Beint í leiðarkerfi vefsins.
Konungsríkið Thailand er einn helsti gimsteinn suðaustur Asíu. Landinu má líkja við mystíska og exótíska paradís, enda býður Taíland upp á hvítar sólríkar sandstrendur, regnskóga, fjalllendi, eyjar, mikið dýralíf, fossa, pálmatré, stórfengleg hof, stórborgir, ríka menningu og síðast en ekki síst einstaka gestrisni.
Það er heldur ekki að ósekju að talað er um Thailand sem „Land brossins" því þar býr broshýrt, vingjarnlegt og hjálpsamt fólk upp til hópa. Kurteisi er íbúunum í blóð borin sem þýðir að tillitssemi og hógværð er þeirra aðalsmerki. Heimamenn forðast því bæði gagnrýni og ögranir og eru miklu fremur fólk málamiðlana fremur en átaka.
Thaiand hefur verið sjálfstætt ríki síðan árið 1238 og er höfuðborgin Bangkok. Íbúar Thailands eru ríflega 65 milljónir og eru langflestir eða um 95% búddatrúar. Landið er 514 þúsund ferkílómetrar að stærð og er um 28% af því ræktað land. Flestir eða um 49% íbúanna stunda landbúnað, 14% vinna við iðnað og 37% starfa í þjónustugeiranum. Gjaldmiðill Thailendinga heitir batt.