Beint í leiðarkerfi vefsins.
10. apríl þriðjudagur flogið með beinu leiguflugi Icelandair FI 518 kl 8:30 komið til Madeira kl 14:10 keyrt á Hotel Four Views Baia 4* (www.four-views-baia.com ) og gist í 10 nætur.
11. apríl miðvikudagur Borgarferð
Bændamarkaðurinn heimsóttur, þar sem ylmur blóma og ávaxta fylgja litadýrðinni innan um grænmeti og krydd, á neðri hæð er kjöt og fiskur.
Handverksverkstæði sem framleiðir alls konar dúka og útsaum sem hefur þróast í margar kynslóðir.
Við smökkum á hinu fræga Madeiravíni.
Botanic garðurinn geymir um 3000 tegundir af tjám og blómum.
Við borðum hádegisverð niður við höfnina í Funchal og eru drykkir innifaldir.
12. apríl fimmtudagur frjáls dagur
13. apríl föstudagur Vesturleiðin - Dagsferð
Ferðin hefst á útsýnispunktinum Cabo Girão en þar er eitt hæsta brimklif í Evrópu (um 500m). Frá Cabo Girão er haldið til litla þorpsins Ribeira Brava á suðvestur hluta eyjarinnar en leiðin liggur í gegnum bratta fallega dali. Að því loknu er haldið á toppinn Encumeada (1007m) þar sem hægt er að horfa á suður- og norðurhluta eyjarinnar samtímis. Leiðinni er næst heitið til Porto Moniz en þorpið er þekkt fyrir eldfjalla-sundlaugar sínar. Á leiðinni fá farþegar sýn á fallegustu staði norðurstrandarinnar, m.a. vegi byggða í klettum umvafða fossum. Þá er heimsótt þorpið São Vicente og hádegisverður snæddur. Þar er gefin frjáls tími til þess að skoða þetta litla fallega þorp. Loks er haldið aftur til Funchal.
14. apríl laugardagur frjáls dagur
15. apríl sunnudagur
Pico do Arieiro / Ponta de São Lourenço Hálfur dagur
Byrjun ferðarinnar hefst í þorpinu Camacha sem frægt er fyrir að vera miðstöð tágavinnu. Farið er í verksmiðju þar sem hægt er að fylgjast með handverksmönnum og versla. Því næst er haldið til Pico do Arieiro en það er næst hæsti tindur eyjarinnar (1810m). Ekið er til náttúrugarðsins Ribeiro Frio en þar er á að líta klakstöð silunga. Eftir heimsóknina í náttúrugarðin liggur leiðin á útsýnispunktinn Santana Portela (670m) en þar sést tilkomumikil klettamyndun Eagle´s Cliff og hluti norður-strandarinnar. Þar verður snæddur hádegisverður og eru drykkir innifaldir. Þaðan er ekin falleg leið til Ponta de São Lourenço þar sem landslagið er ægifagurt og hægt að virða fyrir sér mest af austurhluta eyjunnar. Á leiðinni til Funchal komum er komið við í bænum Machico, flói þar sem fyrstu portúgölsku landnemarnir stigu á land 1420.
16. apríl mánudagur frjáls dagur
17. apríl þriðjudagur
Útsýnisferð til Eira Do Serrado og Monte (Hálfur dagur)
Ferðinni er heitið á þrjá áfangastaði. Fyrst er farið að útsýnispunktunum Pico dos Barcelos og Eira do Serrado en útsýni staðanna er sérlega fallegt. Frá Pico dos Barcelos sést yfir bæinn Funchal en frá Eira do Serrado (1094m) sést yfir dalinn og þorpið Curral das Freiras, sem liggur í miðjum dalnum. Frá Eira do Serrado er hrífandi útsýni yfir fjöllin og þorpið en það er byggt í eldgíg kulnaðs eldfjalls. Hádegisverður er snæddur og drykkir eru innifaldir. Því næst er haldið til þorpsins Monte í úthverfi Funchal sem þekkt er fyrir milt loftslag og gróskumikið gróðurlendi. Í þorpinu er m.a. komið við í sóknarkirkjunni. Fyrir þá sem kjósa er hægt að ferðast aftur niður til Funchal með toboggan sleðum (kláfur), en þaðan verða menn að koma sér sjálfir á hótelið.
18 apríl miðvikudagur
Dagsferð í suðaustur.
Við heimsækjum sykurvinnslu í Calheta og smökkum á drykk staðarins og brögðum á hunangsköku staðarins. Þetta þorp er frægt fyrir manngerðar sandstrendur. Síðan er farið hjá Jardim do Mar og Paul do Mar á útsýnisstaðinn
„Precipicio“ þar sem útsýnið yfir Paul do Mar er óborganlegt.
Við borðum hádegismat þar sem drykkir eru innifaldir. Að lokum förum við til Ponta de Pargo sem er syðsti hluti eyjunnar og heimsækjum vitann þar sem útsýni er frábært. Þaðan er farið til baka á hótel.
19. apríl fimmtudagur frjáls dagur
20. apríl föstudagur flogið með FI 519 kl 12:00 komið til Keflavíkur 15:55
Innifalið: flug og skattar, hótel með morgunmat og kvöldmat, 5 skoðanaferðir með hádegismat, íslensk fararstjórn (Friðrik G. Friðriksson).
Verð 284.900 í tvíbýli og aukalega 62 þús fyrir einbýli (vildarpunktar gilda ekki)