Beint í leiðarkerfi vefsins.
Það er fátt sem jafnast á við að sigla um heimshöfin á glæsilegu skemmtiferðaskipi. Hvert andartak er eins og brot úr ævintýri þegar siglt er á milli hinna ýmsu áfangastaða.
Veislumáltíðir og léttir málsverðir eru í boði fimm sinnum á dag. Hápunktar eru hátíðarkvöldverðir þar sem allir gestir klæðast sínu fínasta pússi og upplifa þjónustu líkt og þeir séu konungbornir.
Þjónusta á skemmtiferðaskipum er framúrskarandi. Þjónar eru á hverju strái alla ferðina, veisluborðin svigna undan kræsingum og tilveran er krydduð með skemmtiatriðum, söngleikjum, skrautsýningum og uppistöndurum. Á sóldekkinu eru sundlaugar, þægilegir sólbekkir og að sjálfsögðu barir þar sem hægt er að kaupa kokteila í öllum regnbogans litum. Einnig er hægt að skreppa í kvikmyndahús eða á bókasafnið.
Þeir sem vilja taka á því í ræktinni hafa úr ýmsu að velja. Hægt er að stunda margskonar líkamsrækt í flestum skipum, s.s. tennis, skvass, körfubolta og fleira. Í flestum skipum er sérstök skokkbraut og hægt að spretta úr spori hring eftir hring umhverfis skipið. Heimsókn í heilsulind fylgir þá gjarnan í kjölfarið.
Not af allri aðstöðu og í dagskránni um borð er innifalin í verði. Greiða þarf þó sérstaklega fyrir sérstaka þjónustu eins og til dæmis nudd, heilsumeðferðir og fleira í þeim dúr.
Fjölmargir Íslendingar hafa siglt með skemmtiferðaskipum undanfarin ár og nokkuð víst að þeir sem prófa einu sinni, fara aftur og aftur.
Ferðaskrifstofan VITA býður skemmtisiglingar með skipafélögunum Royal Caribbean Cruise line, Celebrity Cruises og Holland America hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa. Þessi félög eru öll í hópi þeirra stærstu og virtustu í heimi.
Láttu drauminn rætast og komu með í skemmtisiglingu með VITA.