Madeira er gjarnan kölluð eyja hins eilífa vors eða garðurinn fljótandi. Eftir aðeins fimm klukkustunda beint flug ertu kominn til þessarar paradísareyju,u.þ.b. 600 km. vestur af ströndum Afríku. Hér er allt annar heimur. Þessi stórbrotna, blómstrandi eldfjallaeyja nýtur hitabeltisloftslags og hefur mikið aðdráttarafl. Friðsæld, fallegt landslag og fjölbreytt gróðurfar auk einstakrar veðurblíðu heillar og laðar ferðamenn víða að. Madeira er tiltölulega lítil portúgölsk eyja, aðeins rúmlega 800 ferkílómetrar að stærð, en saga hennar er afar forvitnileg. Madeira og nálægu eyjarnar Porto Santo og Desertas eyjar voru miðstöð hins mikla landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala fyrr á öldum og drógu að sér sjómenn í landaleit og drekkhlaðin sæför frá öllum heimsálfum. En nú er öldin önnur og Madeira orðin að miðstöð skútusiglingamanna og náttúruunnenda. Fjölskrúðugt mannlíf er í höfuðborginni Funchal og hinum fjölmörgu þorpum inni á eyjunni þar sem lífið gengur í rólegri takti og andrúmsloftið er án nokkurs stress.
Höfuðborgin Funchal
Funchal sem stendur við skínandi strendur Atlantshafsins er fallegur, blómum skrýddur bær með um 70.000 íbúa. Bakgrunn bæjarins mynda tignarleg 1200 m. há fjöll. Þessi gamla nýlenduborg er lifandi og skemmtileg, víða eru steinlagðar gangstéttir og þröngar götur, endurnýjuð gömul hús í bland við kaffihús og glæsta veitingastaði. Í grasagörðunum fjölmörgu getur að líta orkídeur, kaktusa og hin víðfrægu drekatré. Funchal er nútímaborg með þroskað yfirbragð.
Verslun
Í Funchal er að finna flestar þær verslanir og verslanakeðjur sem við þekkjum eða könnumst við. Nýjasta verslunarmiðstöðin heitir „Dolce VITA" sem staðsett er í miðbænum. Í miðbænum eru einnig minjagripaverslanir og ýmiss konar markaðir þar sem hægt er að nýta viðskiptahæfileika sína og semja um vöruverð á staðnum.
Madeira er fallegur staður og skemmtilegur heim að sækja með fjörmikið og fjölbreytilegt mannlíf.
Hótelið sem við búum á, Hotel Four Views Baia 4* (www.four-views-baia.com ) , er í göngufæri við gamla bæinn í Funchal og eins verslunarmiðstöðina. Fyrir þá sem nenna ekki að ganga þá er hótelið með shuttle sem keyrir í bæinn. Við verðum með sjávarsýn frá herbergjunum og svalir. Hálft fæði, morgunmatur og kvöldmatur er innifalið og eins hádegismatur í öllum fimm skoðanaferðunum. Auðvitað er ekki farið eldsnemma af stað í skoðanaferðir. Á kvöldin sér hótelið um skemmtanir.
Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.
Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.