Karíbahaf, Mið- og Suður Ameríka

Karíbahaf, Mið- og Suður Ameríka

 

Ameríka eins og þú hefur aldrei séð hana áður! 

Frábær ferð þar sem farið er til áfangastaða í Karíbahafi,  Mið- og Suður Ameríku. Siglt er með nýjasta skemmtiferðaskipi Celebrity Cruises skipafélagsins, Celebrity Equinox, en það fór í sína jómfrúarferð í ágúst 2009. Sannkallað lúxusfley!

Dagsetning: 12. – 27. nóvember 2010

Fararstjóri: Lilja Jónsdóttir

Stutt ferðatilhögun:

Orlando/Fort Lauderdale - Flórída, Cozumel -  Mexíkó , Roatan – Honduras, Puerto Limon - Costa Rica , Colon - Panama, Cartagena – Kólombíu, George Town - Grand Cayman og Fort Lauderdale/Orlando - Flórída.

Ferðin hefst með beinu flugi til Orlandó þann 12. nóvember þar sem gist er í þrjár nætur. Þaðan er siglt  um Karabíska hafið og er fyrsti viðkomustaður skipsins hin litríka og fallega eyja Cozumel í Mexíkó.

Ævintýrið hefst fyrir alvöru þegar stefnan er tekin á Mið Ameríkuríkið Honduras og eftir það bíða fleiri spennandi áfangastaðir, einnig í Suður Ameríku. Síðasti áfangastaður skipsins er hin fagra eyja Grand Cayman í Karaíbahafinu. Að lokum er siglt til Fort Lauderdale.

 

Um skipið 

Celebrity Equinox er í svokölluðum „Solstice“ flokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. Aðbúnaður á skipinu er engum líkur og þú getur látið dekra við á allan mögulegan hátt. Veitingastaðirnir eru í heimsklassa, herbergin eru sérstaklega vel búin og vistarverur eru hannaðar samkvæmt nýjustu straumum og stefnum.

Skipið er liðlega 300 metrar á lengd og með rými fyrir tæplega 3.000 farþega.  Barir, veitingasalir, leiksýningar, skemmtanir, ótrúleg heilsulind og ótal fleiri afþreyingarmöguleikar eru um borð.

Skipin frá Celebrity Cruises eru margverðlaunuð og af mörgum fagaðilum talin þau bestu í heimi. Í þeim er nýjustu straumum í tísku og tækni blandað saman við tímalausan glæsileika og klassíska afþreyingarmöguleika. Smelltu hér til að vita meira um Celebrity Cruises skipafélagið.

Komu- og brottfarartímar (m.v. staðartíma):
Frá Keflavík 12. nóv. kl. 17:25, komið til Orlando 12. nóv. kl. 20:20.
Frá Fort Lauderdale 15. nóv. kl. 17:00, komið til Ft. Lauderdale 26. nóv. kl. 07:00.
Frá Orlando 27. nóv. kl. 18:00, komið til Keflavíkur 28.nóv. kl. 06:10.

Dags.

Höfn

Koma

Brottför

15.nóv

Fort Lauderdale, Flórída 

17:00

16.nóv

Á siglingu   

17.nóv                

Cozumel, Mexíkó            

 8:00

17:00

18.nóv

Roatan, Honduras 

09:00

18:00

19.nóv

Á siglingu   

20.nóv

Puerto Limon, Costa Ríka

07:00

 18:00

21.nóv.

Colon, Panama 

 08:00

18:00

22.nóv 

Cartagena, Kólkumbíu

10:00

17:00

23.nóv      

Á siglingu      

24.nóv.

George Town, Grand Cayman 

 7:00     


Nákvæm leiðarlýsing:

Föstudagurinn 12. nóvember: Keflavík - Orlando.
Flogið frá Keflavík til Orlando í Flórída. Lending er um 20.20 og við komu er farþegum ekið á Florida Mall hótelið  þar sem gist verður í þrjár nætur.

Laugardagurinn 13.nóv. og sunnudagurinn 14.nóvember: Orlando
Skipulagður dagur með fararstjóra þar sem meðal annars verður farið í skemmtigarða og út að borða. Hótelið er vel staðsett og auðvelt er að finna verslanir, veitingastaði og ýmsa afþreyingu á svæðinu.

Mánudagur 15.nóvember:  Haldið um borð í Celebrity Equinox
Ekið er frá hótelinu eftir morgunmat til Fort Lauderdale í Flórída. Ferðin tekur um fjóra klukkutíma. Seinni part dags er stigið um borð í glæsifleygið Celebrity Equinox. Þar verður öll þjónusta til staðar og við komu í skipið bíður ferðalöngum fyrsta flokks girnilegur kvöldverður.

Þriðjudagurinn 16. nóvember: Sigling um Karíbahaf
Siglt suður á bóginn, í átt að Suður-Ameríku.

Miðvikudagurinn 17. nóvember: Cozumel (Mexíkó)
Cozumel er sannkallaður gimsteinn í yndislegu loftslagi Mexíkóflóa. Eyjan er rétt fyrir utan Yucatán skagann. Einkenni eyjunnar eru himinblár sjórinn og kóralrif. Algjör paradís fyrir þá sem vilja prófa að kafa en Cozumel er nafntoguð fyrir þá sem vilja kafa við fullkomnar aðstæður. Farþegar fá heilan dag á þessum yndislega stað.

Fimmtudagurinn 18. nóvember: Roatan (Hondúras)
Roatan er stærsta eyjan við Hondúras og er líkt og Cozumel, stórkostlegur staður til að kafa á. Þá eru  strendur eyjunnar einkar fallegar. Dýralífið á eyjunni er einstakt og hér er tilvalið að stíga frá borði, busla aðeins í sjónum og láta stjana við sig á ströndinni. Komið er snemma morguns til Roatan og lagt af stað á nýjan leik seinni partinn.

Föstudagurinn 19. nóvember:  Sigling
Siglt suður á bóginn meðfram strönd Niqaraqua.

Laugardagurinn 20. nóvember: Puerto Limon (Kosta Ríka)
Einstök náttúrufegurð ræður ríkjum í Kosta Ríka. Í Puerta Limon gefst ferðalöngum einstakt tækifæri til að skoða regnfrumskóg með tilheyrandi dýralífi sem og  griðland fugla á svæðinu. Heill dagur er í Puerta Limon fyrir ferðalanga til að spóka sig um.

Sunnudagurinn 21. nóvember: Colon (Panama)
Við austurströnd Panamaskurðarins er næst stærsta borg Panama, Colon. Tveir einstakir staðir eru við Colon, að sjálfsögðu áttunda undur veraldar í Panama skurðinum, og stærsta manngerða stöðuvatn í heimi. Gaman er að fræðast um Panamaskurðinn sem tengir saman Atlantshafið og Kyrrahafið. 

Mánudagurinn 22. nóvember: Cartagena (Kólumbíu)
Ímyndaðu þér ekta spænsk þorp. Litríkar götur, iðandi mannlíf, guðdómlegar kirkjur og yndisleg matargerð. Þannig er tilfinningin í Cartagena. Við mælum með góðum göngutúr í gegnum gamla bæjarhverfið Ciudad Murallada þar sem auðvelt er að drekka í sig menniguna. Ekki gleyma að kynnast matnum, sem er frábær. Fáðu þér hádegismat í gamla bænum á útiveitingahúsi, en ferðalangar hafa hálfan dag í bænum.

Þriðjudagurinn 23. nóvember: Sigling
Siglt áleiðis til Grand Cayman eyja.

Miðvikudagurinn 24. nóvember: George Town (Cayman-Eyjurnar)
Höfuðborg Cayman-eyja er heillandi og skemmtileg. Mjúkur, hvítur sandur og engir skattar gera þennan áfangastað einstakan. Þú hefur heilan dag á eyjunni, nýttu hann vel. Farðu til dæmis að versla um morguninn og fáðu þér svo hádegismat á grillunum við ströndina þar sem þú getur svo slappað af út daginn.

Fimmtudagurinn 25. nóvember: Sigling
Siglt áleiðis til Bandaríkjanna á nýjan leik.

Föstudagurinn 26. nóvember: Fort Lauderdale (Bandaríkjunum)
Komið til Fort Lauderdale snemma morguns og ekið til Orlando. Þar er gist á Florida Mall hótelinu síðustu nóttina fyrir heimför.

Laugardagurinn 27. nóvember: Flug heim
Flogið frá Orlando um kvöldið heim til Keflavíkur þar sem lent er um kl. 6:00 að morgni 28. nóvember
 


ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

 

Verð á mann m.v. tvo í klefa:

Miðað við tvo í ytri klefa með svölum
403.698 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 393.698 kr.-

Innifalið í verði ferðar:
  • Flug til og frá Orlando
  • Gisting án morgunverðar á hótel Flordia Mall í Orlando í 3 nætur fyrir siglingu og eina nótt eftir siglingu
  • Fullt fæði og afþreying um borð í Celebrity Equinox
  • Þjórfé um borð í Celebrity Equinox
  • Allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips
  • Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
  • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.

 
 

Celebrity Equinox 

Celebrity Equinox er í svokölluðum „Solstice“ flokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. Aðbúnaður á skipinu er engum líkur og þú getur látið dekra við á allan mögulegan hátt. Veitingastaðirnir eru í heimsklassa, herbergin eru sérstaklega vel búin og vistarverur eru hannaðar samkvæmt nýjustu straumum og stefnum.

 

(+)nánar

The Florida hotel and Conference Center 

Afar vinsælt og sérlega gott hótel sambyggt Florida Mall verslunarmiðstöðinni. Hótelið hefur allt verið endurnýjað á undanförnum árum og er á fínum stað milli flugvallarins, Disney garðanna og miðbæjar Orlando.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland