Kenýa

Kenýa

Kenýa: Klassískt safarí
13. – 27. október 2010

Fararstjóri: Elín Þorgeirsdóttir


Ferðin hefst í höfuðborg Kenýa, Nairóbi þar sem meðal annars verður farið á Karen Blixen safnið, gíraffagarð og munaðlausir fílskálfar heimsóttir. Einnig verður farið í heimsókn á ABC skólann í Nairóbi. Leiðin liggur svo í þekktasta þjóðgarð Kenýa, Masai Mara þjóðgarðinn. Í Masai Mara er að finna helstu dýr sem við tengjum við Afríku meðal annars, fíla, ljón, hlébarða, nashyrninga, buffala, gíraffa og antílópur. Frá safarí og villidýrum verður flogið til hinnar fallegu strandar Diani sem er við Indlandshafið.

Á Diani ströndinni er eins og tíminn standi í stað, pálmatrén blakta í golunni, sjórinn er fallega blágrænn og þar er eitt fegursta kóralrif í heimi. Dásamlegt er að liggja undir pálmatré á hvítsendinni ströndinni og horfa á veiðimennina koma að landi á eintrjánungum með afla dagsins. Svo má fara í sjóstangaveiði, köfun eða skoða skrautfiska. Við ströndina heimsækjum við þorp Digoættflokksins þar sem við fræðumst um siði og venjur þeirra.

Í lok ferðar er ekið til hafnarborgarinnar Mombasa þar sem í boði er að ganga um gamla hluta borgarinna, sjá og heyra sitthvað um um sögu og menningu þessarar merkilegu verslunar- og viðskiptaborgar. Endað verður á kvöldsiglingu undir stjörnubjörtum Afríkuhimni.

  

Komu- og brottfarartímar (m.v. staðartíma):

 Frá:

Dags.

Brottför

Til

Dags.

Koma

Keflavík

13.okt

11:45

London

13.okt

11:45

London

13.okt

20:00

Nairobi

14.okt

06:30

Mombasa

26.okt

18:50

Nairobi

26.okt

19:50

Nairobi

26.okt

23:45

London

27.okt

06:45

London

27.okt

13:00

Keflavík

28.okt

15:00

Dagskrá og leiðarlýsing:

Miðvikudagurinn 13 október: Keflavík - London - Nairobí                                       Flogið frá London áleiðis til Kenya með næturflugi

Fimmtudagurinn 14. október:  Nairobí höfuðborg Kenýa
Lent í Nairobi snemma dags og ekið að hinu glæsilega Ole- Sereni hóteli sem er í u.þ.b.10 min  aksturleið frá flugvellinum og staðsett í útjaðri Nairobi þjóðgarðsins þar dveljum við í tvær nætur. Þennan dag er tilvalið að slaka á eftir flugið og njóta aðbúnaðar á hótelinu og hver veit nema að hægt verði að koma auga á villt dýr frá þakgarði hótelsins. Kvöldmatur snæddur á hótelinu. Máltíðir: K

Gisting: Ole–Sereni.

Föstudagurinn. 15. október: Nairóbi – dagsferð
Karen Blixen safnið – Munaðarlausir fílar – Gíraffaheimsókn – ABC heimilið – Carnivor villibráðarveitingastaður.

Þennan dag könnum við Nairobi og nánasta umhverfi. Meðal annars verður farið að fyrrverandi heimili Karenar Blixen og fræðst um hana. Einnig verður verndarsvæði fyrir gíraffa skoðað sama dag sem og Sheldricks “uppeldistöðina” fyrir munaðarlausa fílskálfa. Heimsókn á ABC heimilið fyrir munaðrlaus börn í Nairobi. Um kvöldið förum við út að borða á einn frægasta veitingastað í Afríku “Carnivores” sem að sérhæfir sig í villibráð.         Máltíðir: M, H, K

