Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Tyrkland 08. - 18. október

Aukaferð til Tyrklands
Kemer (nálægt Antalyu) í Tyrklandi  8. okt.- 18.okt.  2011



Gisting:

Nafn :Viking Star hotel Heimilisfang :Kemer   Símanúmer :  00 90 242 352 2700 Faxnúmer :  00 90 242 352 2690 Vefsíða :   www.vikingturizm.com      Stutt lýsing : lúxus 5 stjörnu hótel   Okkar mat :    óvenju góður matur  Stjörnugjöf : góðar 5 stjörnur   Hæðir : 3 Lyfta :   já Fjöldi íbúða : 198  Staðsetning:  í miðbænum  Þjónusta :  Bar : já   Fæði :  allt innifalið (all inclusive)  Hárþurrka : já   Loftkæling : já  Veitingastaður : já   Gestamóttaka : já   Hjólastólaaðgengi : já Sími : já  Sundlaug :  já Öryggishólf :já   Sjónvarp : já   Tækjasalur : já

Gott að vita:
Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson

Erfiðleikastig:
Þessi ferð er ekki erfið, nema að keyrslan í 2 daga ferðinni tekur svolítið á..   Gjaldmiðill :
Ný tyrknesk líra TRL sem er nýkomin í staðinn fyrir 1 milljón gamalla líra og jafngildir ca. Kr 90 
Greiðslukort : Það er hægt að greiða með kreditkortum /debit kortum, í  hraðbönkum  er hægt að taka út peninga   (muna eftir leyninúmeri !)
Klæðnaður:
Það getur orðið nokkuð heitt á þessum tíma og léttur klæðnaður viðeigandi, stuttbuxur og léttir og þægilegir (göngu)skór. Taka ber með peysu fyrir fjallaferðina. Það er nóg að vera “casual” klæddur á veitingastöðum. Ekki mæta á stuttbuxum eða sundskýlum í kvöldmatinn ! Læknisþjónusta :
 Það er læknaþjónusta á hótelinu
Ónæmisvarnir :
Ekki nauðsynlegar.   Rafmagn :  220 – 240 volt Tímamismunur:
Bæta þarf 2 tímum við íslenska tímann (vetrartími).  Vegabréfsáritun :
Ekki nauðsynleg.
Verslun :  Verðlag er yfirleitt mjög hagstætt. 
Veðurfar :  Venjulega eru mestu hitarnir ekki á þessum tíma, en það getur samt orðið heitt  
Þjónusta Vita :  Fararstjórinn tekur á móti hópnum á flugvellinum í Antalya.

Eftirfarandi eru kaflar úr Morgunblaðsgrein Gunnars Hersveins heimspekings þann 12. apríl 2007 um Kappadókíu:
Kappadókía var fjölþjóðlegt svæði því margir leituðu þar athvarfs: fólk frá Palestínu og öðrum löndum á flótta undan Rómverjum, múslimum og mongólum. Í Kappadókíu var byggður grunnur að fyrsta kristna söfnuðinum í heiminum. Íbúar sem áður tilheyrðu grískum trúarbrögðum, rómverskum og gyðingdómi reistu híbýli sín í klettum og grófu neðanjarðarborgir til að flýja í undan óvinum og nýta þegar kalt var að vetri til. Vitað er að Páll postuli kom á ferðum sínum um heiminn til Kappadókíu og stofnaði söfnuð.
Tildrög ferðar minnar í Kappadókíu eru þau að ég hitti Friðrik G. Friðriksson fararstjóra á hóteli í Miðjarðarhafsborginni Antalíu og fékk að slást í för með hópnum hans. Friðrik telur Kappadókíu vera eitt best varðveitta og merkilegasta leyndarmál ferðaþjónustunnar.
Næsta dag héldum við í Göreme-þjóðgarðinn í Kappadókíu sem jafnframt er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er líkt og að maður sjái inn í álfheima, sjái híbýlin sem þeir gera sér í klettum. En hér voru engir álfar á ferð heldur menn sem reistu munka- og nunnuklaustur, kirkjur og aðrar vistarverur í klettum. Hér hafa kristnir menn tekið Jesús á orðinu og byggt kirkju sína ekki aðeins á kletti heldur í kletta.
Í Göreme er hægt að flækjast daglangt og skoða fagurskreyttar bergkirkjur og undrast við hvert fótmál. Undrunin var sambærileg við þá sem ég naut þegar ég skoði píramíðana í Kaíró.
Klaustrin í Göreme voru stofnuð og byggð á níundu öld þótt elsta kirkjan þar sé frá sjöttu öld. Inni í litlum kirkjunum eru fagurgerðir bogar og stundum allir veggir málaðir myndum úr lífi Jesús. Engin leið er að lýsa verunni í Göreme – eina leiðin er að drífa sig á staðinn.
Eftir heimsókn í þjóðgarðinn héldum við til Pasabag í Kappadókíu og undruðumst enn yfir landslaginu. Nú sáum við ekta álfaborgir sem stóðu uppá háum klettum og líktust helst afrískum strákofum. Svæðið er kallað Dalur álfastrompanna.
Þessir dagar með ferðahóp Friðriks G. Friðrikssonar voru afar góðir. Við gistum á hóteli og fórum á ekta tyrkneskt kvöld. Einnig er hægt að leigja sér herbergi í inngröfnu berghóteli sem er jafnframt safn sem innréttað hefur verið í eina klettaborgina. Í Kappadókíu ferðaðist ég neðanjarðar um stund, skoðaði listaverk ristuð og máluð í bergkirkjur og skaut kolli út um álfastromp og fylgdist með tyrknesku tungli líða yfir himin.   


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar