Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gisting:
Nafn :Viking Star Heimilisfang :Kemer Símanúmer : 00 90 242 352 2700 Faxnúmer : 00 90 242 352 2690 Vefsíða : www.vikingturizm.com
Netfang: Stutt lýsing : lúxus 5 stjörnu hótel Okkar mat : óvenju góður matur Stjörnugjöf : góðar 5 stjörnur Hæðir : 3 Lyfta : já Fjöldi íbúða : 198 Staðsetning: í miðbænum Þjónusta : Bar : já Fæði : allt innifalið (all inclusive) Hárþurrka : já Loftkæling : já Veitingastaður : já Gestamóttaka : já Hjólastólaaðgengi : já Sími : já Sundlaug : já Öryggishólf :já Sjónvarp : já Tækjasalur : já
Eftirfarandi eru kaflar úr Morgunblaðsgrein Gunnars Hersveins heimspekings þann 12. apríl 2007 um Kappadókíu:
Kappadókía var fjölþjóðlegt svæði því margir leituðu þar athvarfs: fólk frá Palestínu og öðrum löndum á flótta undan Rómverjum, múslimum og mongólum. Í Kappadókíu var byggður grunnur að fyrsta kristna söfnuðinum í heiminum. Íbúar sem áður tilheyrðu grískum trúarbrögðum, rómverskum og gyðingdómi reistu híbýli sín í klettum og grófu neðanjarðarborgir til að flýja í undan óvinum og nýta þegar kalt var að vetri til. Vitað er að Páll postuli kom á ferðum sínum um heiminn til Kappadókíu og stofnaði söfnuð.
Tildrög ferðar minnar í Kappadókíu eru þau að ég hitti Friðrik G. Friðriksson fararstjóra á hóteli í Miðjarðarhafsborginni Antalíu og fékk að slást í för með hópnum hans. Friðrik telur Kappadókíu vera eitt best varðveitta og merkilegasta leyndarmál ferðaþjónustunnar.
Næsta dag héldum við í Göreme-þjóðgarðinn í Kappadókíu sem jafnframt er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er líkt og að maður sjái inn í álfheima, sjái híbýlin sem þeir gera sér í klettum. En hér voru engir álfar á ferð heldur menn sem reistu munka- og nunnuklaustur, kirkjur og aðrar vistarverur í klettum. Hér hafa kristnir menn tekið Jesús á orðinu og byggt kirkju sína ekki aðeins á kletti heldur í kletta.
Í Göreme er hægt að flækjast daglangt og skoða fagurskreyttar bergkirkjur og undrast við hvert fótmál. Undrunin var sambærileg við þá sem ég naut þegar ég skoði píramíðana í Kaíró.
Klaustrin í Göreme voru stofnuð og byggð á níundu öld þótt elsta kirkjan þar sé frá sjöttu öld. Inni í litlum kirkjunum eru fagurgerðir bogar og stundum allir veggir málaðir myndum úr lífi Jesús. Engin leið er að lýsa verunni í Göreme – eina leiðin er að drífa sig á staðinn.
Eftir heimsókn í þjóðgarðinn héldum við til Pasabag í Kappadókíu og undruðumst enn yfir landslaginu. Nú sáum við ekta álfaborgir sem stóðu uppá háum klettum og líktust helst afrískum strákofum. Svæðið er kallað Dalur álfastrompanna.
Þessir dagar með ferðahóp Friðriks G. Friðrikssonar voru afar góðir. Við gistum á hóteli og fórum á ekta tyrkneskt kvöld. Einnig er hægt að leigja sér herbergi í inngröfnu berghóteli sem er jafnframt safn sem innréttað hefur verið í eina klettaborgina. Í Kappadókíu ferðaðist ég neðanjarðar um stund, skoðaði listaverk ristuð og máluð í bergkirkjur og skaut kolli út um álfastromp og fylgdist með tyrknesku tungli líða yfir himin.