Beint í leiðarkerfi vefsins.
Heilsufarsupplýsingar sem utanlandsfarar eiga að hafa tiltækar
Ágæti ferðafélagi !
Að fenginni reynslu mælum við með því við þig að svara samviskusamlega eftirfarandi spurningalista, og skynsamlegt gæti verið að fá til þess hjálp heimilislæknis eða sérfræðings, því svörin þurfa að vera á ensku. Þessara upplýsinga er einungis óskað vegna öryggis í þína eigin þágu, vilji svo ólíklega til að þú kynnir að veikjast eða meiðast á ferðalaginu. Þá geta þær auðveldað mjög nauðsynleg úrræði, rannsóknir og meðferð, stórbætt horfur og flýtt bata. Í alvarlegum tilvikum hafa slíkar upplýsingar bjargað mannslífum. Heitið er fullkomnum trúnaði um allt efni slíkra svara þinna nema að til þeirra þurfi að grípa og þær þá aðeins sýndar heilbrigðisstarfsfólki bundnu trúnaði í framandi landi.
1. Hjarta- og æðasjúkdómar/Diseases related to heart, blood-circulation and the general status of your blood vessels/Herz-, Kreislauferkrankungen, Gefaesserkrankungen/:
2. Sjúkdómar í lungum og öndunarfærum/Lungs and respiratory organs/Lungen-, Atemwegserkrankungen/:
3. Sjúkdómar í meltingarfærum, lifur eða brisi/The digestive system, including liver and pancreas /Erkrankungen des Magendarmtraktes oder Leber/:
4. Sjúkdómar í nýrum eða þvagfærum/Kidney and urinary tract/Erkrankungen der Nieren oder Harnwege/:
5. Sjúkdómar tengdir starfsemistruflunum og samspili innkirtla og framleiðslu þeirra á hormónum /Metabolic status and possible dysfunctions of the endocrive glands ((i.e. hormones, e.g. insulin, thyroid hormones etc.)) /Stoffwechselerkrankungen oder hormonelle Störungen/:
6. Sjúkdómar í taugakerfi eða geðræns eðlis/Neurological and psychiatric illnesses/Krankheiten des Sinnesorgane/:
7. Sjúkdómar í skynfærum/Perceptions-organs/Krankheiten des Sinnesorgane/:
8. Sjúkdómar í stoð- og hreyfikerfi/Movement disabilities/Krankheiten des Bewegungsapparates/:
1/2
9. Blóðsjúkdómar m.a. storknunarhæfni/Disturbance in blood flood and blood coagulation or diseases in the hematological system/Blutrinnungsstörungen oder haematologische Krankheiten/:
10. Sýkingar og smitsjúkdómar/Infection diseases/Infektionskrankheiten/:
11. Þungun/Preganacy/Schwangerschaft: (já eða nei/yes or no/ja oder nein :
12. Fyrri meðferðir, sjúkrahúsinnlagnir og aðgerðir/Earlier medical treatments, hospital admissions and surgical operations/Fruehere Krankenhausaufenthalte und Operationen/:
13. Lyfjameðferð /Medication/Medikamenteneinnahme :
14. Staðfesting á blóðflokki/Blood type/Blutgruppe:
15. Allt þekkt ofnæmi m.a. lyfjaofnæmi/Allergies/Allergien/
Áður en haldið er í ferð er æskilegt að afhenda fararstjóra þessar upplýsingar í lokuðu umslagi, sem verður ekki opnað nema þörf krefji. Nú eða geyma það á auðfundnum stað á hótelherbergi. Í ferðalok verður umslaginu skilað, en hafi þurft að leita þar upplýsinga á leiðinni, þá gildir áfram að um allt efni þeirra ríkir algjör þagnarskylda, nema hvað varðar nauðsynlegar trúnaðarupplýsingar á milli lækna og/eða sjúkrahúsa, skv. ströngum siðareglum þeirra um heim allan.
Einnig skal eindregið með því mælt við alla ferðalanga, að þeir afli sér fyrir ferðalagið - og taki með sér „evrópska sjúkratryggingarkortið“ fyrir utanfara, sem Tryggingastofnun Ríkisins útbýr öllum að kostnaðarlausu. Slíkt kort greiðir mjög fyrir allri heilbrigðisþjónustu, sem þörf kann að verða á erlendis, m.a. innlagna, verði þeirra þörf og kortið sparar stórlega fyrirhöfn og fjárútlát.
2/2