Beint í leiðarkerfi vefsins.
Dagur 2: Bangkok
Það er margt hægt að gera í stórborginni, sigla á „klongerne" sem svo kallast, en það eru hliðarár sem renna í gengnum Bangkok. Þá má fara á markaðinn Pratunam, sem er aðeins í 15 mínútna göngufæri frá hótelinu. Það er líka hægt að nota daginn til að skoða hina mörgu menningarfjársjóði sem eru í Bangkok. Möguleiki er að panta hálfsdags ferð til hinna þriggja stóru mustera, sem eru að finna í Bangkok: Wat Phra Keo með gullna þakinu og smaragð-Búddastyttunni, Wat Po með styttunni af liggjandi 45 metra löngum Búdda, og í Royal Grand Palace þar sem saga Taílands er rakin í stórum dráttum.
Gisting: Century Park.
Dagur 3: Bangkok - Koh Tao
Dagurinn byrjar snemma því hópurinn verður sóttur í anddyri hótelsinns um kl. 05:00 að morgni. Keyrt er til rútustöðvarinnar í bænum sem er við Khao San Road. Rútan leggur af stað kl. 06:00 með stefnu suður til strandbæjarinns Chumporn, þar sem farið er með bát til Koh Tao, sem er fyrsta eyjan sem sótt verður heim. Rútuferðin tekur um sex og hálfan tíma. Rúturnar eru með loftkælingu og sætin eru þægileg. Möguleiki er á því að kaupa drykkjarvörur á leiðinni. Um er að ræða almenningsvagn og því er ekki leiðsögumaður í ferðinni.
Ferjan er svokölluð „katamaran" eða tveggja skrokka ferja, sem siglir til Koh Tao. Siglingatíminn er áætlaður einn og hálfur tími og laggst verður höfn í Koh Tao um kl. 14.30. Þegar komið er í land þurfa gestir sjálfir að koma sér til Koh Tao Coral Grand, sem er eitt af betri hótelum á eyjunni og liggur á miðri Sairee Beach ströndinni. Þar liggja um 40 kofar eða smáhýsi, sem kallast „sailor cottages" eða sjómannahýsi og byggð hafa verið í hálfhring. Þeir eru allir búnir nútíma þægindum á borð við góð rúm, baðherbergi, svalir eða pall, loftkælingu og minibar. Coral Grand Resort er einn af fáum stöðum á eyjunni sem er með sundlaug og eigin köfunarbúð og veitingastað.
Gisting: Koh Tao Coral Grand.
Dagur 4-7: Koh Tao
Koh Tao hefur í mörg ár verið með vinsælustu eyjum í Taílandi, aðallega vegna þess að þar eru kóralrif undan ströndinni sem iða af lífi og litum. Líka vegna þess að eyjan er lítil með mörgum kókóspálmum, fallegum ströndum og litlum smáhýsum nálægt ströndinni. Stemmning og andrúmsloft á eyjunni er afskaplega afslappað og rólegt. Allt snýst um hafið, sem býður upp á ótrúlega fegurð til að synda, snorkla og kafa. Einnig framreiða heimamenn hinar ýmsu sjávarafurðir, sem er heil upplifun fyrir þá, sem hafa dálæti á sjávarmeti. Þegar byrjar að húma að kvöldi breiðist ilmur frá mörgum grillstöðum þar sem fiskur í sítrónusósu er sérréttur margra veitingamanna.
Gisting: Koh Tao Coral Grand.
Dagur 8: Koh Tao-Koh Phangan
Nú er kominn tími til að yfirgefa Koh Tao og heimsækja Koh Phangan eyju sem er aðeins stærri en Koh Tao. Hraðferjan siglir kl.15:00. Sjálfir eiga gestirnir að koma sér niður að höfn með aðstoð frá starfsfólki hótelsins. Mæting er hálftíma fyrir brottför. Eftir um klukkutíma siglingu er komið til Koh Phangan. Þar er tekinn leigubíl eða lítil rúta á sanngjörnu verði til Thong Nai Pan Beach. Ökuferðin tekur um 45 mínútur. Gist er á Koh Phangans, besta gististað Panviman Resort. Vistarverur eru smáhýsi með loftkælingu, svölum eða palli, síma, minibar og baði.
Á Panviman Resort er mjög góður veitingarstaður, bar og sundlaug og frá sundlauginni er frábært útsýnir yfir flóann.
Gisting: Panviman Resort.
Dagur 9-11: Koh Phangan
Koh Phangan er oft líkt við Koh Samui eins og hún leit út fyrir 12-14 árum síðan, áður en hinir litlu skökku kofar hurfu sjónum og nýmóðins hótel komu í staðinn. Koh Phangan hefur aðallega verið staðurinn sem bakpoka fólkið heimsækir því þeir hafa ströndina og geta farið í göngur upp í frumskógarklædd fjöllinn og baðað sig í fossum og ám. Þrátt fyrir að fjöldi ferðamanna hefur aukist og fleiri smáhýsi hafa verið byggð þá er samt Koh Phangan sú eyja sem fæstir ferðamenn koma til af þeim þremur eyjum sem heimsóttar eru í ferðinni. Hér er ekkert stress, sjórinn er krystaltær og strendunnar hvítar með ósnertri náttúru. Heil 70% af Koh Phangan er ennþá vaxinn frumskógargróðri og viltri náttúru.
Gisting: Panviman Resort.
Dagur 12: Koh Phangan-Koh Samui
Eftir morgunmat er kominn tími til að yfirgefa Panviman Resort. Ekið er til baka til Thong Sala Pier, þar sem hópurinn tekur ferjuna kl. 11.00. Mæting er hálftíma fyrir brottför. Þessir 20 km til Koh Samui taka um 45 mínútur. Við komu til Koh Samui er best að taka leigubíl til Chaweng Beach Noi. Gist verður á Fair House Resort, einu af sex hótelum þessa litla fjölskylduvæna bæjar Chaweng Noi, sem státar af flottri strönd með fínum púðursandi.
Gisting: Bandara Resort.
Dagar 13-15: Koh Samui
Gott er að njóta þeirra frábæru stranda, sem eru á eyjunni og möguleika, sem þar eru í boði, til dæmis má hugsa sér svifflug frá hraðbát og ferðalaga um trópíska náttúru á fílsbaki. Svo er alltaf hægt að falla fyrir þeim mörgu freistingum, sem Chawengs-aðalgatan hefur upp á að bjóða því þar keppast bæði litríkar verslanir og ákafir sölumenn um hylli og peninga ferðamanna.
Gisting: Bandara Resort.
Dagur 16: Koh Samui - Bangkok
Nú er kominn tími til að yfirgefa þessa fallegu eyju. Ferðalangar verða sóttir á hótelið og þeim ekið út á flugvöll þar sem flogið verður til Bangkok með Bangkok Airways.
Innifalið í verði: