Beint í leiðarkerfi vefsins.
Merking farangurs
Merkið töskurnar á hefðbundinn hátt með heimilisfangi á Íslandi. Áður en farið er frá hóteli að skipi merkja allir töskurnar sínar með sérstökum miða með nafni, heimilisfangi, klefanúmeri á skipinu og brottfarardegi skipsins. Miðarnir fylgja ferðagögnum og límast um handfang ferðatösku (svipað og flugfélög nota).
Innritun og afgreiðsla um borð
Við innritun þarf að hafa tilbúin ferðagögn, vegabréf og kreditkort. Skipafélagið tekur afrit af kreditkorti.
Vikapiltar taka við töskum við skipshlið og fara með að dyrum klefans en hver og einn gætir síns handfarangurs. Eftir að töskur hafa verið afhentar við skipshlið, ganga farþegar inn í afgreiðslusal og þurfa að hafa alla pappíra útfyllta, sem fylgja ferðagögnum frá skipafélaginu.
Við innritun í skipið fá farþegar afhent lykilkort. Á kortinu kemur fram í klefanúmer og upplýsingar um sæti og veitingasal o.fl.
Peningar
Ekki eru notaðir peningar um borð. Fyrir drykki og annað, sem verslað er um borð er kvittað fyrir, en verslað er með svokölluðu „sail and sign" korti. Haldið afritum til haga. Við innritun gera farþegar grein fyrir hvernig skal greitt (sjá meðfylgjandi eyðublað í ferðagögnum). Einfaldast er að nota greiðslukort, en þá fer uppgjör þannig fram að síðasta kvöldið kemur reikningur með frumriti af öllum sölunótum og kvittun fyrir úttekt á greiðslukortinu inn í káetu farþega. Ef eitthvað þarf að leiðrétta, er það gert hjá gjaldkera strax næsta morgun - áður en farið er frá borði. Einnig er hægt að greiða með peningum hjá gjaldkera skipsins í lok ferðar.
Athugið að 15% þjónustugjald leggst á reikninginn, sem er í bandaríkjadölum.
Farið frá borði
Gera þarf upp reikninginn lokakvöldið, áður en komið er til síðustu hafnar.
Þjórfé til eftirfarandi aðila er innifalið í verði (búið að greiða fyrir hópinn): Yfirþjónn í matsal, þjónar sem þjóna ykkur til borðs í matsalnum og herbergisþjónar.
Lokakvöld siglingar eru töskur settar töskurnar fram á gang, nema handfarangur. Töskur þurfa að vera komnar fram fyrir kl. 23:00. Sérstök merkispjöld verða afhent farþegum til að setja á töskurnar. Vikapiltar sjá um að bera töskur frá skipi.
Klefar
Í öllum klefum er setkrókur, baðherbergi, sófi og snyrtiborð, hárþurrka, ísskápur og sjónvarp.
Rafmagn er 110 og 220 volt.
Fréttabréfið SEAPASS
Kemur í klefann á hverju kvöldi með ýmsum hagnýtum upplýsingum s.s. dagskrá dagsins,komu- og brottfarartíma , upplýsingar um áfangastað, klæðnað dagsins og ýmislegt fleira.
Klæðnaður
Casual - frekar sportlegur klæðnaður
Dömur: Pils, buxur, blússa, peysa.
Herrar: Sportleg skyrta og síðbuxur, þarf ekki bindi.
Informal
Dömur: Kjóll, dragt, buxnadragt
Herrar: Jakki og buxur, má sleppa bindi, ef vill.
Formal
Dömur: Kvöldkjóll, síður eða stuttur, coctail-dress eða spariklæðnaður með buxum.
Herrar: Smóking eða dökk föt með skyrtu og bindi.
Innifalið:
Fullt fæði og afþreying um borð
Þjórfé eins og fram hefur komið
Ekki innifalið:
Drykkir
Ferðir á áfangastöðum í landi
Vörur í verslunum
Sérstök þjónusta, s.s. nudd, hárgreiðsla o.fl. í heilsulindinni
Á öllum skipum Royal Caribbean Cruise line eru sérstakir veitingastaðir þar sem gestir þurfa að panta borð fyrirfram og greiða þjónstugjald. Nánari upplýsigngar fást um borð.
Önnur þjónusta um borð:
Internetaðgangur - gegn gjaldi
Þvottur og hreinsun - gegn gjaldi
Hraðbankar
Herbergisþjónusta
Opin allan sólarhringinn.
Máltíðir
Í fréttabréfi skipsins eru auglýst hvar og hvenær matur er borinn fram, en aðalmáltíðir eru þrjár; morgun-, hádegis- og kvöldverður. Að auki er hægt að fá árbít eldsnemma og eftirmiðdagskaffi er til reiðu síðdegis. Miðnæturhlaðborð er suma daga. Á kvöldin er sætaskipan ákveðin fyrirfram og gengur hver að sínu borði öll kvöld.
Læknisþjónusta
Um borð í skipinu er læknir og hjúkrunarfræðingur. Þurfi einhver þarf á slíkri þjónustu að halda skal athuga að taka kvittanir fyrir útlögðum kostnaði, til að fá endurgreiddan af tryggingum. Athugið að þar sem um einkarekna læknisþjónustu er að ræða um borð endurgreiðir Tryggingastofnun ríkisins ekki lækniskostnað, einungis kortatryggingar. Athugið þó vel skilmála kortafyrirtækjanna.
Öryggishólf
Öllum er ráðlagt að nota öryggishólf um borð.