Beint í leiðarkerfi vefsins.
Bankar og greiðslukort
Í stórborgum Kína er auðvelt að komast í hraðbanka og þeir eru oft á hótelum. Gott er að hafa ávallt eitthvað reiðfé á sér og láta kortið aldrei úr augsýn þegar greitt er. Hægt er að skipta erlendum gjaldeyri í gestamótökum hótela.
Drykkjarvatn
Drekkið ekki kranavatn í Kína. Auðvelt er að nálgast drykkjarvatn á flöskum. Tvenns konar verð er gjarnan á vatni. Eitt fyrir ferðamenn og annað fyrir heimamenn.
Flug og farangur
Munið að láta innrita farangur alla leið til Shanghai við innritun í Leifsstöð. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á farangri sínum á áfangastað og að koma honum í rútur.
Leyfilegur farangur í flugi er 20 kg farangur á mann, bæði í millilandaflugi og í innanlandsflugi í Kína. Reglur um handfarangur er að finna hér.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn í Kína er YUAN. 10. júli 2010 er gengið svona:
100 krónur = 5.2 Yuan
100 Yuan = 1900 krónur
Skoðið gengið á hér.
Læknisþjónusta
Auðvelt er að fá læknisþjónustu í Kína, gætið þess að hafa öll lyf meðferðis. Góð regla er að hafa lyf ávallt í handfarangri. Gangið úr skugga um að allar tryggingar séu í lagi fyrir brottför.
Ónæmisvarnir
Hafið samband við lækni eða heilsugæslu. Einnig má fá allar upplýsingar hjá Ferðavernd tímapantanir í síma 535-77009.
Sími
Ef hringt er frá Kína til Íslands þarf að velja 00354 á undan íslenska númerinu. Landsnúmerið fyrir Kína er 0086. Íslenskir farsímar virðast virka á helstu ferðamannastöðum Kína, en athugið að það getur verið mjög dýrt að hringja milli heimsálfa. Leitið upplýsinga hjá ykkar símafyrirtæki.
Tímamismunur
Kínverska klukkan er 8 klst. á undan okkar tíma. Þegar klukkan er 9 að morgni á Íslandi er klukkan 17 síðdegis í Kína.
Veður og hitastig
Í þessari ferð eru fjórir megin áfangastaðir og langt á milli þeirra:
| September | Meðalhiti | Hæst | Lægst |
| Shanghai | 23.6 | 27.4 | 20.5 |
| Guilin | 20.7 | 25.8 | 17.1 |
| Zhangjiajie | 24.5 | 28.7 | 20.6 |
| Peking | 19.4 | 25.7 | 13.8 |
Skoðið veðrið í Kína hérna.
Vegabréfsáritun:
Allir þurfa að hafa vegabréf sem gildir í 6 mánuði fram yfir heimflugsdag. Einnig er skylt að hafa vegabréfsáritun sem hver og einn sækir um í kínverska sendiráðinu, Víðimel 29 í Reykjavík.
Afgreiðslutími: 09:00-11:30 (Mán, miðv. föstud.)
Sími: 552 6751
Vefsíða: is.china-embassy.org.
Á heimasíðunni, sem er á ensku, er að finna umsóknareyðublöð, en þau er einnig hægt að nálgast á skrifstofu sendiráðsins. Sendiráðið tekur sér 4 virka daga til að afgreiða umsókn og það kostar 9.000 krónur. Ef fólk þarf skemmri tíma, rukka Kínverjarnir 3.000 aukalega fyrir það
Öryggi
Kína er almennt talið öruggt ferðamannaland, en á betra að fara með gát. Geyma reiðufé og verðmæti innan klæða og sem mest í öryggishólfum hótelanna s.s. vegabréf, farseðla og önnur verðmæti. Góð regla er að hafa ávallt á sér nafnspjald hótels og símanúmer fararstjóra og einnig ljósrit úr vegabréfi.