Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ógleymanleg vikulöng ferð sem nær til margra af fallegustu og merkilegu landssvæða Skotlands. Farið er á milli dala og héraða á hálendinu og meðal annars verða heimkynni Hálandahöfðingjans og Loch Ness skrímslisins skoðaðar skoðuð. Einstök náttúra, sögulegir staðir og merkilegar minjar eru einkenni þessarar frábæru sérferðar.
Dagsetning: 4. – 11. September 2010
Fararstjóri er Snorri Guðmundsson.
Komu- og brottfarartímar:
Frá Keflavík 4. sep kl. 8:00, komið til Glasgow kl. 13:30
Frá Glasgow 11.sep kl. 14:20, komið til Keflavíkur kl. 15:40
Laugardagur 4. september – Loch Lomond & Inverary
Flogið til Glsagow og ekið til hins rómaða Loch Lomond vatns. Þar munum við skoða okkur um og snæða hádegisverð. Síðan ekið áfram til Inverary sem er fallegur bær við Loch Fyne fjörðinn.
Gisting: Argyll Hotel, Inverary
Akstur: 90 km
Sunnudagur 5. september – Oban & Fort William
Ekið til Oban. Frjáls tími til að skoða sig um, kíkja í verslanir og snæða hádegisverð. Þaðan ekið til Glencoe, sem er sögufrægur og afar fallegur dalur. Þar hafa margar frægar kvikmyndir verið teknar upp, s.s. Harry Potter, The Highlander, Rob Roy o.fl. Loks er ekið til Fort William, þar sem gist verður næstu tvær nætur.
Gisting: Alexandra Hotel, Fort William
Akstur: 132 km
Mánudagur 6. september – Fort William
Skoðunarferð um nágrenni Fort William. Þar verður m.a. farið í togvagni upp í hlíðar Aonac Mor. Þaðan er stórkostegt útsýni til Ben Nevis, Fort William, Great Glen og Skosku Hálöndin. Einnig verður ekið til Loch Laggan, þar sem þættirnir um Hálandahöfðingjann eru teknir. Skipastiginn Neptune‘s Staircase er síðan skoðaður og loks er komið við á einum fegursta og sögufrægasta stað í Skotlandi, Glenfinnan.
Gisting: Alexandra Hotel, Fort William
Þriðjudagur 7. september – Isle of Skye
Ekið til Eilien Donan kastala margir telja hinn fallegasta í heimi. Þaðan er haldið áfram til til eyjunnar Skye, sem annáluð er fyrir náttúrufegurð. Kynnum okkur merkilega sögu eyjarinnar og komum meðal annars við í Dunvegan kastalanum sem er höfuðvígi MacGregor ættarinnar, en ættarhöfðingjar hennar hafa búið í kastalanum í nær 800 ár. Stoppum einnig í Portree, sem er stærsti bærinn á eyjunni. Þaðan er ekið til Kyle of Lochalsh, þar sem við munum gista.
Gisting: Lochalsh Hotel, Kyle of Lochalsh
Akstur: 235 km
Miðvikudagur 8. september – Loch Ness
Ekið til Loch Ness. Urquhart kastali skoðaður. Einn frægasti kastali Skotlands á bökkum Loch Ness í ægifögru umhverfi. Einnig stoppað í Drumnadrochit, þar sem við kynnum okkur sögu Nessie, Loch Ness skrýmslisins ógurlega. Þar verður frjáls tími fyrir hádegisverð og safnaskoðun.
Ekið áfram til Inverness, þar sem stoppað verður í James Pringle Woollen Mill, þar sem hægt er að kaupa margvíslegan skoskan varning (m.a. ekta skotapils). Þaðan er ekið til Grantown-on-Spey, þar sem gist verður næstu 2 nætur á Ben Mohr hótelinu í miðbænum.
Gisting: Ben Mohr Hotel, Grantown-on-Spey
Akstur: 230 km.
Fimmtudagur 9. september – Speyside
Frjáls dagur í Spey dalnum. Hér erum við í hjarta frægasta vískíhéraðs heimsins. Kjörið að skella sér í gönguferð um svæðið. Einnig verður boðið upp á skoðunarferð í Glenfiddich viskí verksmiðjuna fyrir áhugasama, þar sem framleiðslan er kynnt og smökkuð.
Gisting: Ben Mohr Hotel, Grantown-on-Spey
Föstudagur 10. september – Slóðir Hálandahöfðingjans “Monarch of the Glen” & Stirling
Ekið niður Spey dalinn. Hér verðum við á slóðum Hálandahöfðingjans (Monarch of the Glen) þáttanna sem slegið hafa í gegn um allan heim og voru sýndir í ríkissjónvarpinu. Síðan ekið til Stirling, þar sem fólki gefst kostur á að skella sér í verslanir eða skoða hinn stórkostlega Stirling kastala. Gist verður í miðbæ Stirling.
Gisting: Golden Lion Hote, Stirling
Akstur: 240 km.
Laugardagur 11. september – Heimferð
Ekið til Glasgow flugvallar og flogið til Íslands.
Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns. Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.
Miðað við einn í herbergi með hálfu fæði:
217.600 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: kr.- 207.700 kr.-