Laugardagurinn 16. október Nairobí:  Masai Mara þjóðgarðurinn
Snemma morguns, eftir ríkulegan morgunmat á Ole–Serani, er haldið af stað í suðurátt að Masai Mara Þjóðgarðinum. Leiðin liggur að hluta í gegnum svæði Masai fólksins sem enn lifir að miklu leyti eftir sínum gömlu hefðum. Í Masai Mara má finna flest öll dýr sem við tengjum við Afríku fíla, ljón, flóðhesta, gnýi, hlébarða ofl. ofl. Gist verður inni í þjóðgarðinum

Gisting:  Mara Simba Lodge

Máltíðir: M, H, K

Sunnudagurinn 17. október:  Masai Mara þjóðgarðurinn - safarí
Safaríferð um Masai Mara. Ekið um á bílum með þaki sem hægt er að lyfta upp til að ná góðum myndum. Engin orð geta lýst því að aka um sléttur Afríku og skoða villidýrin í sínu rétta umhverfi.  Heimsókn í Masai þorp. Masai þjóðflokkurinn lifir eftir gömlum venjum og siðum og er einstaklega stoltur og flottur. Við munum fræðast um venjur þeirra og daglegt líf og einnig verður hægt að kaupa handverk þeirra beint af innfæddum. Gist á Mara Simba. Máltíðir: M, H, K


Mánudagurinn 18. október: Masai Mara þjóðgarðurinn – Diani ströndin
Þeir sem vilja, halda af stað í loka safarí um morguninn og um hádegi er ekið að litlum malarflugvelli í hjarta garðsins þar sem að 20 mann vél bíður okkar og flýgur tæplega tveggja tíma leið beint að  Diani ströndinni, sem er við hið kristaltæra Indlandshaf. Gist verður á sérlega notalegu og smekklegu hóteli, sem hefur hýst Íslendingahópa undnfarin ár.  Máltíðir: M, K 

Gisting:  Indian Ocean Beach Club

Þriðjudagurinn 19. október:  Diani ströndin við Indlandshaf
Á Diani eru strendurnar enn þá eins og maður ímyndar sér að þær eigi að vera. Pálmatrén blakta í golunni og hrein ströndin tekur á móti tærum og volgum sjónum. “Túrisminn” hefur ekki enn þá hafið innreið sína inn í þessa paradís að neinu ráði sem gerir dvölina einstaka upplifun. Enn gefur að líta hefðbundnar skútur innfæddra, er þær sigla til dæmis til Zanzibar eða annar eyja með krydd og framandi varning. Hér gefst okkur tími til að slaka á og gleyma vestrænu stressi og áhyggjum. Allskyns skart og handunnin vara er til sölu í litlum strákofum við ströndina og tilvalið að prútta við sölumenn um kaup og kjör.

Miðvikudagurinn 20. október: Afslöppun við Indlandshaf

Máltíðir: M, K 

Fimmtudagurinn 21. október:  Diani ströndin eða skútusigling
Skútusigling kostar: 110$ (um 14,300 kr. á mann) og greiðist úti

Máltíðir: M, K 

Sérferð:  Skútusigling – dagsferð
Siglt að kóralrifjum á hefðbundnum skútum þar sem er hægt að “snorkla” og skoða skrautfiska í sjónum við kóralrifið. Ef heppnin er með manni má sjá höfrunga leika sér í sjónum. Á heimleiðinni er komið við í hellum sem áður geymdu þræla. ATH. Að skúturnar sem verið er að bjóða eru hefðbundnar tréseglskútur byggðar eftir upprunalegri fyrirmynd skúta, sem sigldu milli Mombasa og Zanzibar með þræla, krydd og annan varning
Ferðin kostar:

Máltíðir: M, K 

Föstudagurinn 22. október: Diani ströndin eða Kaya skógurinn
Sérferð: Kayja skógurinn -hálfsdagsferð
Fraið í létta gönguferð í upprunalegan  regnskó og fræðst um sögu fólksins sem þar bjó á árum áður. Í lok ferðar er hægt að kíkja í heimsókn í nærliggjandi þorp þar sem við fáum innsýn í daglegt líf fólks við ströndina.
Máltíðir: M, K 

Laugardagurinn 23. október: Diani ströndin  
Það er reynsla margra að gott sé að slaka á í við ströndina í nokkra daga en það er líka nóg að gera ef að fólk vill. Það eru margir veitingastaðir við ströndina og um að gera að njóta alls þess sem þeir bjóða upp á. Einnig er gaman að prútta við innfædda og kaupa allskyns skart og minjagripi. Máltíðir: M, K 

Sunnudagurinn 24. október:  Diani ströndin - Mombasa
Ekið til hafnarborgarinna  Mombasa um hádegisbil. Við munum dvelja á hótelíbúðum á hinu vel staðsetta Tamarind Village. Íbúðirnar eru með 2 eða 3 herbergi en íbúar deila með sér rúmgóðri stofu og svölum er snúa út að Nyali sundinu
Um kvöldið þegar allir hafa skipt yfir í betri fötin og fengið sér fordrykk út á svölum göngum við niður steintröppur og um borð í Tamarind skútuna sem mun sigla út á sundi. Þar verður grillað sjávarfang um borð og snætt undir stjörnubjörtum afrískum himni á meðan að tónlistarmenn leika af fingrum fram. Máltíðir: M, K 

Gisting: Tamarind Village. 

Mánudagurinn 25. október  Mombasa heilsdagsferð                                         Mombassa –Fort Jesus – tréútskurðarverkstæði
Eftir morgunverð verður hið Hið forna virki Portúgala “Fort Jesus” skoðað og einnig gamli bærinn sem er með heillandi blöndu af arabískri og swahíli menningu Í gamla bænum óma moskurnar og mannlífið er litrík og framandi blanda frá ólíkum menningarheimum. Að lokum er farið til Akamba verkstæðisins. þar sem hægt er að gera góð kaup á handunnum trévörum. 
Ferðin um gamla borgarhluti Mombasa kostar: 90$ (um 11.700 kr. á mann) greiðist úti

 Máltíðir: M,

Þriðjudagurinn 26. október: Mombassa - London
Síðdegis er ekið út að Mombassa flugvelli og flogið til Nairobi þar sem að tengiflug bíður okkar til London. Máltíðir: M,

Miðvikudagurinn 27. október: London- Keflavík
Lent í London og flogið til Íslands. 

* Ath. Myndir við þessa ferð tóku Sigrún Þorsteinsdóttir og Páll Guðjónsson

 

Verð á mann m.v. tvo í herbergi:

594.700 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 604.700 kr.-

Verð á mann m.v. einn í herbergi:

 695.248 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta:685.249 kr.-

Innifalið í verði ferðar:
  • Flug til og frá Kenýa
  • Flug frá Masai Mara að Diani ströndinni
  • Gisting með morgunverði á hótel Ole-Serani í Nairóbí í 2 nætur, Mara Simba Lodge með fullu fæði í 2 nætur, Indian Ocean Beach Club með hálfu fæði í 7 nætur og Tamarind Village með morgunverði í 2 nætur.
  • 1 kvöldverður í Nairobí og einn kvöldverður í Mombasa
  • Fullt fæði frá 15. - 17.október ( í Masai Mara)
  • Hálft fæði frá 18. - 24. október
  • Morgunverður 25. - 26. október
  • Safarí í Masai Mara
  • Létt gönguferð um Kaya regnskóginn
  • Innfæddir leiðsögumenn þegar þess þarf.
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela
  • Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
  • Ferðatrygging, vegabréfsáritanir, gos, áfengir drykkir
  • Skútusigling: 110$ (um 14,300 kr. á mann) greiðist úti
  • Gamli bær Mombasa: 90$ (um 11.700 kr. á mann) greiðist úti
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.
  • Lágmarksþáttaka í þessa ferð eru 10 manns og áskilur VITA sér rétt til að fella ferðina niður ef þátttaka næst ekki.

Máltíðir:  Skv. ferðalýsingu M, H,K . M = Morgunverður, H= Hádegisverður, K= Kvöldverður.

 
 

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland