Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Ekvador - Galapagos

Fólkið
Rúmar 13 milljónir manna af mörgum þjóðernum búa í Ekvador og eru frumbyggjar (indíánar) ríflega helmingur íbúanna, af meira en tug þjóða eða þjóðarbrota. Kitsjúar eru þeirra fjölmennastir, svo milljónum skiptir, en Cofanar fámennastir eða um 600 manns. Borgir og bæir eru margir.  Fjölmennastar teljast Guyaquil með um 3 milljónir íbúa og höfuðborgin Quito með tæplega 2 milljónir og er elsti hluti hennar á heimsminjaskrá SÞ, með glæsibyggingum nýlendutímans. Stjórnarfarið er þingbundið lýðræði með afar valdamikinn, þjóðkjörinn forseta, ekki ólíkt bandarísku stjórnkerfi.

Efnahagurinn
Ekvador skipar sér meðal hinna betur stæðari ríkja Suður-Ameríku. Landið er mjög frjósamt og þar er víðtækur landbúnaður og ræktun, með búsetu allt upp í 4.000 m hæð. Mestar tekjur hafa Ekvadormenn af olíuvinnslu, rósa- og bananaútflutningi, fiskveiðum, einkum rækjuveiðum, og skógarnytjum. Ferðamennska og náttúruvernd sækir mjög á og einnig er leitað eftir nýrri tækni til að auðvelda gang efnahagslísfsins. Landið er mjög skuldsett gagnvart stórum alþjóðastofnunum. Raforka er aðallega framleidd með vatnsafli en jarðhiti er í landinu og hefur hann lítt verið nýttur eða kannaður.

Menning
Margvísleg hönnun, myndlist og hámenning, m.a. byggð á stjörnumælingum og gangi himintungla, hafa einkennt fjölmörg samfélög Ekvador allt frá því nokkur þúsund árum fyrir Krist. Samfélag Inka stóð stutt við í Ekvador, frá 1463 til 1534, og yfirráð þeirra lituðu mjög sögu landsins en koma spænskra landvinningamanna með kristna trú varð stærsti vendipunktur sögunnar á 16. öld.  Landið öðlaðist endanlega sjálfstæði 1830. Saga þess síðan var lengi átakasöm en Ekvador hefur undanfarið þokast æ lengra til lýðræðis og betri efnahags. Á síðustu öldum hafa innflytjendur sest að í landinu og þangað hefur komið allmargt fólk ýmissa Evrópuþjóða og frá Líbanon, Bandaríkjunum og ríkjum nokkrum Suður-Ameríkju. Á tímum þrælaflutninga komu blökkumenn frá Afríku til landsins.

Menning er fjölbreytt og öflug í landinu og ber bæði fornan svip og nýjan; allt frá leirmunagerð og listvefnaði til nútíma málverks, bókmennta, þjóðlegrar tónlistar og óperu. Handverk er afar útbreitt og nýtur virðingar enda langar hefðir að baki í þeim efnum. Mikill áhugi er víða um heim á menningu Ekvador, jafn litrík og lífleg og hún er.

 

Hagnýtar upplýsingar:

Hitastig sveiflast frá +/-5°C í mikilli hæð upp í 20-25°C í Quito ef ekki rignir og 30-35°C í frumskóginum en 25°C á heiðskírri nótt þar. Hæðaraðlögun gengur oftast vel - fari menn sér hægt í fyrstu, borði í hófi, drekki alkóhól mjög í hófi en þeim mun meira af öðrum vökva og gæti að því að sofa amk. 8 klst. á sólarhring.

Gæta verður vel að sólinni sem er afar sterk og skín úr hæð, nærri lóðrétt. Til dæmis er gott að nota höfuðfat sem allra mest og liggja aðeins stutt í einu í sólbaði ef blessunin skín.  Mars er venjulega hlýr mánuður og ekki líkur á stórrigningum.  Þó má búast við rigningarskúrum. Stígvél verða til reiðu í frumskóginum og hægt að kaupa regnslár, poncho á staðnum.

Loftslag: 
Loftslag sem á vori: Quito og dalirnir milli fjallshryggjanna, þ.e. Otavalo.

Svalt vetrarloftslag:  Svæðin hátt í Andes fjöllunum.

Hlýtt hitabeltis loftslag: Galapagos og regnskógar Amazon

Klæðnaður sem mælt er með:

Að morgni
Léttur, sportlegur klæðnaður er góður á daginn. Léttur regnfatnaður nýtist vel í skúraveðri (vatnsþéttar regnslár, ekki Goretex, er tilvalið).

Á kvöldin
Snyrtilegur klæðnaður - þarf ekki spariföt.

Að nóttu til
Léttar langerma bómullarskyrtur/blússur og peysa eða fóðraðir vindjakkar er æskilegt fyrir svalar nætur hálendisins.

Útbúnaðarlisti - Farangur má vera 20 kg: Venjulegur ferðafatnaður eins og væri verið að fara í sumarferð til Evrópu. Auðvelt er að láta þvo af sér milli ferða til og frá Quito (á hótel Sebastian).

Myndatökur: Muna eftir að sýna fólki tillitssemi við myndatökur. Oft er gott að spyrja: Permiso?

Sé svarið nei - ber að virða það.

Og ef fólk vill peninga eftir á, verður að gera það upp við sig (50 sent eða 1 dollar) en er í sjálfu sér hvimleiður siður þó svo að á móti komi þörf fólks fyrir fé.

Öryggi: Allt í lagi er að synda þar sem okkur er sagt að það sé óhætt. Hvorki krókódílar né fiskar ráðast að manni við okkar aðstæður.

Við mælum með að sýna sem minnst bert hold inni í skóginum (skordýr yfirleitt ekki vandamál annars staðar) og nota flugnafæluefni (með DEET efni). Mest er um bit í ljósaskiptum og sums staðar á nóttunni.

Yfirleitt er lítið um áreiti (þó stundum betlarar) eða þaðan af alvarlegri atburðum

í borgum og bæjum. Engu að síður viljum við að fólk haldi hópinn (lágmark 2-3) og fari um fjölfarnar slóðir, noti sérmerkta leigubíla (ræða verð fyrirfram - mælt í fáeinum dollurum - 10-15% tips) og sé ekki á ferli seint á kvöldin (t.d. eftir kl 23). Ekki nota lausar axlartöskur eða flagga veskjum og skartgripum (helst að skilja skart eftir heima) og verið heldur með eins, fimm og tíu dollar seðla í vösum eða innáveskjum.

Greiðslukort: Ganga í betri sérverslunum og Hraðbankar eru víða. Til siðs er að prútta á mörkuðum en ekki í verslunum.

Öryggishólf: Á hótelinu í Quito leigjum við eitt sameiginlegt öryggishólf fyrir allan ferðatímann og fararstjóri kemst í það þegar þarf. Á hótelinu er alltaf hægt að skilja farangur eftir milli ferðaleggjanna þriggja

Vegabréf: Hafa með tvö ljósrit úr vegabréfi, sem þurfa að vera með í innanlandsflugum.

Þjórfé: Er algengt (almennt 10-15%) og hvað okkur varðar þá snýr það helst að leiðsögumanni, bílstjóra, áhöfn báta o.s.frv. Fararstjórar stjórna því sem mest og safnar saman eða leiðbeinir. Við tipsum ekki fyrir sameiginlegar máltíðir, fararstjóri sér um þau mál. Gera má ráð fyrir amk. 100 USD í þjórfé fyrir alla ferðina á mann.

Internet: Netkaffihús, sum hótel (m.a. Sebastian). Amerískt símkerfi.

Ónæmisvarnir: Vinsamlegst gangið úr skugga um að þið hafið fengið þær sprautur sem þarf fyrir þessa ferð. Bendum t.d. á göngudeild Sóttvarna í Álfabakka 16, sími 585 1300.

Aukalyf: Ibu(pró)fen við höfuðverk og breiðvirkt sýklalyf við alvarlegri magasýkingu (t.d. síflox). Látið fararstjóra vita um öll veikindi - líka minni háttar. Vinir okkar kunna ýmis ráð.

Hæðaveiki: Höfuðborgin Quito er í 2.700 metra og skv. Reynslu undanfarinna hópa hefur það ekki valdið fólki vandræðum. Bendum þó á léttar höfuðverkjatöflur, sem geta komið sér vel. Tvisvar er ekið upp í 4000 metra hæð, en það tekur það stuttan tíma og fólk ætti ekki að finna fyrir því.

Að lokum má geta þess að ferðin er skipulögð í samráði við ferðaskrifstofuna Nuevo Mundo, sem hefur séð um ferðir Íslendinga til Ekvador í mörg ár.  Heimasíðan er  www.nuevomundotravel.com.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar