda þennan fallega eyjaklasa í Indlandshafi. Hótelið og umhverfið er hreinasta Paradís.  Það telur 156 herbergi, af ýmsum stærðum og gerðum. Hótelherbergin eru með útsýni yfir hafið,  smáhýsi á ströndinni eru með stráþaki og litlu húsin við hafið  eru byggð á bryggjum yfir sjávarlón.
Staðurinn er einkar rómantískur, en að vera í smáhýsi  á ströndinni með stráþaki eða litlu húsi, sem er nánast ofan á sjónum toppar líklega allt í þeim. Það tekur 20 mínútur að fara með hraðbát frá flugvellinum, sem er á eyjunni Malé yfir á litlu einkaeyjuna Furanafushi þar sem hótel Sheraton Maldives Full Moon Resort & Spa er.

Allar vistarveur eru loftkældar með Sony 40" LCD flatsjá, alþjóðlegum sjónvarpsrásum, öryggishólfi, hraðsuðukönnu, smábar og aðgangi að háhraða interneti.  Allt er hannað með það besta í huga, hvort sem um var að ræða gluggatjöld, gólfefni eða innréttingu á baðherbergi. Val er um hjónarúm eða tvö einbreið rúm.

„Deluxe “herbergi („Beachfront deluxe “ 52m2).
Þau eru með útsýni yfir ströndina. Baðherbergið er flísalagt hólf í gólf og gott úrval af snyrtivörum.

Smáhýsi („Island Cottage“ og „Beach-Front Cottage“ 76 m2)
Þeir eru ýmist á sjávarkambinum eða nær lóninu og þá með garðsýni.  Það sem gerir baðherbergið einstakt er sturta undir berum himni, stórt og gott þó innandyra og Sheraton's Shine baðvörur standa gestum til boða.

Smáhýsi við sjávarlón („Water Bungalow“ 54 m2)
Eru byggð yfir lónið með stórum svölum og harðviðargólfum. Hægt að fara út í lónið af svölunum.  Útsýni er yfir Indlandshafið úr baðherberginu og sturta og bað eru aðskilin. Úrval af „Sheraton's Shine baðvörum standa gestum til boða.

Meðferðir í heilsulindinni eru slökunarnudd, lúxus andlitsböð og svo ótal margt meira.
Heilsulindin er glæný og inniheldur meðferðir frá öllum heimshornum, til að mynda Kína, Tælandi, Indlandi, Arabíu og Miðjarðarhafslöndum. Töfrandi meðferðir allsstaðar að. Heilsulindin nýtir sér umhverfi sitt og vinnur það inn í meðferðir sínar og geta þær haft góð áhrif á á viðskiptavinina löngu eftir að þeir fara aftur til síns heima. Aðeins það besta er í boði, notast er við það besta í náttúrulegum vörum til að auka upplifunina og innri ró.

Eyjan er umvafin suðrænum túrkisbláum sjónum  ásamt sínu eigin lóni. Hægt er að fara í margskonar spennandi vatnaíþróttir og eru um það bil 40 köfunarsvæði þar sem endalaust er hægt að upplifa eitthvað nýtt.

Hluti af því sem að heillar við Sheraton heilsulindina eru fjölbreyttir valkostir í veitingum  Allt frá léttu snarli til fjölda alþjóðlega veitingastaða. Einnig er gefin kostur á rómantískum málsverði í einrúmi, undir stjörnufylltum himni, með silkimjúkan sandinn undir iljunum við hliðina á glitrandi lóni. Einnig er í boði að fara á hlaðborð sem svigna undan kræsingum í morgun-, hádegis-, og kvöldverði.
Matseðlar veitingastaðanna bjóða upp á allt frá nasli, léttum réttum, hlaðborð með ýmsum alþjólegum réttum og allt til tælenskrar matargerðar.

Við mælum með….

Drifters
Hefðbundnin ensk krá með nútímalegri innréttingu. Drykkir og afþreying í hæsta gæðaflokki þar sem gott era ð slappa af með svaladrykk eftir að hafa sólað sig.

Sea and Salt
Veitingastaðirinn „Sea and Salt“ er við ströndina og er alls kyns sjávarfang á matseðlinum. Matreiðslumeistararnir eldar undir berum himni fyrir framan hótelgesti og fer ð þeirra óskum við matreiðsluna.


Sand Coast Café 
Veitingastaðurinn „Sand Coast Café“ er undir berum himni og er við hliðina á lóninu eða undir stráþaki. Matseðillinn býður upp á ýmsa alþjóðlega rétti hvort sem snætt er að kvöldi eða að degi til.

Full Moon
„Full Moon eða Fullt Tungl er heitið á veitingastaðnum þar sem aðalhlaðborð Sheraton heilsulindarinnar eru, þar er boðið upp á ýmsa rétti í morgun-, hádegis- og kvöldmat.

Anchorage Bar
Slakið á með frábæran kokkteil, nasl og njótið útsýni yfir hafið. Upplifið fögur sólsetur eða slappið af undir stjörnunum í náttúru Maldíveyja á meðan róleg tónlist fullkomnar upplifunina.

Baan Thai
„Baan Thai“ bíður upp á tælenska matargerð með fjölmörgum valmöguleikum, ýmsum bragðtegunum elduðum á hefðbundinn máta. Tælenski matreiðslumeistarinn notar ýmsar nýjungar með hefðbundnum aðferðum og galdrar fram minnisstæða veislu fyrir viðskipavinina.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
20 mín með hraðbát
Miðbær:
20 mín með hraðbát
Strönd:
Á strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
2
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Nei
Líkamsrækt:
Tennisvöllur:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
„Deluxe “herbergi („Beachfront deluxe “ 52m2). Smáhýsi („Island Cottage“ og „Beach-Front Cottage“ 76 m2) Smáhýsi við sjávarlón („Water Bungalow“ 54 m2)
Fæði:
Morgunverður. Einnig hægt að panta hálft eða fullt fæði fyrirfram.
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Nettenging:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Kaffivél:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Furanafushi Island, North Malé Atoll
Malé, 20-15
Republic of Maldives

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar