Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Tenerife 7. febrúar - 21. febrúar

 

Nú er ferðinni heitið til Afríku þó eyjan tilheyri núna Spáni.  Fyrir valinu verður stærsta eyjan af Kanaríeyjum, Tenerife, en hún hefur upp á að bjóða mest af sögu, landslagi og besta veðrið á þessum árstíma. Engar moskítóflugur að angra mann né geitungar.   Eyjunni er skipt í tvennt af stærsta fjalli Spánar (3718 m) og er veðurfarið mildara og stöðugra á syðri  hluta eyjunnar á þessum árstíma. Þess vegna verður búið við suðurströndina á lúxus 4 stjörnu hóteli, hótel Noelia Sur (www.dreamplacehotels.com/en/hotel-noelia-sur/). Hótelið er vel staðsett rétt hjá „Laugaveginum“  Þar sem evran er dýr verður allt fæði innifalið, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur ásamt drykkjum (vín og vatn). Þegar við ferðumst í skoðunarferðum, þá fáum við nestispakka með drykk og ávöxtum frá hótelinu ef við missum af hádegismatnum. Þannig að það er hægt að komast af án þess að eyða miklum peningum. Þó að eyjan sé sú stærsta af Kanaríeyjunum þá eru ekki nema 75 km á milli enda, þannig að keyrsla er ekki mikil í skoðunarferðum. Nú að venju verður ekki farið eldsnemma af stað á morgnana heldur í rólegheitum eftir morgunverðinn. Hótelið okkar er mjög miðsvæðis og því nóg að gera á frjálsu dögunum. Þetta er ekki erfið ferð og veðrið er venjulega mjög notalegt á þessum stað í mars.

Á þessum tíma má búast við sól og hlýju veðri. Hægt er að bóka ferð án skoðanaferða og kaupa einstakar ferðir ef pláss leyfir.

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar