Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson og bílstjóri: Grétar Hansson
Skipið heitir MS Alemannia og er 110 metra að lengd. Klefar eru 12fm með loftkælingu, sjónvarpi, sturtu,WC, síma og hárþurrku. Farþegar 184.
Föstud. 28. Sept
Flug til Amsterdam FI502 kl 7.55 lent 12.55 og farið á hótel Mercure aan Amstel (http://www.mercure.com/gb/hotel-1244-mercure-hotel-amsterdam-aan-de-amstel/index.shtml) sem er miðsvæðis. Frjáls dagur (enginn sameiginlegur matur)
Laugard. 29.sept
Við verðum keyrð í skip eftir hádegi farið í skip um kl 15 og komið sér fyrir.
Sunnud. 30. sept
Skoðunarferð um Amsterdam (Holland).
Mánud. 1. okt
Siglt eftir Rínarfljóti til Kölnar. Köln skoðuð.
Þriðjud. 2. okt
siglt til Cochem við Mosel og Koblenz. Cochem skoðuð.
Miðvikud. 3. okt
siglt til gleðibæjarins Ruedesheim við Rín. Ruedesheim skoðuð.
Fimmtud. 4. okt
siglt til Worms og Speyer. Möguleiki á að skreppa yfir til Heidelberg og skoðað.
Föstud. 5. okt
siglt til Strassburg (Frakkland) og skoðað
Laugard. 6. okt
siglt til Basel (Sviss) og keyrt til Freiburgar (Þýskaland) (60 km). Frjáls dagur í Freiburg. Gist á Hotel Stadt Freiburg (http://www.hotel-stadt-freiburg.de/) .Sameiginlegur kvöldmatur í miðbæ Freiburgar
Sunnud. 7. okt
skoðunarferð til Elssass í Frakklandi og matur hjá vínbændum í Kaisersthul.
Mánud. 8. okt
frjáls dagur í Freiburg
Þriðjud. 9. okt
frjáls dagur en sameiginlegur hátíðarkvöldmatur í Glottertal.
Miðvikud. 10. okt
keyrt til Frankfurt (240 km) og flogið heim FI521 kl 14.00 lent kl. 15.35