Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ef þínar hugmyndir um paradís innihalda sólríkar strendur, kristaltæran sjó og blakandi pálmatré gætu Maldíve-eyjarnar verið hápunktur ársins hjá þér. VITA kynnir með stolti þennan einstaka áfangastað í miðju Indlandshafi allt árið um kring.
Fegurð eyjanna er sögð ávanabindandi. Hvort sem um er að ræða neðansjávar, þar sem skyggni getur verið 50 metrar í ylvolgnum sjónum, eða á láglendinu með sólina á lofti yfir 300 daga á ári er ljóst að eyjurnar eru algjörlega einstakar. Það er engin tilviljun að staðurinn hafi verið kallaður sá besti í heimi til að kafa á. Köfunarskólar eru á hverju strái og fegurðin neðansjávar rómuð um allan heim.
Þar sem ferðamenn skipa stóran sess á eyjunum skortir engan neitt að gera. Hvort sem þú vilt liggja flatmaga á ströndinni með svaladrykk í hendi, busla í sjónum, kafa, fara á sjóskíði eða sjóketti, er öruggt að þér mun líða vel í veðursældinni. Urmull veitingastaða eru á eyjunum þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Þar sem aðeins eitt prósent af því svæði sem tilheyrir Maldíve-eyjunum er á landi en 99% á sjó skipar veður stóran sess í lífi eyjaskeggja. Hiti fer sjaldnast undir 25 gráður og þurrasta tímabilið frá desember og út apríl. Þá er himininn nánast alltaf blár, rakinn minni og rigning lítil. Frá maí til október rignir helst og því er ódýrast að gista á eyjunum á sumrin og fram á haust. Rigning er oftast hitabeltisskúrir. Ódýrast er að fara til Maldive eyja frá 1. maí til 31. júlí. Ágúst, september og október eru aðeins dýrari, en hæsta verðið er frá janúar og til apríl loka, eða yfir vetrartímann. Að jafnaði er maí heitasti mánuðirinn en desember sá kaldasti. Sjá meira um veðrið á Maldive eyjum.
Maldíve-eyjarnar henta hverjum sem er en eru sérstaklega tilvaldar sem tækifærisferðir á borð við stórafmæli, brúðkaupsferðir eða brúðkaupsafmæli og rómantík.
Sérstakt fyrir brúðhjón:
Tímabilið frá 1. maí til 23. des. 2010
Ef dvalið er í lágmark 7 nætur
Blómaskreyting, flaska af kampavíni, ávaxtakarfa og einn 3ja rétta kvöldverður við kertaljós á veitingastaðnum Sea Salt.
Ef dvalið er í lágmark 3 nætur
Blómaskreyting, flaska af rauðvíni , ávaxtakarfa og konfekt.
Tímabilið frá 24.des. 2010 til 23. desember 2011
Ef dvalið er í lágmark 7 nætur
Einn 4ra rétta kvöldverður við kertaljós á veitingastaðnum Sand Coast.
Ef dvalið er í lágmark 3 nætur
Einn 3ja rétta kvöldverður við kertaljós á veitingastaðnum Sand Coast.
Alþjóðaflugvöllur er á Malé og þaðan er auðvelt er að ferðast með hraðbát til einkaeyjunnar þar sem hótel Sheraton er og tekur ferðin oftast um 20 mínútur. Malé er ekki aðeins höfuðborg Maldíveyja heldur er hún einnig stærsta borg landsins og þar býr einn þriðji hluti þjóðarinnar.
Í Malé er þjóminjasafn heimamanna þar sem hægt er að upplifa sögu eyjabúa, uppruna þeirra og hvernig þeir hafa þróast í þá vinalegu þjóð sem þeir eru í dag. Gestir eiga möguleika á því að sækja heim grafhýsi þjóðhetju maldívbúa, Mohammed Thakurufaan sem frelsaði landið frá Portúgölum árið 1573.
Upplifið undur arkítektúrs í Malé, Mulee-aage höllina sem byggð var af Mohamed Shamsuddeen III soldáni en þar er skrifstofa forsetans er staðsett í dag. Elsta moska Maldíveyja, Huskuru Miskiiy er einnig staðsett í borginni, hún var byggð árið 1656 og var byggð til að hýsa allt að 5000 manns.
Verslun í Malé telur allt frá hefðbundnum listmunum til nýjustu tækni. Hægt er að skoða fjörugan fiskmarkað þar sem miðdepill verslunar fer fram eða skroppið á ávaxtamarkaðinn og smakkað ljúffengu maldíveysku kókoshneturnar. Ljúkið síðan ferð ykkar til höfuðborgarinnar með afslappandi tebolla á einum af þeim mörgu frábæru kaffihúsum sem borgin hefur upp á að bjóða.
Tímabilið okt. - des 2010
Verðdæmi *) á mann í tvíbýli:
Beachfront deluxe 459.800 kr. ein vika
Viðbótarkostnaður ef gist í smáhýsi: 6.500 kr. á mann á dag.
Viðbótarkostnaður ef gist í smáhýsi með sjávarsýn 16.850 kr. á mann á dag.
Tímabilið jan - apríl 2011
Verðdæmi *) á mann í tvíbýli:
Beachfront deluxe 427.800 kr. ein vika
Viðbótarkostnaður ef gist í smáhýsi: 7.800kr. á mann á dag.
Viðbótarkostnaður ef gist í smáhýsi með sjávarsýn 12.460 kr. á mann á dag.
Innifalið í verði:
Þessar ferðir er ekki hægt að bóka á netinu, heldur skal hringja í sölumenn í síma 570 4444. Einnig má senda fyrirspurn í netpósti.
Flug er pantað fyrir hvern og einn og fer endanlegt verð ferðarinnar eftir því hvaða fargjald fæst.
Hér fyrir neðan er dæmi um algenga flugleið milli Íslands og Maldive eyja, en þá er flogið með Icelandair og Sri Lanka Airlines. Nokkur önnur flugfélög fljúga á milli og hægt er að velja um mismunandi tengiflug, en stundum þarf að gista í London eða t.d. Frankfurt á heimleið.
| Útflug: | Brottför | Koma | ||||
| fim | FI 450 | Keflavík | 09:00 | London | fim | 12:00 |
| fim | UL510 | London | 21:25 | Male | fös | 12:45 |
| Heimflug: | ||||||
| fös | UL510 | Male | 13:35 | Colombo | fös | 15:35 |
| lau | UL505 | Colombo | 02:15 | London | lau | 08:45 |
| Lau | FI451 | London | 13:00 | Keflavík | lau | 16:00 |
*) Ofangreind verðdæmi eru einungis til að leiðbeina, en sölumenn reikna út verð fyrir hvern og einn.