Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þessi Ítalíuferð býður upp á skoðun helstu menningarverðmæta Ítala, en auk menningar verður drjúgum tíma varið í afslöppun. Gist verður á góðum 3ja eða 4ja stjarna hótelum með morgunverðarhlaðborði. Þó þetta sé undir venjulegum kringumstæðum ekki heitasti tíminn, má búast við hita og þess vegna eru öll hótelin með loftkælingu. Innifaldar eru 12 máltíðir með fararstjóra. Helstu staðir sem heimsóttir verða eru Rómarborg, Vatíkanið, Pompei, Capri (blái hellirinn), Flórens, Písa, Feneyjar, Gardavatn og Mílanó. Vegna mögulegs hita og verulegrar göngu er þetta tiltölulega erfið ferð.
Flogið til Milano í beinu flugi með FI 592 brottför 10:30, lent um kl 16.20 síðan keyrt áleiðis til Rómarborgar. Gist í Parma á leiðinni.Hótel San Marco (4*) 180 km.
Eftir morgunmat er keyrt til Rómar. Gist verður næstu sex nætur í Róm. Sameiginlegur kvöldmatur. Hótel Regent (http://www.hotelregentrome.com/) (4*). 462 km.
Eftir morgunmat verður farið í skoðunarferð um Róm, m.a. Forum Romanum, hringleikahúsið Colosseum. Sameiginlegur kvöldmatur.
Eftir morgunmat skoðunarferð í Vatikanið og Péturskirkju. Sameiginlegur kvöldmatur.
Eftir morgunmat verður farið í heilsdagsferð til Pompei og hádegismatur borðaður þar. Kvöldið frjálst. 2 x 241 km
Frjáls dagur í Róm.
Keyrt til Napóli og siglt til eyjarinnar Capri m.a. Blái hellirinn heimsóttur 2 x 230 km og hádegismatur snæddur þar.
Eftir morgunmat verður keyrt til Montecantini Terme nálægt Flórens þar sem gist verður þrjár nætur.Hótel Francia & Quirinale (www.franciaequirinale.it). (4*) Kvöldmatur. 327 km
Keyrt til Flórens . Skoðun á þessarri perlu Ítalíu m.a. Ufficisafnið.Sameiginlegur kvöldmatur. 2 x 48 km
Eftir hádegi haldið í rútuferð til Pisa og skakki turninn í Pisa skoðaður. Sameiginlegur kvöldverður. 2 x 53 km
Keyrt til Lido de Jessolo, strandbær rétt við Feneyjar og gist í 4 nætur.Hótel Rosanna (www.aja.it/hotel/rosanna.html) (góðar 3*). Sameiginlegur kvöldverður. 320 km
Slappað af við ströndina. Sameiginlegur kvöldmatur.
Dagsferð til Feneyja. Sameiginlegur kvöldmatur. 2x 15 km
Frjáls dagur Sameiginlegur kvöldmatur.
Keyrt að Gardavatni og gist í tvær nætur.Hótel Locanda Santa Giulia. (http://www.santa-giulia.it/pag_eng/home-page.html) (4*)Sameignlegur kvöldmatur á hóteli.
Frjáls dagur við Gardavatn. Sameiginlegur kvöldmatur
Keyrt til flugvallar Milano, Malpensa Milano með viðkomu í Mílanó. Brottför FI 593 brottför kl. 23.40 koma kl. 01:55 (343 km)
Verð: 312.500 og 49 þús aukalega fyrir einbýli.
Innifalið: Flug, flugv.skattur, gisting á góðum hótelum í 16 nætur m/morgunverði, íslensk fararstjórn, 12 kvöldverðir og tveir hádegisverðir (Pompei og Capri).
Ekki innifalið: Aðrar máltíðir en ofan greinir, aðgangseyrir að ferjubátum í Feneyjum (ca EUR 6), Vatikaninu (ca EUR 12), Pompei (ca EUR 11) og Ufficisafninu (ca EUR 12).Lestarmiðar í Róm (Metro) ca EUR 10.