Beint í leiðarkerfi vefsins.
Laugard. 29.sept
Flug til Amsterdam FI502 kl 7.55 lent 12.55 og við verðum keyrð í skip og komum okkur fyrir .
Sunnud. 30. sept
Skoðunarferð um Amsterdam (Holland).
Mánud. 1. okt
Siglt eftir Rínarfljóti til Kölnar. Köln skoðuð.
Þriðjud. 2. okt
siglt til Cochem við Mosel og Koblenz. Cochem skoðuð.
Miðvikud. 3. okt
siglt til gleðibæjarins Ruedesheim við Rín. Ruedesheim skoðuð.
Fimmtud. 4. okt
siglt til Worms og Speyer. Möguleiki á að skreppa yfir til Heidelberg og skoðað.
Föstud. 5. okt
siglt til Strassburg (Frakkland) og skoðað
Laugard. 6. okt
siglt til Basel (Sviss) og keyrt til Freiburgar (Þýskaland) (60 km). Frjáls dagur í Freiburg. Gist á Hotel Stadt Freiburg (http://www.hotel-stadt-freiburg.de/) .Sameiginlegur kvöldmatur í miðbæ Freiburgar
Sunnud. 7. okt
skoðunarferð til Elssass í Frakklandi og matur hjá vínbændum í Kaisersthul.
Mánud. 8. okt
frjáls dagur í Freiburg
Þriðjud. 9. okt
frjáls dagur en sameiginlegur hátíðarkvöldmatur í Glottertal.
Miðvikud. 10. okt
keyrt til Frankfurt (240 km) og flogið heim FI521 kl 14.00 lent kl. 15.35
Verð: efra dekk (opnanl. gluggar)kr 298 þús + 15 þús punktar eða kr. 308 þús í tvíbýli
Verð fyrir neðra dekk kr 271 þús + 15 þús punktar eða kr. 281 þús í tvíbýli
Innifalið: flug og skattar, skip og rúta með Grétari Hanssyni í lokin, allar kabínur snúa að fljótinu, daglega þrjár máltíðir á skipi, kaffi og kökur í eftirmiðdag, ein vatnsflaska við komu á skip, kaffi/te eftir máltíðir, komu og kveðjukokteill með skipstjóra, skemmtun um borð og notkun sundlaugar. Þessar fjórar nætur í Freiburg eru 3 kvöldmáltíðar og skoðunarferðir innifaldar.