Beint í leiðarkerfi vefsins.
Einstök sérferð þar sem siglt er með skemmtiferðaskipinu Celebrity Infinity frá Celebrity Cruises, fimm stjörnu skipafélags í eigu Royal Caribbean Crusie line. Um er að ræða sannkallaða lúxussiglingu eins og þær gerast bestar.
Ævintýrið hefst með beinu flugi til Seattle þann 22. september þar sem gist er í tvær nætur. Þaðan hefst siglingin suður með Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna með viðkomu í San Diego. Þú upplifir ferðamannaperlur Mexíkó og náttúrufegurð Costa Rica áður en siglingin um Panama skurðinn, verkfræðiundrið mikla, verður að veruleika. Eftir það er dagur í Suður Ameríku, siglt er um Karíbahafið uns skipið leggst að bryggju í Fort Lauderdale.
Fjöldi skipulagðra ferða er í boði á hverjum viðkomustað sem hægt er komast í gegn gjaldi. Gestir geta þó alltaf farið um alla viðkomustaði á eigin vegum.
Siglingin er í 16 nætur og eftir komu til Fort Lauderdale er ekið til Orlando og gist í þrjár nætur á hotel Florida Mall. Flogið til Íslands 13. október og lent í Keflavík snemma næsta morgun.
Dags. | Höfn | Koma | Brottför |
24.sep | Seattle, Washington | 17:00 | |
25.sep | Á siglingu | ||
26.sep | Á siglingu | ||
27.sep | San Diego, California | 09:00 | 17:00 |
28.sep | Á siglingu | ||
29.sep | Cabo San Lucas, Mexíkó | 09:00 | 18:00 |
30.sep | Á siglingu | ||
1.okt | Acapulco, Mexíkó | 08:00 | 17:00 |
2.okt | Hutatulco, Mexíkó | 08:00 | 15:00 |
3.okt | Á siglingu | ||
4.okt | Puntarenas, Kosta Ríka | 07:00 | 19:00 |
5.okt | Á siglingu | ||
6.okt | Sigling um Panama skurðinn | 06:00 | 18:00 |
6.okt | Colon, Panama | 18:00 | 20:00 |
7.okt | Cartagena, Colombia | 12:00 | 20:00 |
8.okt | Á siglingu | ||
9.okt | Á siglingu | ||
10.okt | Fort Lauderdale, Flórída | 07:00 |
Komu- og brottfarartímar (m.v. staðartíma):
Frá Keflavík 22. sep kl. 17:00, komið til Seattle 22. sep kl. 17:45.
Frá Seattle 24. sep kl. 17:00, komið til Ft. Lauderdale 10. okt kl. 07:00.
Frá Orlando 13. okt kl. 19:00, komið til Keflavíkur 14.okt kl. 06:10
Celebrity Infinity er í svokölluðum „Millennium“ flokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. Innréttingar skipsins einkennast af marmara, klassískum viðarinnréttingum og gleri. Allur aðbúnaður og vistarverur bera vott um gæði og glæsileika.
Skipið er tpælega 300 metrar á lengd og með rými fyrir liðlega 2.000 farþega. Barir, veitingasalir, leiksýningar, skemmtanir, ótrúleg heilsulind og ótal aðrir afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Infinity ógleymanlega.
Með því að smella hér geturðu farið í sýndarferð um skipið og skoðað allar vistarverur þess.
Skipin frá Celebrity Cruises eru margverðlaunuð og af mörgum fagaðilum talin þau bestu í heimi. Í þeim er nýjustu straumum í tísku og tækni blandað saman við tímalausan glæsileika og klassíska afþreyingarmöguleika. Smelltu hér til að vita meira um Celebrity Cruises skipafélagið.
Miðvikudagurinn 22.september: Keflavík - Seattle
Flogið frá Keflavík til Seattle í Bandaríkjunum. Við komu þangað er farþegum ekið á hótel Andra þar sem gist verður í tvær nætur. Kvöldið í Seattle er frjálst.
Fimmtudagurinn 23.september: Seattle
Frjáls dagur í Seattle. Tilvalið að rölta um miðborgina og kíkja ef til vill upp í Space Needle, tákn borgarinnar þar sem útsýnisstaðurinn í 160 metra hæð gefur einstakt útsýni.
Föstudagurinn 24. September: Seattle – Um borð í Celebrity Infinity
Skipulögð skoðunarferð um borgina áður en haldið er í glæsifleyið Celebrity Infinity seinni part dagsins. Öll þjónusta verður til staðar og um kvöldið bíður ferðalanga girnilegur kvöldverður.
Laugardagurinn 25. September og sunnudagurinn 26.september: Sigling um Kyrrahaf
Mánudagurinn 27.september: San Diego, Kaliforniu
Hafnarborgin San Diego er sú níunda stærsta í Bandaríkjunum. Skipið leggur að bryggju snemma um morguninn og siglir úr höfn síðdegis. Í San Diego er ýmislegt í boði, hinn glæsilegt Belmont skemmtigarður, Sea World sjávardýragarðurinn er með þeim bestu í Bandaríkjunum.
Spænsk áhrif eru mikil í borginni sem sést vel í matarmenningu hennar sem reyndar er einkar fjölbreytt. Þá er verðurfar í borginni með því besta sem gerist í Bandaríkjunum, en San Diego er sú borg þar í landi sem er næst Mexíkó.
Þriðjudagurinn 28.sepember: Sigling um Kyrrahaf
Áfram siglt suður með Bandaríkjunum, áleiðis til Mexíkó.
Miðvikudagur inn 29.september: Cabo San Lucas, Mexíkó
Dagur í hinni fallegu borg Cabo San Lucas sem er syðst á Baja Kaliforniuskaganum en skipið kemur þangað snemma morguns. Landslagið í kringum borgina er einkar fallegt og í kringum hana sést reglulega til hvala. Við hana er hægt að kafa, sigla á kajak og þá er fjöldi bara og veitingastaða í þessum litla en skemmtilega bæ. Hljómsveitin Van Halen opnaði veitingastað í bænum og einn meðlima hennar rekur hann í dag. Staðurinn heitir Cabo Wabo Cantina og er sá vinsælasti í bænum. Siglt af stað um kvöldið.
Fimmtudagurinn 30.september: Sigling um Kyrrahaf
Siglt suður á bóginn undan ströndum Mexíkó.
Föstudagurinn 1. október: Acapulco, Mexíkó
Fegurð, fegurð og aftur fegurð. Það er einkenni Acapulco, hinnar sögufrægu borgar. Heill dagur í borginni þar sem flestir kjósa að rölta meðfram strönd borgarinnar, hvort sem ætlunin er að slappa af í sandinum eða skoða mannlífið og verslanir. Einstökl borg.
Laugardagur inn 2. október: Huatulco, Mexíkó
Eftir stutta siglingu frá Acapulco er komið til lítils og heillandi bæjar, Huatulco. Þar er stoppað yfir daginn. Mikið dýraklíf er í tandurhreinum sjónum og er hrein paradís að kafa við strödina innan um marglita fiska og kóralrif. Alls eru 30 strendur við bæinn þar sem finna má verslanir og veitingastaði af öllum gerðum. Bærinn er einstök veðurparadís en þar skín sólin 330 daga á ári.
Sunnudagur inn 3. október: Sigling
Siglin suður um höf, meðfram vesturströnd Suður-Ameríku.
Mánudagurinn 4. október: Puntarenas, Costa Ríka
Komið eldsnemma til þessa skemmtilegar bæjar í Nicoya flóanum þar sem náttúrufegurð er einstök. Ein besta strönd Suður-Ameríku til brimbrettaiðkunar og þá er dýralífið ótrúlegt, allt frá spriklandi fiski við ströndina til Jagúar dýrsins sem heimamenn kalla El Tigre. Allir verða að smakka rétt borgarinnar ceviche de corvine, sem er nýveiddur fiskur marineraður í lime-safa, lauk, paprika og heimalöguðum kryddum. Yndislegur matur.
Þriðjudagur inn 5. október: Sigling
Siglt meðfram fallegri ströd Kosta Ríka, áleiðis til Panama
Miðvikudagurinn 6. október; Sigling um Panama skurðinn og stopp í Colon, Panama
Ein mesta bylting siglingasögunnar er Panama skurðurinn sem tengir saman Atlantshaf og Kyrrahaf. Fyrst var reynt að grafa skurðinn fyrir 19. öld en eftir að um 22 þúsund manns höfðu dáið við framkvæmdirnar var beðið eftir betri tækni.
Skurðurinn opnaði loks árið 1914 en 5600 manns létust við gerð hans í það skipti. Hann stytti siglingaleiðina frá New York til San Fransisco úr 22.500 km í 9.500 km. Byltingin var algjör. Það er ferðin í gegnum hann líka, skipið rís 25 metra á sérstökum lyftum og ný ævintýri bíða handan hafsins.
Stutt viðkoma er í hafnarborginni Colon, Panama.
Fimmtudagurinn 7. október: Cartagena, Kólumbíu
Komið um hádegi til þwessarar merku borgar og siglt aftur út kl. 20:00. Risavaxinn veggur og virki umlykja borgina en þau eru á heimsminjaskrá UNESCO. Það er margt að sjá í borginni en þar er iðandi mannlíf, söfn, gallerí og skemmtilegt matar- og drykkjarhefð.
Föstudagurinn 8. október og laugardagurinn 9. október: Sigling um Karíbahaf
Draumkennd sigling um fagurblátt Karíbahafið áleiðis til Bandaríkjanna.
Sunnudagurinn 10. október: Fort Lauderdale og Orlando, Bandaríkjunum
Komið til Fort Lauderdale snemma morguns og ekið til Orlando. Þar er gist á Florida Mall hótelinu í þrjár nætur.
Mánudagurinn 11. október og þriðjudagurinn 12. október: Orlando
Hótelið er við stærstu verslunarmiðstöðina í Orlando þar sem auk fjölda verslana eru margir og góðir veitingastaðir. Dagskráin verður leikin af fingrum fram, en allavega farið einu sinni saman út að borða. Annars er af nógu að taka í sólarríkinu. Disney garðarnir, Sea-World og margir hreint frábærir golfvellir.
Miðvikudagurinn 13. Október: Flug heim
Flogið frá Orlando um kvöldið heim til Keflavíkur þar sem áætlað er að lenda um kl. 6:00 að morgni 14. október.
Í innri klefi - án glugga:
456.700 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 466,700 kr.-
Í ytri klefa með glugga og án svala:
496.935 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 506.935 kr.-
Í ytri klefa með svölum:
539.500 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 549.500 kr.-
Celebrity Infinity er í svokölluðum „Millennium" flokki hjá Celebrity Cruises, sem er annar hæsti klassi skipafélagsins. Innréttingar skipsins einkennast af marmara, klassískum viðarinnréttingum og gleri. Allur aðbúnaður og vistarverur bera vott um gæði og glæsileika.
Hótel Andra er nútímalegt hótel í Belltown, staðsett í líflegu hverfi sem nær niður að höfninni í Seattle. Hótelið er í sögufrægri byggingu sem var reist árið 1925 en hótelið sjálft opnaði árið 2004 og er því mjög nýlegt. Tvær verslunarmiðstöðvar og hinn stórskemmtilegi markaður „Pike Place“ eru í göngufæri við hótelið.

Afar vinsælt og sérlega gott hótel sambyggt Florida Mall verslunarmiðstöðinni. Hótelið hefur allt verið endurnýjað á undanförnum árum og er á fínum stað milli flugvallarins, Disney garðanna og miðbæjar Orlando.