Beint í leiðarkerfi vefsins.
Aðventuferðirnar 2009 verða tvær:
21. nóvember - 28. nóvember
28. nóvember - 5. desember
Trier er elsta borg Þýskalands og bera þar hæst minjar frá dögum Rómverja, en þeir settust þarna að um kristsburð. Það voru einmitt þeir sem kynntu vínviðinn við Mósel og síðan hefur Móseldalurinn verið eitt merkasta vínræktarsvæði Norður-Evrópu.
Það er löng hefð fyrir jólamarkaði í Tier og mikil stemningin þar. Gamli bærinn er tiltölulega lítill og að mestu varðveittur fyrir fótgangandi, sem gerir hann enn meira aðlaðandi og auðveldan yfirferðar. Allar helstu verslanakeðjur Þýskalands eru til staðar.
Fyrir utan íslenska fararstjórn eru innifaldir á glæsilegu hóteli (sem er rétt við göngugöturnar) ríkulegir morgunverðir (hlaðborð) auk aksturs og flugvallaskatta, fimm kvöldverðir með fararstjóra á margvíslegum veitingastöðum m.a.skoðunarferðir til Luxemburg og hins forna handverksbæjar Monschau, einnig er farið til Bernkastel og til vínbónda með tilheyrandi vínsmökkun og kvöldmat, hrein veisla er innifalinn. Alls staðar eru jólamarkaðir.
Keyrsla er í algjöru lágmarki. Bílstjóri er hinn ljúfi Grétar Hanson.
Gist er á hótel Deutshcer Hof í Trier, sem er mjög gott þriggja stjörnu hótel þar sem hægt er að nálgast alla helstu þjónustu.
Fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson. Bílstjóri er Grétar Hansson.
Sunnudagur
Flogið til Frankfurt kl 07:35 og ekið beint til Trier og gist þar sjö nætur á glæsilegu, heimilislegu og vel staðsettu hóteli með glæsilegum hlaðborðsmorgunmat. Akstur er 230 km. Tekið verður á móti okkur með jólaglögg og kvöldmat.
Mánudagur
Borgin Trier skoðuð með fararstjóra. Jólamarkaðurinn heimsóttur. Frjáls dagur. Kvöldmatur með fararstjóra er innifalinn.
Þriðjudagur
Kl. 10.30 Keyrt til Bernkastel og Enkirch við Mið-Mósel, þar sem dýrindis vín eru smökkuð hjá þekktum vínbónda og sameiginlegur kvöldmatur í sveitinni er innifalinn. Akstur er samtals 160 km
Miðvikudagur
Kl 10.30 Keyrt til Luxemborgar, sameiginlegur kvöldmatur
Fimmtudagur
Frjáls dagur.
Föstudagur
Kl. 10:30 er keyrt til hins forna handverksbæjar, Monschau.
Laugardagur
Frjáls dagur. Kvöldmatur og ball á hótelinu.
Sunnudagur
Keyrt til Frankfurt (230km) og flogið heim.