Miðevrópudraumurinn 12. -25. ágúst

Miðevrópudraumurinn 12. -25. ágúst

Miðevrópudraumurinn 12.-25. ágúst

 

Í þessari ferð fá þátttakendur á silfurfati undurfagra og tilbreytingarríka náttúru en um leið höfum við það ákaflega náðugt og skemmtilegt umlukt hinum risavöxnu Ölpum, þeim þýsku, austurrísku, ítölsku og svissnesku.
Hótelin eru minnst 3 stjarna með morgunverðarhlaðborði. Við þurfum ekki að fara of snemma á fætur, skiptum sjaldan um hótel, höldum akstri í lágmarki og látum okkur líða vel. Kvöldverðir, sem eru innifaldir, eru sérvaldir af fararstjóra.
Fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson
Bílstjóri er Grétar Hansson


Ferðatilhögun:

12. ágúst fimmtudagur

Keflavik - Frankfurt með áætlunarflugi Flugleiða til Frankfurt.kl 7.25 komið kl 12:50. Keyrt til  Heidelberg  74 km
Eftir að hafa skoðað miðbæ Heidelberg borðum við á frægri stúdentaknæpu í miðborginni og gistum á Crowne Plaza 4* (www.crowneplaza-heidelberg.de)  

13.ágúst föstudagur 

  Heidelberg – Freiburg 187 km Eftir morgunverð skoðum við Heidelbergar kastala og eftir það leggjum við af stað til borgarinnar í Svartaskógi, Freiburg,  þar sem við gistum næstu 5 næturnar í hótel Stadt Freiburg 4* (http://www.hotel-stadt-freiburg.de) . Gengið um Freiburg og lært að rata. Kvöldverður í bænum með fararstjóra.

 

14.ágúst laugardagur Freiburg. 

Ævintýraferð um Svartaskóg. Kvöldverður með fararstjóra.120km

15. ágúst sunnudagur  Freiburg

Við eyðum deginum í Europark (nokkurs skonar Disneylworld).Um kvöldið snæðum við villibráð í Glottertal þar sem “Sjúkrahúsið í Svartaskógi” er til staðar..2 x 40 km.

16. ágúst mánudagur

frjáls dagur


17. ágúst þriðjudagur

Við notum þennan dag til að aka yfir til hins rómaða Elsass héraðs í Frakklandi og brögðum á frönskum vínum. Kvöldverður hjá vínbónda. 2 x 60 km.  

18. ágúst miðvikudagur  Freiburg – Bregenz.

 Nú kveðjum við Freiburg og höldum að Bodenseevatni og skoðum blómaeyjuna Mainau (125 km).Siglt verður þaðan til Bregenz við Bodenseevatn. Gist verður í Bregenz á hótelinu Weisses Kreuz 4* (www.bestwestern-ce.com/weisseskreuz)  og kvöldverður á hóteli. 

19. ágúst fimmtudagur  Bregenz – Innsbruck

Við ökum árla morguns gullfallega leið um Alpana sjáum til hins undurfagra kastala Neuschwanstein og komum í héraðið Tíról á leið okkar til Innsbruck í Austurríki.
Við gistum næstu 4 nætur í Innsbruck á hóteliunu Alpin Park 3* (www.innsbruckhotels.org/Hotel/4953) . Kvöldverður á hóteli. 216 km

20. ágúst. föstudagur Innsbruck

Í dag förum við og skoðum Köningsee og Arnarhreiður Hitlers í 1860 metra hæð. Kvöldverður á leiðinni í austurrísku fjósi. 2 x 195 km.

21. ágúst laugardagur Innsbruck

Nú förum við í fjallaferð skoðum Silfurkristalssafnið og förum með kláf í 2.340 metra hæð upp á Hafelekartind. Við endum daginn á Tírólakvöldi með mat og skemmtiatriðum. 2 x 20 km

22. ágúst sunnudagur

 Eftir morgunverð á hótelinu förum við í dagsferð upp í
Dólómítaalpana á Ítalíu m.a. til Cortinu.   Sameiginlegur kvöldverður. 2 x 160 km


23. ágúst mánudagur  Innsbruck - Lichtenstein – Como  400 km

 Eftir morgunverð á hótelinu verður ekið til Lichtenstein og þaðan til Como á Ítalíu og gist í tvær nætur á hótelinu Meteropole Suisse 4* (www.hotelmetropolesuisse.com/frame_ing.html)    Kvöldverður á hóteli.

24. ágúst þriðjudagur

Upplagt að sigla á Comovatni. Sameiginlegur kvöldmatur.

25. ágúst miðvikudagur 

Frjáls dagur. Brottför seint um kvöld frá Milano með áætlun Flugleiða Brottför FI 593 brottför kl.23.40 koma kl 01.55 (70 km)
 

Verð: 285 þús aukalega 53 þús. fyrir einbýli.

Innifalið: Flug, flugvallaskattar, akstur, gisting með morgunverðarhlaðborði , 12 kvöldverðir, vínsmökkun, Tírólaskemmtun, allar skoðunarferðir og íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfallatrygging, sigling á  Bodensee (ca EUR 10) og inngangur í Heidelbergerkastala (ca2 E), Mainau (ca12 E), Europark (ca 20 E), Arnarhreiðrið (ca 13 E), Silfurkristalssafn(ca 6 E), kláfur á Haferlekar (ca 15 E) og drykkir með mat.

 

 



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland