Tyrkland 16. - 26. október

Tyrkland 16. - 26. október

Kemer er mjög fallegur 20 þúsund manna tyrkneskur strandbær 40 km vestur af Antalyu í asíuhluta Tyrklands og liggur sunnarlega við Miðjarðarhafið. Umhverfið er einstök náttúrufegurð yfir 3000 metra hárra Taurusarfjalla sem skýla svæðinu fyrir köldum vindum. Það  má búast við hita milli 23 og 28 stigum. 
Hótelið Viking Star (www.vikingturizm.com) er 5 stjörnu lúxushótel þar sem allt er innifalið, mjög góður matur sem drykkur allan daginn. Sauna og Hamam, tyrkneskt bað eru innifalin og nudd, hárgreiðslustofa o.m.f. er innan veggja hótelsins. Hótelið er staðsett í miðbæ Kemer og liggur aðalgatan (verslunargatan) fram hjá hótelinu niður að smábátahöfninni og ströndinni. Verðlag er enn mjög gott í Tyrklandi og ber verð ferðarinnar vitni um það. Flogið verður í beinu leiguflugi Icelandair.
 

Gott jafnvægi er haft á milli frítíma og skoðunarferða. Á meðal skoðunarferða er heimsókn til Kappadókíu, sem er tveggja daga ferð og gist upp í fjöllum. Þar voru fyrstu heimkynni kristinna manna í frumkristni. Eins verður líka siglt að borginni Kekova rétt undan ströndinni, en hún sökk í sæ og er undir vernd UNESCO. Frægar grafhvelfingar Lydiumanna frá 5. öld fyrir Krist í Myra verða skoðaðar og eins kirkja heilags Nikulásar fyrirmyndar jólasveinsins.
 
 

Ferðalýsing er eftirfarandi

16. október flug kl 9:30 til Antalyu lending 18:20 og komið sér fyrir á hóteli.

17. október  kl. 14 skoðunarferð um gamla bæinn í Antalyu.

18. október  frjáls dagur útimarkaður við hótelið

19. október    kl  14 sveitarferð, moskva og pönnukökur.

20. október frjáls dagur

21. október kl. 6:30 keyrt til hinnar heilögu borgar Konya (Mevlana) og þaðan til  Kappadokíu. Hádegismatur, kvöldmatur og gisting í eina nótt er innifalinn.

22. október Göreme o.fl. skoðað, síðan keyrt heim og innifalinn matur á leiðinni.

23. október frjáls dagur

24. október kl. 9 er farið til Myra og grafhvelfingar skoðaðar í bæ Nikulásar. Síðan er siglt og borgin Kekova, sem sokkin er í sæ, en hún er vernduð af UNESCO.

25. október frjáls dagur útimarkaður við hótelið

26. október flogið heim kl 19:10 komutími kl 22:30
 Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson

Verð kr 255  þús. í tvíbýli plús 15.000 vildarpunktar og aukalega 30 þús. fyrir einbýli.
Innifalið :  Beint flug, flugvallaskattar, allur akstur og skoðunarferðir, gisting með fullu
fæði (nema drykkir í skoðunarferðum)  og íslensk fararstjórn. 



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland