Beint í leiðarkerfi vefsins.
Enotel Lido Madeira er hlýlegt og nútímalegt hótel við ströndina, í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá miðbæ Funchal. Veitingastaðirnir eru fjölbreyttir og góðir og allt innifalið!
Herbergin 317 eru rúmgóð, þægileg og vel búin húsgögnum. Á öllum herbergjum eru svalir, loftkæling, gervihnattasjónvarp, þráðlaust internet, öryggishólf, smábar og sími. Á baðherbergjum eru baðsloppar, inniskór og bæði baðkar og sturta.
Í sundlaugargarðinum eru tvær sundlaugar, önnur þeirra ætluð börnum. Auk þess er upphituð innilaug.
Á hótelinu er glæsileg heilsulind, Thalassothys Enotel Lido Spa, þar sem hægt er að fá margs konar vellíðunar- og snyrtimeðferðir. Líkamsræktin er vel búin, með nuddpotti, saunu, tyrknesku baði og kraftsturtu. Einnig leiksvæði þar sem hægt er að spila snóker og borðtennis.
Á hótelinu eru barnaklúbbar fyrir börn á aldrinum 4-12 ára og barnalaug.
Veitingastaðirnir eru spennandi: Á Atlàntico er morgun- og kvöldverðarhlaðborð, á Vela di Canale kaffihúsinu eru morgunverður og léttir réttir, en Vela di Canale veitingastaðurinn er með ítalskar áherslur. Kai er japanskur staður þar sem hægt er að fá sushi og O Bailinho er með rétti innfæddra. Auk þess er bar í anddyrinu, íþróttabar með létta rétti og diskóbar opinn til miðnættis.
Hótelgestir sem kjósa að borða kvöldverð á sérréttastöðum panta borð með dags fyrirvara, en ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir að borða á þeim stöðum.
● Á herbergjum eru öll helstu þægindi
● Glæsileg heilsulind
● Allt innifalið
Rua Simplicio Dos Passos Gouveia, 29 Funchal, 9000-100 Portugal