Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gisting: hótel Deutshcer Hof í Trier. Mjög gott 3*** hotel, miðsvæðis (www.hotel-deutscher-hof.de)
Nafn : Hotel Deutscher Hof Heimilisfang : Trier, Þýskalandi Símanúmer : 0049 651 97780 Faxnúmer : 0049 651 9778 400 Vefsíða : www.hotel-deutscher-hof.de Netfang: info@hotel-deutscher-hof.de Stutt lýsing : mjög þægilegt og heimilislegt hótel, staðsetning frábær. Okkar mat : 3*** superior hótel Stjörnugjöf : 3: Hæðir : 4 Lyfta : já Fjöldi íbúða : 100 Staðsetning: við göngusvæði miðbæjarins. Þjónusta : Bar : já Fæði : morgunverðar hlaðborð Hárþurrka : já Loftkæling : nei Veitingastaður : já Gestamóttaka : já Hjólastólaaðgengi : já Sími : já Sundlaug : nei, en sauna Öryggishólf :já Sjónvarp : já Tækjasalur : já
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
Bílstjóri: Grétar Hansson
Trier er elsta borg Þýskalands og bera þar hæst minjar frá dögum Rómverja, en þeir settust þarna að um kristsburð. Það voru einmitt þeir sem kynntu vínviðinn við Mósel og síðan hefur Móseldalurinn verið eitt merkasta vínræktarsvæði Norður-Evrópu. Það er löng hefð fyrir jólamarkaði í Tier og mikil stemningin þar. Gamli bærinn er tiltölulega lítill og að mestu varðveittur fyrir fótgangandi, sem gerir hann enn meira aðlaðandi og auðveldan yfirferðar. Allar helstu verslanakeðjur Þýskalands eru til staðar.
Fyrir utan íslenska fararstjórn eru innifaldir á glæsilegu hóteli (sem er rétt við göngugöturnar) ríkulegir morgunverðir (hlaðborð) auk aksturs og flugvallaskatta, fimm kvöldverðir með fararstjóra á margvíslegum veitingastöðum m.a.skoðunarferðir til Luxemburg og hins forna handverksbæjar Monschau, einnig er farið til Bernkastel og til vínbónda með tilheyrandi vínsmökkun og kvöldmat, hrein veisla er innifalinn. Alls staðar eru jólamarkaðir. Keyrsla er í algjöru lágmarki. Bílstjóri er hinn ljúfi Grétar Hanson.
Þessi ferð er ekki erfið. Gjaldmiðill :
Evra
Greiðslukort :
Það er hægt að greiða með kreditkortum /debit kortum, hraðbankar eru nálægt sem taka debet eða kreditkort (muna eftir leyninúmerinu !) Klæðnaður:
Venjulega er veðrið á þessum tíma eins og íslenskt vorveður og klæða menn sig eftir því. Í flestum tilfellum er “casual” klæðnaður við máltíðir, en það má líka punta sig. .
Læknisþjónusta :
Rétt er að taka með kortið frá Tryggingarstofnun
Ónæmisvarnir :
Ekki nauðsynlegar. Rafmagn : 220 – 240 volt Tímamismunur:
Bæta þarf 1 tíma við íslenska tímann. Vegabréfsáritun :
Ekki nauðsynleg.
Verslun : Verðlag er yfirleitt hagstætt í Þýskalandi.
Veðurfar : Venjulega er veðrið á þessum tíma eins og íslenkt vorveður.
Þjónusta úrval ústýn : Fararstjórinn flýgur með farþegum til Frankfurt.
Flogið til frankfurt kl17:35 og beint til Trier og gist þar 7 nætur á glæsilegu,heimilislegu og vel staðsettu hóteli með glæsilegum hlaðborðsmorgunmat. 230 km Tekið verður á móti okkur með jólaglögg og kvöldmat.
Trier skoðuð með fararstjóra, Jólamarkaðurinn heimsóttur. frjáls dagur. Kvöldmatur með fararstjóra er innifalinn.
Kl. 10.30 Keyrt til Bernkastel og Enkirch við Mið-Mósel, þar sem dýrindis vín eru smökkuð hjá þekktum vínbónda og sameiginlegur kvöldmatur í sveitinni er innifalinn. 2 x 80 km
kl 10.30 Keyrt til Luxemborgar Sameiginlegur kvöldmatur.
Frjáls dagur
Kl 10.30 Keyrt til hins forna handverksbæjar, Monschau. .
frjáls dagur Kvöldmatur og dansiball á hótelinu
Keyrt til Frankfurt (230km) og flogið heim kl 13.40
Verð í tvíbýli kr.159.500 og 15.000 vildarpunkta (án vildarpunkta er verðið 169.500) og aukagjald fyrir einbýli kr 26 þús.
Innifalið: Flug, skattar, 5 kvöldmáltíðir, vínsmökkun, dans, skoðanaferðir, fararstjórn og allur akstur.