Pestana Casino Park, Madeira

Pestana Casino Park, Madeira

Pestana Casino Park er gott hótel í göngufæri við miðbæinn í Funchal.  Frá hótelinu er útsýni yfir flóann, höfnina og fjöllin.  Hótelið var endurnýjað árið 2007 og eru öll salarkynni sérstaklega hugguleg. Flottar setustofur með líflegum bar og lifandi tónlist á kvöldin.

Við hlið hótelsins stendur spilavítið Casino de Madeira og næturklúbburinn Copacabana.  Þar eru ýmis konar sýningar í boði, allt frá lifandi tónlist til kabarettsýninga.   Spilavítið var hannað af hinum heimsfræga brasilíska arkitekt Oscar Niemeyr.

Hótelið stendur á fallegum stað rétt fyrir ofan höfnina þar sem eitt til tvö skemmtiferðaskip liggja gjarnan. Engin strönd er við hótelið.

Herbergin eru loftkæld, vel útbúin með dökkum innréttingum.  Á herbergjum eru gervihnattarsjónvörp, sími, smábar, netaðgangur og öryggishólf (gegn gjaldi), hárþurrka og svalir. Inni á baðherbergjum eru tveir vaskar, baðkar og sturta.
Herbergi með garðsýni eru á neðri hæðum hótelsins en á efri hæðunum eru herbergi með "hliðar" sjávarsýn. 

Veitingastaðir eru tveir. Sunset Restaurant & Bar er á la carte veitingarstaður með rómantísku ívafi.  Panoramic Restaurant er morgunverðarstaður með fallegu útsýni yfir hafið, flóann og bæinn.  Þar er skemmtidagsrká  nokkrum sinnum í viku. Dock side Restaurant & Bar er veitingarstaður við sundlaugina. Þar er boðið upp á léttar hressingar og rétti í fallegu umhverfi. Einnig býður hótelið upp á herbergjaþjónustu allan sólarhringinn.

Hægt er að eiga notalega stund í heilsulindinni en þar er hægt að láta dekra við sig á ýmsan hátt – reyndar gegn greiðslu, ef um nudd eða aðra sérþjónustu er að ræða.

Fæði:  Morgunverður eða hálft fæði

Fjarlægðir

Flugvöllur:
15 km
Miðbær:
500 m
Veitingastaðir:
Á hóteli og í göngufæri

Aðstaða

Fjöldi hæða:
9
Gestamóttaka:
Já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Herbergi með útsýni yfir garð og herbergi með "hliðar" sjávarsýn.
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega og eftir þörfum
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Rua Imperatriz D. Amélia, 9004-513 Funchal, Madeira

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar