Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þarna fara saman stórkostlegt margbrotið landslag, frábær matur og staðir sem fararstjórinn gjörþekkir. Engin önnur ferð bíður upp á jafnmikla fjölbreytni, en um leið höfum við það ákaflega náðugt og skemmtilegt umlukt hinum risavöxnu Ölpum, þeim þýsku, austurrísku, ítölsku og svissnesku. Við þurfum ekki að fara of snemma á fætur, skiptum sjaldan um hótel, höldum akstri í lágmarki og látum okkur líða vel. Grétar Hansson er bílstjóri og í rútunni er salerni.
Keflavik - Frankfurt með áætlunarflugi Flugleiða til Frankfurt.kl 7.25 komið kl 12:50. Keyrt til Heidelberg 74 km
Eftir að hafa skoðað miðbæ Heidelberg borðum við á frægri stúdentaknæpu í miðborginni og gistum á Crowne Plaza 4* (www.crowneplaza-heidelberg.de)
Heidelberg – Freiburg 187 km Eftir morgunverð skoðum við Heidelbergar kastala og eftir það leggjum við af stað til borgarinnar í Svartaskógi, Freiburg, þar sem við gistum næstu 5 næturnar í hótel Stadt Freiburg 4* (http://www.hotel-stadt-freiburg.de) . Gengið um Freiburg og lært að rata. Kvöldverður í bænum með fararstjóra.
Ævintýraferð um Svartaskóg. Kvöldverður með fararstjóra.120km
Við eyðum deginum í Europark (nokkurs skonar Disneylworld).Um kvöldið snæðum við villibráð í Glottertal þar sem “Sjúkrahúsið í Svartaskógi” er til staðar..2 x 40 km.
frjáls dagur
Við notum þennan dag til að aka yfir til hins rómaða Elsass héraðs í Frakklandi og brögðum á frönskum vínum. Kvöldverður hjá vínbónda. 2 x 60 km.
Nú kveðjum við Freiburg og höldum að Bodenseevatni og skoðum blómaeyjuna Mainau (125 km).Siglt verður þaðan til Bregenz við Bodenseevatn. Gist verður í Bregenz á hótelinu Mercure 4* (www.mercure.com/Bregenz) og kvöldverður á hóteli.
Við ökum árla morguns gullfallega leið um Alpana sjáum til hins undurfagra kastala Neuschwanstein og komum í héraðið Tíról á leið okkar til Innsbruck í Austurríki.
Við gistum næstu 4 nætur í Innsbruck á hóteliunu Alpin Park 3* (www.innsbruckhotels.org/Hotel/4953) . Kvöldverður á hóteli. 216 km
Í dag förum við og skoðum Köningsee og Arnarhreiður Hitlers í 1860 metra hæð. Kvöldverður á leiðinni í austurrísku fjósi. 2 x 195 km.
Nú förum við í fjallaferð skoðum Silfurkristalssafnið og förum með kláf í 2.340 metra hæð upp á Hafelekartind. Við endum daginn á Tírólakvöldi með mat og skemmtiatriðum. 2 x 20 km
Eftir morgunverð á hótelinu förum við í dagsferð upp í
Dólómítaalpana á Ítalíu m.a. til Cortinu. Sameiginlegur kvöldverður. 2 x 160 km
Eftir morgunverð á hótelinu verður ekið til Lichtenstein og þaðan til Como á Ítalíu og gist í tvær nætur á hótelinu Grand hotel di Como 4* (www.grandhoteldicomo.com) Kvöldverður á hóteli.
Upplagt að sigla á Comovatni. Sameiginlegur kvöldmatur.
Frjáls dagur. Brottför seint um kvöld frá Milano með áætlun Flugleiða Brottför FI 593 brottför kl.23.40 koma kl 01.55 (70 km)
Verð: 284.500 þús aukalega 58.000 þús. fyrir einbýli.
Ath ekki hægt að nota vildarpunkta í þessa ferð .