Beint í leiðarkerfi vefsins.
Madeira er gjarnan kölluð eyja hins eilífa vors eða garðurinn fljótandi. Eftir aðeins fimm klukkustunda beint flug ertu kominn til þessarar paradísareyju,u.þ.b. 600 km. vestur af ströndum Afríku. Hér er allt annar heimur. Þessi stórbrotna, blómstrandi eldfjallaeyja nýtur hitabeltisloftslags og hefur mikið aðdráttarafl.
Friðsæld, fallegt landslag og fjölbreytt gróðurfar auk einstakrar veðurblíðu heillar og laðar ferðamenn víða að. Madeira er tiltölulega lítil portúgölsk eyja, aðeins rúmlega 800 ferkílómetrar að stærð, en saga hennar er afar forvitnileg. Madeira og nálægu eyjarnar Porto Santo og Desertas eyjar voru miðstöð hins mikla landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala fyrr á öldum og drógu að sér sjómenn í landaleit og drekkhlaðin sæför frá öllum heimsálfum. En nú er öldin önnur og Madeira orðin að miðstöð skútusiglingamanna og náttúruunnenda. Fjölskrúðugt mannlíf í höfuðborginni Funchal og hinum fjölmörgu þorpum inni á eyjunni þar sem lífið gengur í rólegri takti og andrúmsloftið er annað láta engan ósnortinn.
Funchal
Funchal sem stendur við skínandi strendur Atlantshafsins er fallegur, blómum skrýddur bær með um 70.000 íbúa. Bakgrunn bæjarins mynda tignarleg 1200 m. há fjöll. Þessi gamla nýlenduborg er lifandi og skemmtileg, víða eru steinlagðar gangstéttir og þröngar götur, endurnýjuð gömul hús í bland við dásamleg kaffihús og glæsta veitingastaði. Hér eru líka fyrirtaks hótel og fjörlegt, margrómað næturlíf. Í grasagörðunum fjölmörgu getur að líta orkídeur, kaktusa og hin víðfrægu drekatré. Funchal er nútímaborg með þroskað yfirbragð.
Ferðir á eigin vegum
Frá Funchal er auðvelt að ferðast til flestra áhugaverðra staða á eyjunni. Mörg rútufyrirtæki bjóða upp á reglulegar ferðir til þessara staða sem gera ferðalöngum kleift að njóta fegurðar eyjunnar til hins ítrasta.
Verslun
Í Funchal er að finna flestar þær verslanir og verslanakeðjur sem við þekkjum eða könnumst við. Nýjasta verslunarmiðstöðin heitir „Dolce VITA" sem staðsett er í miðbænum. Í miðbænum eru einnig minjagripaverslanir og ýmiss konar markaðir þar sem hægt er að nýta viðskiptahæfileika sína og semja um verðið á vörunum á staðnum.
Madeira er fallegur staður og skemmtilegur heim að sækja með fjörmikið og fjölbreytilegt mannlíf.
Skoðunarferðir
Bæjarferð um Funchal Hálfur dagur
Ekið er frá hótelunum in til Funchal og hefst ferðin við Markaðinn í gamla bænum í Funchal. Gengið er um bæinn til að allir átti sig á kennileitum og síðan að dómkirkju staðarins. Ferðin endar á því að farið er í vínkjallarann Madeira Wine Company-Adegas de São Francisco. Þar sem fólki gefst kostur á að bragða tvær tegundir af Madeira vínum., sem eru sérstök vín brugguð á Madeira og eru lík púrtvíni.
Brottför kl. 14:00
Ferðin tekur um 4 klst.
Verð: 4.800 kr.
Innifalið: Akstur, gönguferð, vínsmökkun og íslensk fararstjórn.
Útsýnisferð til Eira Do Serrado og Monte (Hálfur dagur)
Ferðinni er heitið á þrjá áfangastaði. Fyrst er farið að útsýnispunktunum Pico dos Barcelos og Eira do Serrado en útsýni staðanna er sérlega fallegt. Frá Pico dos Barcelos sést yfir bæinn Funchal en frá Eira do Serrado (1094m) sést yfir dalinn og þorpið Curral das Freiras. Frá Eira do Serrado er hrífandi útsýni yfir fjöllin og þorpið en það er byggt í eldgíg kulnaðs eldfjalls. Því næst er haldið til þorpsins Monte í úthverfi Funchal sem þekkt er fyrir milt loftslag og gróskumikið gróðurlendi. Í þorpinu er m.a. komið við í sóknarkirkjunni. Fyrir þá sem kjósa er hægt að ferðast aftur niður til Funchal með toboggan sleðum.
Brottför kl. 08:30
Ferðin tekur um 4 klst.
Verð: 5.500 kr.
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.
Pico do Arieiro / Ponta de São Lourenço Hálfur dagur
Byrjun ferðarinnar hefst í þorpinu Camacha sem frægt er fyrir að vera miðstöð tágavinnu. Farið er í verksmiðju þar sem hægt er að berja augum á handverksmennina og versla. Því næst er haldið til Pico do Arieiro en það er næst hæsti tindur eyjarinnar (1810m). Ekið er til náttúrugarðsins Ribeiro Frio en þar er á að líta klakstöð silunga. Eftir heimsóknina í náttúrugarðin liggur leiðin á útsýnispunktinn Santana Portela (670m) en þar sést tilkomumikil klettamyndun Eagle´s Cliff og hluti norður-strandarinnar. Þaðan er ekin falleg leið til Ponta de São Lourenço þar sem landslagið er ægifagurt og endað aftur í Funchal.
Brottför kl. 08:30
Ferðin tekur um 4 klst.
Verð: 5.500 kr.
Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn.
Vesturleiðin - Dagsferð
Ferðin hefst á útsýnispunktinum Cabo Girão en þar er eitt hæsta brimklif í Evrópu (um 500m). Frá Cabo Girão er haldið til litla þorpsins Ribeira Brava á suðvestur hluta eyjarinnar en leiðin liggur í gegnum bratta fallega dali. Að því loknu er haldið á toppinn Encumeada (1007m) þar sem hægt er að horfa á suður- og norðurhluta eyjarinnar samtímis. Leiðinni er næst heitið til Porto Moniz en þorpið er þekkt fyrir eldfjalla-sundlaugar sínar. Á leiðinni fá farþegar sýn á fallegustu staði norðurstrandarinnar, m.a. vegi byggða á klettum umvafða fossum. Þá er heimsótt þorpið São Vicente og hádegisverður snæddur. Þar er gefin frjáls tími til þess að skoða þetta litla fallega þorp. Loks er haldið aftur til Funchal.
Brottför kl. 08:30
Ferðin tekur 7 til 8 klst.
Verð: 9.900 kr.
Innifalið: Akstur, hádegisverður og íslensk fararstjórn.
Kvöldstund í Madeira
Hér gefst tækifæri til að upplifa kvöldverð að hætti innfæddra. Á borð er borið fram hið fræga Espetada nautakjöt sem grillað er á teini yfir opnum eldi, ásamt milho frito (djúpsteiktur maís), heimalöguðu hvítlauksbrauði og víni. Á meðan á borðhaldi stendur munu innfæddir dansa þjóðdansa undir portúgalskri þjóðlagatónlist. Þjóðleg kvöldstund sem enginn ætti að missa af.
Brottför
Ferðin tekur um 3 klst. með akstri.
Verð: 7.900 kr.
Innifalið: Akstur, fordrykkur, kvöldverður, FADO söngvar og íslensk fararstjórn.

Enotel Lido Madeira er hlýlegt og nútímalegt hótel við ströndina, í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá miðbæ Funchal. Veitingastaðirnir eru fjölbreyttir og góðir og allt innifalið!

Flott og einstaklega fallegt fimm stjörnu hótel á góðum stað í Funchal. Hótelið stendur við sjóinn og er hannað með það í huga utsýnið yfir Atlantshafið njóti sín. Hótelið var endurnýjað árið 2007. Frá hótelinu eru 2 km til miðbæjar Funchal.

Pestana Casino Park er gott fimm stjörnu hótel, staðsett í göngufæri við miðbæinn í Funchal. Frá hótelinu er útsýni yfir flóann, höfnina og fjöllin. Hótelið er glæsilegt og var endurnýjað árið 2007. Spilavíti hótelsins var hannað af hinum heimsfræga brasilíska arkitekt Oscar Niemeyr.

Hótel Alto Lido er á góðum stað, aðeins um 2 km frá miðbæ Funchal. Í sundlaugargarðinum eru tvær útilaugar og sundlaugarbar. Hótelið er með einnig með heilsulind, upphitaðri innilaug, kokkteilbar og veitingastað.

Hótel Baía Azul er á góðum stað, aðeins um 2,5 km frá miðbæ Funchal. Fallegt útsýni er yfir Atlantshafið frá sundlaugargarðinum sem er með tveimur upphituðum sundlaugum.